Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 16/2024 Úrskurður 7. mars 2024

Mál nr. 16/2024                    Eiginnafn:     Veronica (kvk.)

Hinn 7. mars 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 16/2024 en erindið barst nefndinni 6. febrúar. 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Veronica tekur íslenskri eignarfallsendinginu, Veronicu, brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama enda nafnið ritháttarafbrigði nafnsins Veróníka. Þessum rithætti nafnsins hefur aftur á móti verið hafnað í þrígang, sbr. úrskurði mannanafnanefndar í málum nr. 18/2001, 22/2008 og 69/2009, á þeim grunni að hann sé ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn c teljist ekki til íslenska stafrófsins þó hann komi fyrir í nokkrum mannananöfnum sem hafa unnið sér hefð. Þegar eiginnafn uppfyllir ekki skilyrði 5. gr. laganna að þessu leyti er þó unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. 

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin uppfærði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
  4. Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá bera fimm einstaklingar sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna eiginnafnið Veronica. Sú elsta er fædd árið 1972. Þá kemur nafnið fyrir í einu manntali frá 1703–1920. Telst þessi ritháttur nafnsins því hafa unnið sér hefð í íslensku, sbr. 1. gr. reglnanna og það er samþykkt.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Veronica (kvk.) er samþykkt og skal það fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafnsins Veroníka.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum