Hoppa yfir valmynd
17. mars 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 75/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 75/2015

Fimmtudaginn 17. mars 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 22. nóvember 2015, kærði A, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. ágúst 2015, um innheimtu ofgreiddra bóta að fjárhæð 99.868 kr.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun meðal annars frá 1. október 2014 til 31. janúar 2015 og var í hlutastarfi hjá B samhliða greiðslunum. Kærandi skilaði inn tekjuáætlun vegna starfsins en rauntekjur hennar voru iðulega hærri en áætlunin gerði ráð fyrir.

Þegar Vinnumálastofnun bárust upplýsingar um rauntekjur kæranda voru gerðar leiðréttingar á atvinnuleysistryggingum hennar. Með reglulegum tilkynningum í gegnum vefgátt Vinnumálastofnunar og greiðsluseðlum á árunum 2014 og 2015 var kærandi upplýst um að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur og skuld hefði myndast við stofnunina af þeim sökum. Með innheimtubréfi, dags. 24. ágúst 2015, var þess farið á leit við kæranda að skuldin yrði greidd innan 90 daga, samtals að fjárhæð 99.868 kr. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi fyrir ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu bóta með bréfi, dags. 17. nóvember 2015. Rökstuðningur var veittur þann 2. desember 2015.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 26. nóvember 2015. Með bréfi, dags. 1. desember 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 11. janúar 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. janúar 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki kröfur í málinu en ráða má af kæru að hún óski eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra bóta verði felld úr gildi. Fram kemur að hún hafi ekki fengið skýringar frá stofnuninni í hverju ofgreiðslan liggi og hún viti þess vegna ekki hvernig komist sé að þessari niðurstöðu.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fengið greiðslur frá B samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Sökum þess að greiðslurnar hafi iðulega numið hærri fjárhæð en framlögð tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir sem og að kærandi hafi verið í hlutastarfi samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta hafi greiðslur atvinnuleysistrygginga til kæranda verið skertar afturvirkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Þar sem greiðslur atvinnuleysistrygginga í máli kæranda hafi verið leiðréttar afturvirkt hafi myndast skuld í greiðslukerfi Vinnumálastofnunarinnar. Kæranda beri í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Þá kemur fram að kærandi segi í kæru sinni til úrskurðarnefndar að hún hafi ekki fengið skýringar á innheimtu Vinnumálastofnunar og hún vilji kæra ákvörðun áður en kærufrestur renni út. Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 99.868 kr. Vinnumálastofnun telji sér skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær sem ofgreiddar séu í samræmi við framangreind ákvæði. Ekki verði séð að annað eigi við í máli kæranda.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 99.868 kr. með 15% álagi.

Atvinnuleitendum ber að upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum þeirra á þeim tíma sem þeir fá greiddar atvinnuleysisbætur, s.s. um tekjur sem þeir fá fyrir tilfallandi vinnu, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá skulu skattyfirvöld láta Vinnumálastofnun í té upplýsingar sem nauðsynlegar eru við framkvæmd laganna, sbr. 4. gr. 9. gr. laganna.

Um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna er fjallað í 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 1. málsl. 1. mgr. 36. gr. segir að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða og atvinnuleysisbætur hans séu hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skuli skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru.

Þá segir í  2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun á skuld kæranda rætur sínar að rekja til þess að kærandi fékk ofgreiddar bætur á árunum 2014 og 2015 þar sem hún fékk iðulega hærri tekjur en tekjuáætlun hennar gerði ráð fyrir.

Af framangreindum lagaákvæðum má ráða að það er á ábyrgð bótaþega að upplýsa um tekjur. Vinnumálastofnun greiðir atvinnuleysisbætur í samræmi við tekjuáætlun atvinnuleitenda og bótagreiðslurnar geta því sætt skerðingu í samræmi við 36. gr. laganna. Vinnumálastofnun aflar síðar upplýsinga frá skattyfirvöldum um rauntekjur atvinnuleitenda. Ef rauntekjurnar eru hærri en tekjuáætlun gerir ráð fyrir hafa atvinnuleitendur ef til vill fengið meira greitt en þeir áttu rétt til. Í slíkum tilvikum ber atvinnuleitendum að endurgreiða ofgreiddar bætur í samræmi við 39. gr. laganna.

Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Hins vegar skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 99.868 kr., er staðfest.

Rakel Þorsteinsdóttir

Arnar Kristinsson

Agnar Bragi Bragason

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum