Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 32/2024 Úrskurður 13. mars 2024

Mál nr. 32/2024                    Millinafn:       Aftur

                                             Eiginnafn:     Aftur (kk.)

Hinn 13. mars 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 30/2024 en erindið barst nefndinni 26. febrúar.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í framangreindum skilyrðum segir aðeins að draga þurfi millinafn af íslenskum orðstofni en ekki tilgreint nánar um orðflokk. Það gengur hins vegar gegn eðli íslenskrar nafnmyndunar að búa til nöfn úr atviksorðum eða öðrum smáorðum en hér er myndað nafn úr rótgrónu atviksorði (aftur), auk þess sem slík nöfn gætu verið nafnbera til ama. Ekki er því hægt að samþykkja millinafnið Aftur.

Umsækjandi óskar þess til vara að nafnið Aftur verið samþykkt sem eiginnafn.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Aftur er ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls. Nafnið uppfyllir hins vegar ekki skilyrði 2. málsliðar, um íslenskt málkerfi. Íslenskt málkerfi er samansafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Engin hefð er fyrir því að eiginnöfn eða önnur nöfn séu leidd af atviksorðum (hér aftur) auk þess sem slík nöfn gætu orðið nafnbera til ama. Eiginnafnið Aftur uppfyllir þar af leiðandi ekki öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki hægt að fallast á það.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Aftur er hafnað.

Beiðni um eiginnafnið Aftur er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum