Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 86/2023 Úrskurður 2. október 2023

Mál nr. 86/2023                    Eiginnafn:     Brynjarr (kk.)

Hinn 2. október 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 86/2023 en erindið barst nefndinni 25. ágúst.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Brynjarr (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Brynjars, brýtur ekki í bág við íslensk málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Aftur á móti reynir hér á skilyrði nr. þrjú þar sem það telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og því aðeins hægt að samþykkja þennan rithátt nafnsins Brynjar að hefð sé fyrir honum.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin uppfærði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
  4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.’

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn nafnið Brynjarr í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra.  Nafnið kemur heldur ekki fyrir í manntölum frá 1703 til 1920. Telst því strangt til tekið ekki hefð fyrir rithætti nafnsins á grundvelli 1. gr. reglnanna. Aftur á móti bar langafi umsækjanda, fæddur 1928, nafnið en hann lést árið 2016. Munar þannig litlu á að viðmið 1. gr. vinnulagsreglnanna séu uppfyllt. Þá kemur nafnið fyrir í Íslendingabók, sbr. 3. gr. reglnanna. Með vísan til þessa og með hliðsjón af grundvallarreglum um friðhelgi einkalífs, sbr. 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, sbr. lög nr. 97/1995, og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 um mannréttindasáttmála Evrópu sem og þess að nöfnin Ísarr, Heiðarr, Hnikarr, Óttarr, Ónarr, Snævarr, Steinarr, Sævarr, Ævarr eru á mannanafnaskrá, telur nefndin að leggja beri til grundvallar að hefð sé fyrir rithættinum Brynjarr og samþykkir nafnið.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Brynjarr (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafnsins Brynjar.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum