Hoppa yfir valmynd
11. júní 2015 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 80/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 11. júní 2015 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður nr. 80/2015

Í stjórnsýslumáli nr. KNU15030016


 Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 25. febrúar 2015, kærði […], fd. […], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. febrúar 2015, um að synja henni um hæli á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að henni og dóttur hennar verði veitt staða flóttamanna skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda og dóttur hennar verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 10. desember 2014 hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Kærandi var boðuð í viðtal hjá Útlendingastofnun 30. janúar 2015 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 12. febrúar s.á., synjaði Útlendingastofnun kæranda og dóttur hennar um hæli. Þá var þeim einnig synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði þær ákvarðanir til kærunefndar útlendingamála við birtingu þann 25. febrúar 2015.

Þann 13. maí 2015 kom kærandi fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b útlendingalaga.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggði kröfu sína um hæli hér á landi á því að tengdafjölskylda hennar eigi í [...] við [...] í heimalandi sínu. Útlendingastofnun taldi frásögn kæranda um flest trúverðuga.

Útlendingastofnun fjallaði sérstaklega um það í ákvörðun sinni að hin meinta [...] hafi aðeins hafist eftir að tengdafaðir kæranda veittist að öðrum manni með líkamlegu ofbeldi og því ekki um að ræða rótgrónar eða gamlar deilur. Þá hafi engin morð verið framin vegna deilnanna eða ofbeldi af öðru tagi verið beitt og ekkert hafi komið fram um afstöðu lögreglu eða yfirvalda.

Útlendingastofnun fjallaði um tilurð, skilyrði og aðgerðir stjórnvalda í [...] og vísaði í nýlegar skýrslur. Þar kom m.a. fram að yfirvöld í [...] hafi sýnt aukna viðleitni til að veita fórnarlömbum [...] fullnægjandi vernd. Á síðustu árum hafi verið lögð áhersla á að bregðast við [...] […] sem umsækjandi kemur frá. Þótti sýnt að kærandi hafi ekki reynt til hlítar að leita sér þeirrar aðstoðar sem í boði er í [...] og ekkert í gögnum málsins sýndi fram á vanhæfi [...] yfirvalda til að vernda kæranda og fjölskyldu hennar gegn meintum ofsóknum. Var það því mat Útlendingastofnunar að frásögn kæranda gæfi ekki tilefni til þess að ætla að aðstæður hennar væru með þeim hætti sem greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga eða að um ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr. a sömu laga væri að ræða. Þá taldi Útlendingastofnun aðstæður kæranda ekki með þeim hætti sem greinir í 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Stofnunin taldi að ljóst væri að kærandi gæti fengið viðhlítandi aðstoð yfirvalda í heimalandi sínu.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f segir í ákvörðun Útlendingastofnunar að ekki verði talið að kærandi sé í þeirri aðstöðu í [...] að hún eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, eða að aðstæður í heimalandi hennar séu að öðru leyti slíkar að þær réttlæti veitingu dvalarleyfis með vísan til mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla hennar við Ísland.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c.-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun ákvað að kæra myndi fresta réttaráhrifum.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kveðst kærandi vera frá þorpinu […] í [...] en hafi verið búsett í bænum […]. Báðir staðir eru í […] héraði í […] [...]. Kærandi kveðst vera að flýja heimaland sitt vegna deilna tengdaföður hennar við mann að nafni […], sem tengdafaðir hennar hafi veist að með miklu ofbeldi þann […]. Hún greinir svo frá að í kjölfarið hafi verið haldinn sáttafundur, […] s.á., sem ekki bar árangur og fengu kærandi og fjölskylda hennar þau skilaboð að fjölskylda […] hyggðist leita hefnda. Kærandi og fjölskylda hennar hafi verið í felum hjá […] eiginmanns kæranda frá því atvikið átti sér stað en flúðu [...] eftir að hafa fengið skilaboðin frá [...]. Kærandi kveðst ekki hafa leitað til lögreglu þar sem að tengdafaðir hennar hafi verið í órétti vegna líkamsárásarinnar og að hún telji jafnframt að lögreglan myndi ekki veita henni og fjölskyldu hennar vernd.

Í greinargerð segir að Útlendingastofnun hafi fjallað sérstaklega um það í ákvörðun sinni að ekki sé um að ræða hefðbundna [...]  og að hótanir þær sem kærandi hefur greint frá hefðu ekki borist kæranda og fjölskyldu hennar beint heldur í gegnum aðila sem leituðu sátta fyrir þeirra hönd. Er á því byggt að hvergi sé í gögnum um [...] að finna þau skilyrði að morð þurfi að hafa átt sér stað eða að einstök tilvik teljist ekki nægjanleg til þess að um [...] sé að ræða. Einnig sé algengt að hótanir um líflát og líkamsmeiðingar séu ekki settar fram augliti til auglitis heldur í gegnum [...] sem sér um að koma þeim til skila, eigi þessi aðferð sér stoð í [...]. Með vísan til ofangreinds var því talið að skilyrðinu um ofsóknir væri fullnægt þar sem lífi og frelsi kæranda væri ógnað.

Í greinargerð er ennfremur á því byggt að kærandi og fjölskylda hennar teljist vera aðilar tiltekins þjóðfélagshóps skv. flóttamannasamningnum og er vísað í leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá [...] því til stuðnings. Þá segir að skv. 33. gr. flóttamannasamningsins þá teljist það ávallt ofsóknir sé lífi eða frelsi ógnað vegna kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða fyrir að tilheyra ákveðnum þjóðfélagshópi. Með hliðsjón af ofangreindu leiki enginn vafi á því að skilyrðum 1. mgr. 44. gr. a útlendingalaga, sé fullnægt þar sem lífi og frelsi fjölskyldunnar var ógnað með þeim hótunum sem kærandi hefur lýst.

Í greinargerð segir ennfremur að þrátt fyrir viðleitni stjórnvalda í [...] til framfara á síðustu árum þá sé [...] fátækt land þar sem ríki mikil spilling, m.a. í veikburða réttarkerfi landsins. Lýsir kærandi miklu vantrausti á vilja og getu stjórnvalda til að veita henni og fjölskyldu hennar vernd gegn þeim sem ofsækja þau. Ekki sé hægt að ætlast til þess að fjölskyldan geti leitað ásjár [...] yfirvalda og hlotið þar fullnægjandi vernd eingöngu á grundvelli þess að refsirammi brota tengdum [...] hafi verið hækkaður sem og að gefnar hafi verið út nýjar leiðbeiningarreglur til lögreglu og saksóknara þegar enn ríki mikil spilling í réttarkerfinu sjálfu. Því er þess krafist að kæranda verði veitt staða flóttamanns á grundvelli A-liðar 1. gr. flóttamannasamningsins, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Varðandi flutning innanlands segir kærandi að [...] [...] og því sé afar erfitt að ætlast til þess af sanngirni að hún og fjölskylda hennar geti verið óhult fyrir þeim sem hóta þeim flytji þau sig um set, sérstaklega ef litið er til tengsla […] við valdamenn og lögregluna í [...]. Kærandi segir mikilvægt að hafa þetta í huga þegar aðstæður hennar og fjölskyldu hennar eru metnar í tengslum við möguleika til flutnings innanlands.

Varðandi varakröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga segir að skilyrði þess ákvæðis séu uppfyllt þar sem að ljóst sé að stjórnvöld í [...] vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd. Er ennfremur ítrekað að í 2. mgr. 12. gr. f sé kveðið á um að taka eigi sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og eigi það bæði við um fylgdarlaus börn sem og önnur börn.

Í greinargerð kæranda er loks byggt á því að í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli dóttur kæranda skorti alfarið rökstuðning fyrir því að hvaða marki tekið hafi verið tillit til þeirrar verndar sem börn eiga rétt á samkvæmt ákvæðum sáttmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, íslenskum lögum og öðrum reglum þjóðarréttar. Segir þar að rökstuðningurinn sé ófullnægjandi þar sem að ekki kemur fram að aðstæður stúlkunnar hafi verið metnar sérstaklega í tengslum við endursendingu fjölskyldunnar til [...] og að ákvörðunin sé án nokkurs efnislegs rökstuðnings varðandi aðstæður stúlkunnar sérstaklega. Því fullnægi ákvörðunin ekki þeim kröfum sem 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gerir til efnis rökstuðnings stjórnvaldsákvörðunar hvað þetta varðar. Þá er því haldið fram að Útlendingastofnun hafi við töku ákvörðunar sinnar virt að vettugi mikilvæg ákvæði laga og alþjóðasáttmála er kveða á um að hagsmunir barna skuli hafðir að leiðarljósi við töku ákvarðana í málum er þau varða.

VI.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga með síðari breytingum, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Réttarstaða barns kæranda

Svo sem fram er komið kom dóttir kæranda með henni hingað til lands. Haldast úrskurðir er varða foreldra og börn þeirra í hendur í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar, þegar barn er í fylgd annars eða beggja foreldra. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir eru í fylgd beggja foreldra sinna.

 Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hún framvísað [...] vegabréfi fyrir sig og dóttur sína. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi og dóttir hennar séu [...] ríkisborgarar.

Landaupplýsingar [...]

[...] er lýðræðisríki með um [...] milljónir íbúa og eru mannréttindi almennt virt af stjórnvöldum þar í landi. [...] gerðist aðili að [...].

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. skoðað skýrslu [...], skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu þeirra sem sækja um hæli á grundvelli [...]  (UNHCR position on claims for refugee status undert the 1951 Convention relating [...]) og [...].

Í ofangreindum gögnum kemur fram að [...] stjórnvöld hafi tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna vegna [...], t.d. hafi verið gerðar ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök ákvæði verið sett í refsilöggjöf landsins sem refsa fyrir [...] sem og önnur brot tengd [...]. Í kjölfarið hafi fjöldi morða og fjölskyldna sem [...] farið fækkandi. Þrátt fyrir að tilfellum fari fækkandi eru stjórnvöld enn ötul við að ákæra gerendur og aðstoða fjölskyldur og þolendur [...]. Þá hafa stjórnvöld gripið til aðgerða gegn einstaklingum sem [...].

a. Aðalkrafa kæranda

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann veg að kærandi og dóttir hennar fái réttarstöðu flóttamanna skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hennar séu slíkar að þær falli undir 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Kærandi byggir kröfu sína á að hún þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að annars verði lífi hennar stefnt í hættu vegna [...] í heimalandi hennar. Kærandi segir [...] yfirvöld hvorki vilja né geta veitt henni og fjölskyldu hennar fullnægjandi vernd.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á hæfilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli slíkar ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim.– Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hennar bíði ofsóknir í [...]. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verður yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Kærunefndin fellst á það sjónarmið kæranda að meðlimir fjölskyldu sem [...] beinist að geti talist vera sérstakur þjóðfélagshópur í skilningi d-liðar 2. mgr. 44. gr. a. Sá skilningur er í samræmi við leiðbeiningar frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna frá maí 2006 (UNHCR Position on Claims for Refugee Status Under the 1951 Convention relating to the Status of Refugees based [...]).

Kærunefndin hefur efasemdir um að sú deila sem kærandi kveður sig eiga í í heimalandi sínu verði talin [...]. Kærandi kveður upphaf deilunnar mega rekja til þess að tengdafaðir hennar veittist að öðrum manni með ofbeldi. Kærandi og fjölskylda hennar hafa verið í felum frá því að atvikið átti sér stað og borist skilaboð frá þriðja aðila um það að fórnarlambið hyggist leita hefnda. Ljóst er að engin frekari ofbeldisverk hafa verið framin í kjölfar þessa atviks, heldur hefur kærandi aðeins greint frá hótunum eins manns í garð fjölskyldu sinnar. Ennfremur hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn sem styðja við frásögn hennar af þeirri atburðarás sem hún hefur lýst.

Kærandi kveður enga aðstoð að fá frá lögreglu og yfirvöldum í [...] þegar kemur að [...] og að hún hafi enga trú á getu og vilja þeirra til að vernda hana og fjölskyldu hennar. Sú staðhæfing fær lítinn sem engan stuðning í þeim gögnum sem kærunefndin hefur skoðað við meðferð málsins en samkvæmt þeim virðast lögregla og yfirvöld í [...] hafa síðustu ár unnið að því að uppræta þann vanda sem fylgir [...] í landinu ásamt því að bæta aðstoð við fórnarlömb slíkra deilna. Vísað er í þessu sambandi til skýrslu bresku landamærastofnunarinnar um [...]  og skýrslu [...] um ástæður hælisumsókna [...] ríkisborgara í [...].

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi [...] yfirvalda. Almennt ferðafrelsi gildir að [...] lögum og hafa stjórnvöld almennt virt þann rétt fólks. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna átt samstarf við [...] stjórnvöld að málefnum flóttamanna og einstaklinga sem snúa aftur til landsins [...]. Er það því mat kærunefndar að þó svo fallist væri á að kærandi ætti í [...] í heimalandi sínu þá hafi hún raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda þar og að flytja sig til innanlands telji hún þess þörf. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að [...] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hún eftir henni við þau. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Líkt og að ofan greinir var dóttir kæranda í fylgd með henni hingað til lands. Hefur mál kæranda og dóttur hennar verið skoðað í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ekkert við meðferð málsins hefur gefið tilefni til þess að ætla að brotið verði gegn ákvæðum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eða íslenskrar löggjafar um börn verði kærandi og dóttir hennar send aftur til heimalands síns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í ákvæðinu er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands. Er hér um að ræða svokallaða viðbótarvernd sem kom inn í útlendingalögin með lögum nr. 115/2010 um breytingu á lögum um útlendinga. Þeir sem teljast falla undir þessa málsgrein fá stöðu sína viðurkennda eftir málsmeðferðarreglum sem eru sambærilegar að öllu leyti við ákvörðun á því hvort um flóttamann skv. 1. mgr. 44. gr. laganna er að ræða.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna. Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og henni verði veitt hæli hér á landi hafnað.

b. Varakrafa kæranda

Til vara krefst kærandi að sér og dóttur sinni verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd eins og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga og að engin sérstök mannúðarsjónarmið standi til þess að henni verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Þá tekur kærunefndin jafnframt undir niðurstöðu Útlendingastofnunar um að kærandi uppfylli ekki skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á landinu í skamman tíma í tengslum við hælisbeiðni sína.

Í greinargerð kæranda og við fyrirtöku hjá kærunefndinni var lögð áhersla á það að taka ætti sérstakt tillit til þess ef um barn væri að ræða við ákvörðun um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var þá einkum bent á það að framfærsla dóttur kæranda yrði ekki örugg við endursendingu fjölskyldunnar til heimalands þeirra. Í skýringum með 2. gr. laga nr. 115/2010 sem breyttu ákvæði 12. gr. f útlendingalaga, kemur fram það sjónarmið að almennt séð beri að taka sérstakt tillit til barna hvort sem þau eru fylgdarlaus eða ekki. Sérstaklega er þó vikið að því að í tilviki fylgdarlausra barna beri einnig að taka tillit til þess hvort framfærsla barns sé örugg og forsjáraðilar til staðar ef barni sé synjað um dvalarleyfi. Hvað varðar dóttur kæranda er ljóst að hún fylgir foreldrum sínum. Þá kom fram í skýrslu kæranda fyrir nefndinni að fjölskyldan hefur öruggt húsnæði í heimalandi sínu í næsta nágrenni við stórfjölskyldu kæranda.

Ef kærandi og eiginmaður hennar geta ekki fengið atvinnu í heimalandi sínu eiga þau rétt á fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi því sem þau eru búsett í og því má leiða líkum að því að séð verði fyrir grundvallarþörfum dóttur kæranda [...] .

Að þessu sögðu verður ekki fallist á að hagsmunir dóttur kæranda réttlæti veitingu dvalarleyfis á grundvelli 12. gr. f.

Brot gegn 22. gr. stjórnsýslulaga

Í greinargerð kæranda kom fram að ákvörðun Útlendingastofnunar í máli dóttur kæranda var ekki talin nægilega rökstudd hvað varðar sérstakar aðstæður stúlkunnar í tengslum við endursendingu fjölskyldunnar til [...].

Í 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er fjallað um efni rökstuðnings stjórnsýsluákvarðana. Þar segir að vísa eigi til þeirra réttarreglna sem ákvörðun byggir á, þeirra meginsjónarmiða sem ráðandi voru við mat og þeirra málsatvika sem höfðu verulega þýðingu við úrlausn málsins, þyki ástæða til. Í skýringarriti með stjórnsýslulögunum (Stjórnsýslulög – skýringarrit. Páll Hreinsson, forsætisráðuneytið, 1994) segir að þegar myndast hefur fastmótuð stjórnsýsluframkvæmd gæti stjórnvaldi verið heimilt að útbúa staðlaða greinagerð um hana en sennilega yrði þó ávallt að gera grein fyrir því í rökstuðningi hvaða meginsjónarmið hefðu verið ráðandi við mat á sérhverju máli. Í umfjöllun skýringarritsins segir ennfremur að í flestum tilvikum ætti að nægja tiltölulega stuttur rökstuðningur fyrir ákvörðunum í málum á fyrsta stjórnsýslustigi. Hefur það verið framkvæmd Útlendingastofnunar í málum þar sem börn eru í fylgd með foreldrum að fjalla ekki efnislega um aðstæður barnsins heldur vísa í rökstuðning með ákvörðun foreldra þeirra. Telja verður þá framkvæmd uppfylla viðmið 22. gr. stjórnsýslulaga og verður því ekki fallist á það með kæranda að ákvörðun Útlendingastofnunar í máli dóttur kæranda standist ekki kröfur stjórnsýslulaga um rökstuðning stjórnvaldsákvörðunar. Ennfremur er ekki fallist á að Útlendingastofnun hafi virt að vettugi ákvæði laga og alþjóðasáttmála er kveða á um að hagsmunir barna skuli hafðir að leiðarljósi við töku ákvarðana í málum er þau varðar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 12. febrúar 2015. Með vísan til niðurstöðu í máli kæranda þykir ennfremur rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar í máli dóttur kæranda, […], fd. […], dags. 12 febrúar 2015.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. febrúar 2015, í máli […], er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision, of 12 February 2015, in the case of […], is affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður


Anna Valbjörg Ólafsdóttir                                                                          Oddný Mjöll Arnardóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum