Hoppa yfir valmynd
16. júlí 2007 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 11/2007. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 16. júlí 2007

í máli nr. 11/2007:

Villi Valli ehf.

gegn

Húnaþingi vestra

Með bréfi, dags. 28. júní 2007, kærði Villi Valli ehf. þá ákvörðun Húnaþings vestra að bjóða út að nýju skólaakstur fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra skólaárin 2007/2008 til 2010/2011. Í kæru voru kröfur kæranda orðaðar með eftirfarandi hætti:

„1) Þess er krafist að felld verði úr gildi sú ákvörðun sveitarstjórnar Húnaþings vestra frá 14. júní 2007 um að bjóða skólaakstur fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra út að nýju.

2) Þess er krafist að Húnaþingi vestra verði gert að ganga til samninga við kæranda um skólaakstur á leiðum nr. 6 og 8 á grundvelli tilboða kæranda eftir útboð kærða í maí sl.”

3) Þess er krafist að sameiginlegt tilboð níu fyrrverandi skólabílstjóra dags. 30. maí 2007 í leiðir nr. 1-9 verði dæmt ógilt.

4) Þess er krafist að kærða verði gert að greiða kæranda kostnað við að setja fram þessa kæru skv. mati nefndarinnar.

5) Þess er krafist að ef nefndin fellst ekki á þá kröfu að Húnaþingi vestra verði gert að ganga til samninga við kæranda, sbr. 2) tölulið að þá láti nefndin upp skoðun á skaðbótaskyldu kærða gagnvart kæranda vegna umrædds útboðs.”

 

Kærða var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir við hana og koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni.

 

Með bréfi kæranda, sem barst nefndinni 6. júlí 2007, bætti kærandi eftirfarandi kröfu við kæru sína:

„Sbr. 96. grein laga nr. 84/2007 um opinber innkaup er þess krafist að stöðvað verði nýtt útboð Húnaþings vestra á skólaakstri sem auglýst var í Sjónaukanum þann 4. júlí s.l., þar til kærunefnd hefur úrskurðað í kæru Villa Valla ehf. á hendur Húnaþingi vestra dags. 29.06.2007.”

 

Kærða var kynnt viðbótin við kæruna og gefinn kostur á að gera athugasemdir við hana. Í bréfi kærða, dags. 11. júlí 2007, telur kærði „engar forsendur vera fyrir stöðvun á útboði skólaaksturs sbr. Kröfu Villa Valla ehf. dags. 5. júlí sl. eða fyrir kæru félagsins dags. 29. júní sl.”.

 

Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála til skoðunar hvort rétt þyki að stöðva samningsgerð í tengslum við útboðið.Endanlega verður leyst úr öðrum kröfum kærunnar síðar.

 

I.

Hinn 16. maí 2007 auglýsti kærði eftir tilboðum í skólaakstur grunnskólabarna í Húnaþingi vestra fyrir skólaárin 2007/2008 til 2010/2011. Akstrinum var skipt í tólf leiðir og var fyrirtækjum heimilt að bjóða í „heildarakstur eða einstakar leiðir, eina eða fleiri”. Í auglýsingunni sagði svo m.a.: „Sveitarstjórn áskilur sér allt að 12 daga frest til að vinna úr tilboðunum. Einnig áskilur sveitarstjórn sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.”

            Kærandi gerði tilboð í leiðir 6, 8, 10, 11 og 12. Fleiri tilboð bárust, m.a. sameiginleg tilboð frá níu bílstjórum í leiðir 1-9, en tilboð þeirra var með þeim fyrirvara að þau féllu öll úr gildi ef einu þeirra yrði hafnað.

            Á fundi byggðaráðs Húnaþings vestra hinn 4. júní 2007 var samþykkt að taka framangreindum sameiginlegum tilboðum bílstjóranna í leiðir 1-9 en tilboði Húnavirkis ehf. í leið 10. Tilboðum í leiðir 11 og 12 var hafnað. Skólastjóri Grunnskóla Húnaþings vestra gerði í kjölfarið samninga um skólaaksturinn, með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar Húnaþings vestra. Á fundi sveitarstjórnarinnar hinn 14. júní 2007 var ákveðið að hafna öllum tilboðum og bjóða skólaaksturinn út að nýju.

            Kærði hefur nú auglýst nýtt útboð á skólaakstri fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra og er frestur til að skila tilboðum til kl. 11:00 hinn 19. júlí 2007.

           

II.

Kærandi byggir stöðvunarkröfu sín á því að kærði hafi átt að taka lægsta tilboði í hverja leið fyrir sig þar sem ekki hafi komið fram aðrar valforsendur í útboðinu. Þá telur kærandi að þau tilboð sem níu bílstjórar gerðu í leiðir 1-9 hafi verið ógild vegna fyrivara í þeim um að höfnun á einu tilboði felldi þau öll úr gildi. Kærandi telur að önnur tilboð hafi verið gild og að engar forsendur hafi verið til að hafna öllum tilboðum heldur hafi kærða borið að meta tilboðin og taka því hagstæðasta í hverja leið fyrir sig. Kærandi telur að almennur og óskilgreindur fyrirvari í útboðsgögnum, um rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum, hafi enga þýðingu.

 

III.

Kærði telur mikilvægt að samningar í kjölfar útboðsins hafi ekki átt að taka gildi fyrr en með samþykkt kærða. Ástæða þess að kærði hafi hafnað öllum tilboðum hafi verið ábendingar um að hið sameiginlega tilboð níu bílstjóra í leiðir 1-9 stangaðist á við ákvæði samkeppnislaga og að útboðsgögn hafi ekki að öllu leyti verið í samræmi við staðalinn ÍST 30. Með því að bjóða skólaaksturinn út að nýju hafi kærði komið til móts við framangreindar ábendingar og nýtt sér rétt, sem komið hefði fram í auglýsingu og útboðsgögnum, um að kærða væri heimilt að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

           

IV.

Eins og kröfum og málatilbúnaði kæranda er háttað er ljóst að kærandi hyggst ná því fram að ákvörðun kærða um að hafna öllum tilboðum verði ógilt og kærða gert að semja við kæranda um skólaakstur á leiðum nr. 6 og 8 á grundvelli tilboða kæranda. Krafa kæranda um stöðvun hins nýja útboðs er þannig liður í því að tryggja að eldra útboðið haldi áfram og kærði velji úr tilboðum sem bárust í kjölfar eldra útboðsins en ekki þess nýja. Að öðru leyti hefur því ekki verið haldið fram að hið nýja útboð kærða um skólaakstur sé ólögmætt.

Það leiðir af meginreglum útboðs- og verktakaréttar að verkkaupi verður ekki gegn neitun sinni bundinn við að ganga til samninga við tiltekinn aðila kjósi hann að hætta við útboðið. Hins vegar tekur verkkaupi ávallt þá áhættu að verða skaðabótaskyldur gagnvart bjóðendum vegna slíkra ákvarðana. Með hliðsjón af því telur kærunefnd útboðsmála að ekki séu efni til að taka fram fyrir hendur kærða og knýja hann til að halda hinu eldra útboði áfram gegn vilja hans. Þar sem krafa um stöðvun hins nýja útboðs um skólaakstur er hluti af kröfu kæranda um að hinu eldra útboði verði framhaldið verður því að hafna kröfu kæranda um stöðvun útboðsins.

 

 

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Villa Valla ehf., um stöðvun á útboði Húnaþings vestra á skólaakstri fyrir Grunnskóla Húnaþings vestra er hafnað.

 

Reykjavík, 16. júlí 2007.

                                                               Páll Sigurðsson

                                                               Sigfús Jónsson

                                                               Stanley Pálsson

 

Rétt endurrit staðfestir,

Reykjavík, 16. júlí 2007.

 

 

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum