Hoppa yfir valmynd
11. febrúar 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 49/2007

Mánudaginn, 11. febrúar 2008

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 16. október 2007 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 8. október 2007.

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 23. júlí 2007 um að synja kæranda um fæðingarstyrk sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Ég hef fengið lægri fæðingastyrkinn vegna þess að ég náði ekki hámarks einingafjölda en tel mig hafa rétt á hærri greiðslunni vegna þess að ég gat ekki sótt skólann almennilega vegna veikinda tengt meðgöngunni. Ég var skráð í 13 einingar.

Ég tel mig hafa rétt á hærri fæðingastyrknum vegna þess að ég gat ekki alltaf mætt í skóla og er einnig með annað barn sem er í leikskóla og fæ bara X kr. mánaðarlega sem ég tel vera allt of lítið og ég kemst ekki af mánuðinn með þessar lágu greiðslur. Ég hefði átt rétt á sjúkradagpeningum hefði ég sótt um þá en fyrir mig var það óþarfi þar sem ég fékk hjálp frá félagsþjónustunni í sambandi við peningamál.“

 

Með bréfi, dagsettu 13. desember 2007, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs.

 

Greinargerð Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs er dagsett 20. desember 2007. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á greiðslu fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi.

Með umsókn, dags. 23. maí 2007, sótti kærandi um greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri í fullu námi í 6 mánuði vegna barnsfæðingar, 9. júlí 2007.

Með umsókn kæranda fylgdi vottorð vegna barnsfæðingar, dags. 4. júlí 2007, námsferilsyfirlit kæranda frá B-framhaldsskólanum, ódagsett. Fæðingarvottorð, dags. 29. október 2007. Auk þess bárust greiðslukvittanir frá TR fyrir tímabilið 24. maí – 30. júní 2007 og tvö bréf frá TR, bæði dags. 7. júní 2007. Þá lágu enn fremur fyrir við afgreiðslu umsóknar kæranda upplýsingar úr þjóðskrá Hagstofu Íslands.

Með bréfi Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs, dags. 6. júlí 2007, var kæranda synjað um greiðslu fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi. Var í bréfinu tiltekið að kærandi teldist ekki hafa stundað fullt nám í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir áætlaðan fæðingardag barns. Jafnframt var kæranda bent á að hún ætti rétt á greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri utan vinnumarkaðar.

Með tölvupósti til TR, dags. 20. desember, óskaði Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður eftir að upplýsingar yrðu gefnar frá hvaða tíma kærandi hafi verið afgreidd með sjúkradagpeninga og hvort hún hafi verið afgreidd sem námsmaður. Svar barst samdægurs þar sem fram kemur að kærandi hafi verið afgreidd með sjúkradagpeninga sem námsmaður frá 24. maí – 30. júní 2007.

Þann 20. desember var jafnframt óskað eftir að B-framhaldsskóli sendi nákvæmari staðfestingu á skólavist kæranda. Fax barst samdægurs um staðfestingu á skólavist, dags. 20. desember 2007.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns, rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur kemur fram að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 16. gr. eða undanþáguákvæði 17. gr. reglugerðarinnar. Í 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda fæddist 6. júlí 2007 og verður því, við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám samfellt í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins, að horfa til tímabilsins frá 6. júlí 2006 fram að fæðingardegi barnsins.

Samkvæmt námsferilsyfirliti frá B-framhaldsskóla, ódagsett, og staðfestingu á skólavist, dags. 20. desember 2007, stundaði kærandi nám við skólann á haustönn 2006 og vorönn 2007. Var kærandi skráður í 9 einingar á haustönn 2006 og lauk 2. Á vorönn var kærandi skráður í 14 einingar og lauk 11. Prófum á vorönn lauk 16. maí 2007.

Þegar um er að ræða nám við framhaldsskóla teljast 18 einingar á önn vera 100% nám og því teljast 13 – 18 einingar vera fullt nám samkvæmt lögum nr. 95/2000. Með hliðsjón af þeim gögnum sem fyrir liggja um námsframvindu kæranda lítur Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður svo á að þegar af þeirri ástæðu hafi kærandi ekki uppfyllt almenna skilyrðið um að hafa verið í fullu námi samfellt í a.m.k. 6 mánuði síðustu 12 mánuðina fyrir fæðingardag barns.

Með vísan til framangreinds telur Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóður að umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi hafi réttilega verið synjað með bréfi, dags. 6. júlí 2007 en að kærandi eigi þess í stað rétt á greiðslu fæðingarstyrks sem foreldri utan vinnumarkaðar.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 14. janúar 2008, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða varanlegt fóstur rétt til fæðingarstyrks. Fullt nám í skilningi laganna er skilgreint í 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sbr. 11. mgr. 19. gr. ffl.

Í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 segir að fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðarinnar teljist 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur.

Heimilt er að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þótt hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getað stundað nám á meðgöngu vegna heilsufarsástæðna skv. 2. mgr. 9. gr. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í nám skv. 1. mgr. 19. gr. reglugerðarinnar og fengið greidda sjúkradagpeninga, verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma eða hefði átt rétt á þeim fyrir umrætt tímabil samkvæmt lögum um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 19. gr reglugerðar nr. 1056/2004. Með heilsufarsástæðum skv. 2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar er átt við:

sjúkdóma sem upp koma vegna meðgöngu og valda óvinnufærni,

sjúkdóma, tímabundna eða langvarandi, sem versna á meðgöngu og valda óvinnufærni,

fyrirbyggjandi meðferð til að koma í veg fyrir fyrirburafæðingu eða til að vernda heilsu fósturs, enda valdi meðferðin óvinnufærni.

Kærandi ól barn 6. júlí 2007. Tólf mánaða viðmiðunartímabil skv. 19. gr. ffl. er því frá 6. júlí 2006 fram að fæðingu barns. Við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns skal líta til náms hennar við skóla á haustönn 2006 og á vorönn 2007. Kærandi stundaði nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands, hún var skráð í 9 einingar á haustönn 2007, en lauk tveimur einingum. Á vorönn var hún skráð í 14 einingar en lauk 11 einingum sbr. ódagsett námsferilsyfirlit frá skólanum. Við framhaldsskóla telst fullt nám vera 18 einingar á önn, með hliðsjón af 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 teljast 13-18 einingar á önn því vera fullt nám.

Samkvæmt framangreindu lauk kærandi hvorki fullu námi á haustönn 2006 né vorönn 2007. Kærandi telst því ekki uppfylla skilyrði um fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns sbr. 1. mgr. 19. gr. ffl. sbr. og 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004. Þá uppfyllir kærandi ekki undanþáguákvæði 19. gr. reglugerðarinnar þegar af þeirri ástæðu að hún var ekki skráð í fullt nám á haustönn 2006. Þá kemur ekki fram í gögnum málsins að kærandi hafi fengið greidda sjúkradagpeninga á meðan á námi hennar stóð eða átti rétt á þeim á þeim tíma.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóð um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsanni er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum