Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 8/2024 Úrskurður 24. janúar 2024

Mál nr. 8/2024                      Eiginnafn:     Helgarut (kvk.)

Hinn 24. janúar 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 8/2024 en erindið barst nefndinni 22. janúar.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Ef litið er á nafnið Helgarut sem samsett nafn myndað úr nöfnunum Helga og Rut þá reynir á skilyrði nr. tvö og þrjú hér að ofan. Sem samsett nafn fer Helgarut (kvk.) gegn hefðbundnum nafnmyndunarreglum í íslensku. Fyrri liður þess er nafnið Helga, í aukaföllum Helgu. Ekki er hefð fyrir því að í samsettum orðum, sem mynduð eru af tveimur nafnorðum að fyrri liður samsetningarinnar beygist heldur aðeins sá síðari. Nafnið Helgarut (í eignarfalli Helgurutar) brýtur þannig í bág við íslenskt málkerfi. Annar möguleiki væri að fyrri liður væri óbreyttur í beygingu (sbr. eignarfallsmyndina Helgarutar). Sá möguleiki bryti einnig í bág við íslenskt málkerfi þar sem nefnifallsmyndir veikra kvenkynsorða (s.s. gata, lilja) mynda ekki fyrri lið í samsettum orðum; þar er notað eignarfall (s.s. götuljós, liljuvöndur). Eiginnafnið Helgarut (kvk.) fer gegn hefðbundnum nafnmyndunarreglum í íslensku. Þá getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls að rita tvö sjálfstæð eiginnöfn á borð við Helga og Rut sem eitt orð. Rithátturinn Helgarut er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og uppfyllir þ.a.l. ekki tilvitnað ákvæði laga um mannanöfn.

Til samanburðar vísast til úrskurðar mannanafnanefndar frá 25. september 2008 í máli nr. 56/2008, vegna umsóknar um nafnið Annalinda; til úrskurðar frá 4. febrúar 2010 í máli nr. 69/2009, vegna umsóknar um nafnið Liljarós; til úrskurðar frá 27. maí 2010 í máli nr. 40/2010, vegna umsóknar um nafnið Jónheiðar; til úrskurðar frá 21. september 2011 í máli nr. 69/2011, vegna umsóknar um nafnið Hannadís; til úrskurðar frá 3. október 2014 í máli nr. 58/2014, vegna umsóknar um nafnið Sveinnóli; til úrskurðar frá 3. júní 2016 í máli nr. 48/2016, vegna umsóknar um nafnið Olgalilja; til úrskurðar frá 22. maí 2019 í máli nr. 39/2019, vegna umsóknar um nafnið Ingadóra; til úrskurðar frá 14. janúar 2020 í máli nr. 3/2020, vegna umsóknar um nafnið Hannalísa; til úrskurðar frá 19. maí 2020 í máli nr. 32/2020, vegna umsóknar um nafnið Sigríðurjóna, og jafnframt til úrskurðar frá 1. júlí 2021 í máli nr. 58/2021, vegna umsóknar um nafnið Ólasteina. Þess má geta að nöfnin Annarósa og Annalísa sem eru á mannanafnaskrá voru samþykkt af mannanafnanefnd á þeim grunni að ekki væri um að ræða nöfn sem samsett væru úr íslenskum nöfnum heldur íslensk aðlögun á erlendri nafnmynd, sbr. t.d. nöfnin Annerose og Annelise á dönsku mannanafnaskránni.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Helgarut (kvk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum