Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 126/2023 Úrskurður 8. desember 2023

Mál nr. 126/2023                  Aðlögun kenninafns: Katrínudóttir       

Hinn 8. desember 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 126/2023.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 5. desember 2023, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX um að kenna sig við móður sína, Katarzynu, og nafnið jafnframt lagað að íslensku máli þannig að kenninafn hennar verði Katrínudóttur.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á móðurkenninguna Katrínudóttir.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum