Hoppa yfir valmynd

34 Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir

Umfang

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefna­sviðsins í heild á tímabilinu 2022–2024.

Heildarútgjöld 

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Framtíðarsýn málefnasviðsins er að hægt sé að bregðast við meiri háttar ófyrirséðum útgjöldum án þess að raska útgjaldaramma fjárlaga.

Meginmarkmið málefnasviðsins er að koma í veg fyrir að afla þurfi útgjaldaheimilda í fjár­aukalögum, að frávik frá fjárlögum verði sem minnst.

Fjármögnun

Útgjaldabreytingar málefnasviðsins skýrast fyrst og fremst af því að annars vegar er verið að bæta við fjárheimildum við almenna varasjóðinn í samræmi við áform um kerfislægan útgjaldavöxt og hins vegar er gerð breyting á fjárheimildum til samræmis við áætlun um afskrifaðar skattkröfur.

Fjárheimild málaefnasviðsins lækkar um 16,8 ma.kr. á tímabili fjármálaáætlunarinnar vegna breyttrar aðferðafræði við afskriftir skattkrafna. Undanfarin ár hefur Fjársýslan innleitt nýja aðferðafræði, í áföngum, sem miðar að því að kröfur séu ekki ofmetnar út frá líkum á því að þær innheimtist. Áætlanir gera ráð fyrir að kröfur og afskriftir þeirra verði að jafnaði minni í framtíðinni en þær hafa verið sögulega en eftir miklar afskriftir á tímabilinu 2018–2021 lækkuðu afskriftir í uppgjöri ársins 2022. Innleiðingarferli breyttra matsaðferða Fjársýslunnar er lokið og sérstök áhrif tengd aðgerðum í veirufaraldrinum að mestu leyti að baki. Horfur um þróun eftirstöðva og afskrifta eru því orðnar mun skýrari en við gerð fjármálaáætlunar fyrir ári og þykir tímabært að taka tillit til þess í afskriftahluta tekjuáætlunar. Afskriftir skatt­krafna hafa hvorki áhrif á sjóðstreymi né skuldir ríkissjóðs.

Undir málefnasviðið fellur almennur varasjóður en miðað er við að fjárheimildir sjóðsins nemi a.m.k. 1% af heildarfjárheimildum fjárlaga ár hvert. Samanborið við forsendur gildandi fjármálaáætlunar er dregið úr umfangi almenna varasjóðsins til þess að skapa svigrúm fyrir aukin útgjöld ríkissjóðs í tengslum við aðkomu að kjarasamningum á almennum markaði. Á fyrstu tveimur árum áætlunarinnar nemur þessi lækkun 10 ma.kr. hvort ár, á árinu 2027 nemur lækkunin 7 ma.kr. og 5 ma.kr. á síðustu tveimur árum áætlunarinnar. Til viðbótar þessu er fjárfestingarsvigrúm almenna varasjóðsins lækkað um samtals 20 ma.kr. á tímabilinu á móti samsvarandi hækkun á framlögum til Betri samgangna. Þrátt fyrir þessa breytingu er umfang almenna varasjóðsins vaxandi á tímabilinu í samræmi við aukna óvissu þegar litið er til lengri framtíðar og hækkar úr 1,2% af fjárheimildum á næsta ári í um 2% af fjárheimildum undir lok tímabilsins þegar frá eru taldar heimildir sem eru vistaðar þar tímabundið.

Undir almennum varasjóði eru heimildir vistaðar tímabundið til þess að fjármagna áhrif kjarasamninga opinberra starfsmanna sem nú eru í vinnslu en gert er ráð fyrir að þær heimildir verði færðar af almennum varasjóði síðar á árinu þegar samningar liggja fyrir. Þá er alls gert ráð fyrir að 2,2 ma.kr. verði varið á fyrstu tveimur árum áætlunarinnar til að fylgja eftir aðgerð­um sem ríkisstjórnin sammæltist um í málefnum útlendinga og 3,8 ma.kr. árin 2025–2027 vegna fjármögnunar gjaldfrjálsra skólamáltíða í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði. Gert er ráð fyrir að þessar heimildir verði nánar útfærðar í fjárlagafrumvarpi ársins 2025 og færðar á viðeigandi málefnasvið.

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Útgjaldarammi

 

34.1 Almennur varasjóður

Verkefni

Ráðstöfun úr almennum varasjóði og sértækum fjárráðstöfunum felur í sér að fjárveiting er millifærð til þess verkefnis þar sem kostnaður sem mæta á er gjaldfærður í ríkisreikningi.

Almennum varasjóði er ætlað að bregðast við útgjöldum sem eru tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg og ekki er unnt að bregðast við með öðrum hætti skv. 24. gr. laga nr. 123/2015, um opinber fjármál. Skal varasjóðurinn nema að lágmarki 1% af fjárheimildum fjárlaga samkvæmt sömu lagagrein.

Helstu áskoranir

Megintilgangur málefnasviðsins er að tryggja að í fjárlögum sé gert ráð fyrir svigrúmi til að bregðast við frávikum frá forsendum fjárlaga í launa- og verðlagsmálum sem upp kunna að koma á árinu og að mæta öðrum ófyrirséðum útgjöldum sem til falla og ekki verður komist hjá. Þannig er almennum varasjóði ætlað að styðja við það að rekstur málefnasviða og mála­flokka verði í samræmi við fjárheimildir ársins, jafnvel þótt til útgjalda geti komið sem ekki voru fyrirséð við ákvörðun fjárlaga.

Markmið og mælikvarðar

Markmið málaflokksins er að tryggja að til staðar séu fjárheimildir til að hægt sé að mæta útgjöldum vegna ófyrirséðra atvika og launa-, verðlags- og gengisþróunar umfram forsendur fjárlaga. Þetta á að styðja við að útgjöld málaflokka séu innan þeirra fjárheimilda sem þeim eru sett á fjárlögum og draga úr þörf fyrir að leita þurfi heimildar Alþingis fyrir ófyrirséðum útgjöldum í fjáraukalögum.

Markmið málaflokksins styður við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna nr. 10.4 um að tekin verði upp stefnumál, einkum í opinberum fjármálum.

Ekki er talin þörf á að setja sérstakan mælikvarða á málaflokkinn heldur er honum, eins og áður er vísað til, ætlað að mæta ófyrirséðum útgjöldum annarra málaflokka og þar með styðja við að mælikvarðar um afkomu þeirra og árangur náist.

34.2 Sértækar fjárráðstafanir

Verkefni

Sértækar fjárráðstafanir hafa tvíþætt hlutverk, annars vegar að fjármagna útgjöld sem fjármála- og efnahagsráðherra ákveður að efna til á grundvelli heimildargreinar fjárlaga, s.s. vegna kaupa á landareignum og fasteignum og hins vegar að fjármagna eða styðja fjárhagslega við einstaka atburði og verkefni sem upp koma á fjárlagaárinu samkvæmt ákvörðun ríkisstjórn­arinnar hverju sinni.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur umsjón með fjárheimildum málaflokksins en útgjaldatilefnin, sem ákveðið er að fjármagna úr honum, geta heyrt undir ábyrgðarsvið hvaða ráðuneytis sem er.

Helstu áskoranir

Fjárheimildir sem falla til sértækra fjárráðstafana eru ætlaðar til að færa ríkisstjórn möguleika á að takast á við sérstök verkefni sem ríkisstjórn ákveður að vinna að eða veita styrki til innan ársins.

Markmið og mælikvarðar

Markmið málaflokksins er að skapa svigrúm til að framfylgja aðgerðum sem fram koma í heimildargrein fjárlaga, s.s. til að kaupa fasteignir, skip og flugvélar eða aðrar eignir. Sömu­leiðis er markmið að ríkisstjórn geti mætt tímabundnum útgjaldatilefnum sem upp geta komið á fjárlagaári og talið er nauðsynlegt að sinna. Jafnframt að hægt sé að mæta ýmsum ófyrir­séðum útgjöldum af fyrrgreindum toga sem ekki teljast vera á ábyrgð einstakra ráðherra heldur ríkisstjórnarinnar allrar og verða ekki fjármögnuð úr varasjóðum annarra málaflokka.

34.3 Afskriftir skattkrafna

Verkefni

Um er að ræða fjárheimild á móti gjaldfærslu á beinum afskriftum krafna sem taldar eru sannanlega tapaðar, t.d. vegna gjaldþrota, og óbeinum afskriftum þar sem kröfur eru færðar niður um tiltekinn hluta sem reynslan hefur leitt í ljós að muni að líkindum ekki innheimtast.

Helstu áskoranir

Afskriftir skattkrafna eru færðar til gjalda í ríkisreikningi samkvæmt IPSAS-reiknings­skilastaðlinum en á þjóðhagsgrunni samkvæmt GFS-framsetningu eru þær teknar út úr gjalda­hliðinni og koma til lækkunar á viðeigandi sköttum á tekjuhliðinni. Enn fremur skal bent á að þótt afskrifaðar kröfur séu færðar til gjalda á þennan málaflokk í uppgjöri á rekstrargrunni hefur það ekki í för með sér greiðslur úr ríkissjóði. Fjárheimildir vegna afskrifaðra skattkrafna hafa ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs á þjóðhagsgrunni.

Markmið og mælikvarðar

Eðli málaflokksins er með þeim hætti að ekki verður fjallað sérstaklega um markmið og aðgerðir varðandi starfsemi hans. Í því sambandi er þó vísað í markmið um bætt skattskil í greinargerð um málaflokk 5.1 Skattar og innheimta.

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum