A.04. Velferðarnet
Aðgerðin er í vinnslu | |
---|---|
Tengiliður
Þór G. Þórarinsson, félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu - [email protected]
Fréttir
27.01.22 Aðgerðin er í gangi á Suðurnesjum. Þrír þættir af fjórum eru í vinnslu: 1. Að auka aðgengi íbúa að stafrænum lausnum, 2. Nýsköpun í velferðarþjónustu og 3. Að auka og styrkja samræmingu og skilvirkni í velferðarþjónustu ríkis og sveitar-félaga. Fjórði þátturinn liggur í samstarfi háskólastofnana um nám og gerð nýsköpunaráætlana fyrir sveitarfélög. Í Fjallabyggð og á Ísafirði er hafinn undirbúningur um þróun á afmörkuðum verkefnishugmyndum á sviði nýsköpunar og velferðartækni.
18.12.20 Aðgerðinni hefur verið hrint af stað á Suðurnesjum. Þrír þættir af fjórum eru í vinnslu; 1) að auka aðgengi íbúa að stafrænum lausnum, 2) nýsköpun í þjónustu í velferðarþjónustu og 3) að auka samræmingu og skilvirkni í velferðarþjónustu ríkis og sveitarfélaga. Fjórði þátturinn er enn á hugmyndastigi en fer vonandi af stað í febrúar 2021. Í Múlaþingi er verið að skoða hvort hægt verði að vinna út frá sömu verkefnishugmynd og á Suðurnesjum.
11.12.19 Er í undirbúningi í samstarfi fjögurra ráðuneyta (FRN, HRN, MRN og SRN) og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Verkefnið
Markmið: Að heildstæð þjónusta á sviði félags-, heilbrigðis- og menntamála verði styrkt og aukin og ávinningur notenda af þjónustu ríkis og sveitarfélaga þannig aukinn.
Stutt lýsing: Haldið verði áfram með þróun tilraunaverkefna í þverfaglegum landshlutateymum/velferðarnetum sem sinni samhæfingu, ráðgjöf, gæðamálum og fleiru á sviði félags-, heilbrigðis- og menntamála í anda laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Sett verði á laggirnar velferðarnet sem myndi heildstæða og samræmda þjónustukeðju sveitarfélaga og ríkis á umræddum sviðum. Byggð verði upp kunnátta til að veita starfsfólki sveitarfélaga, notendum og foreldrum sérhæfða stað- og fjarbundna ráðgjöf sem miði m.a. að því að beita fyrirbyggjandi stuðningi og ráðgjöf fyrr. Unnið verði að verkefnum sem miði að því að styðja notendur og fjölskyldur þeirra í dreifðum byggðum til sjálfshjálpar þar sem ekki er greiður aðgangur að sérfræðingum. Áhersla verði lögð á þróun stafrænna lausna á sviði velferðartækni. Árangur aðgerðarinnar verði m.a. mældur í fjölda velferðarstofa.
- Ábyrgð: Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti í samstarfi við heilbrigðisráðuneyti og mennta- og barnamálaráðuneyti.
- Framkvæmdaraðili: Stofnanir ríkis og sveitarfélaga á sviði félags-, heilbrigðis- og menntamála á viðkomandi svæði.
- Dæmi um samstarfsaðila: Ráðuneyti, landshlutasamtök sveitarfélaga, Samband íslenskra sveitarfélaga, hagsmunasamtök fatlaðs fólks, almannaheillasamtök og fyrirtæki í stafrænni þróun tæknilausna á sviði velferðar- og menntamála.
- Tímabil: 2022–2026.
- Tenging við aðrar stefnur/áætlanir: Menntastefna, heilbrigðisstefna, nýsköpunarstefna, stefna í nýsköpun og tækni á sviði velferðarþjónustu, þingsályktun um barnvænt Ísland.
- Tenging við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður markmið 1, 3, 4 og 16, einkum undirmarkmið 1.3, 3.5, 3.8, 4.a og 16.1.
- Tillaga að fjármögnun: 25 millj. kr. úr byggðaáætlun.