Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 24/2024 Úrskurður 13. mars 2024

Mál nr. 24/2024                    Millinafn:       Konn

Hinn 13. mars 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 24/2024 en erindið barst nefndinni 22. febrúar.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • ·nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Konn er dregið af íslenskum orðstofni (leitt af nafninu Konráð), hefur ekki unnið sé hefð sem eiginnafn og getur ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því skilyrði 6. gr. laganna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Konn er samþykkt.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum