Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 27/2024 Úrskurður 13. mars 2024

Mál nr. 27/2024                      Eiginnafn:     Snæfellsjökuls

                                                Millinafn:       Snæfellsjökuls

Hinn 13. mars 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2024 en erindið barst nefndinni 26. febrúar.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. tvö hér að ofan. Í athugasemdum um frumvarp til laga um mannanöfn frá 1995 segir að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þarna segir að skilyrðinu sé einkum ætlað að koma í veg fyrir að rótgrónum nöfnum sé breytt til horfs sem stríðir gegn hefð þeirra. Nöfn eins og Guðmund og Þorstein (í nefnifalli) eru því óheimil. Orðmyndin Snæfellsjökuls er eignarfallsmynd nafnsins Snæfellsjökull sem er þekkt nafn á jökli. Að nota Snæfellsjökuls í nefnifalli stríðir gegn hefð nafnsins Snæfellsjökull og er því ekki mögulegt að fallast á það sem eiginnafn.

Umsækjandi óskar þess til vara að nafnið verði samþykkt sem millinafn. Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:

  • millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annað hvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Snæfellsjökuls er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Snæfellsjökuls uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Snæfellsjökuls er hafnað.

Millinafnið Snæfellsjökuls er samþykkt.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum