Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2006 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 55/2005

Þriðjudaginn, 28. apríl 2006

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 6. desember 2005 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dagsett 2. desember 2005.

Kærð var ákvörðun Tryggingarstofnunar ríkisins sem kæranda var tilkynnt með bréfi dagsettu 9. nóvember 2005 um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Í lögum um fæðingarorlof segir að sýna þurfi fram á viðunandi námsárangur en þó sé heimilt að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 14. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getað stundað nám á meðgöngu vegna heilsufarsástæðna. þetta get ég sýnt fram á með vottorði læknis.

Mér er tjáð af starfsfólki Tryggingastofnunar þegar ég leitaði nánari skýringar á synjuninni að ég hefði þurft að sækja um sjúkradagpeninga þegar ég veiktist, þá ætti ég nú fullan rétt á orlofi. Ekki hvarflaði að mér að leita til Tryggingastofnunar í vor þótt ég missti af einu prófi sökum veikinda. Hefði ég vitað af slíkum reglum fyrir hálfu ári síðan væri staðan önnur en sú að þurfa að sjá fram á að lifa af rúmum X krónum á mánuði næsta hálfa árið. Mér þykir ansi hart að tapa niður sjálfsögðum réttindum mínum vegna þess eins að ég var þunguð á óheppilegum tíma með tilliti til próftíma. Hefði ég verið á vinnumarkaði en ekki í námi hefðu tveggja vikna veikindi engin áhrif haft.

Ég vil að lokum ítreka að ég stundaði námið að fullu alla önnina og tók seinni tvö prófin í maí þrátt fyrir að vera ekki orðin hraust. Mér skilst að betra hefði verið fyrir mig að sleppa öllum prófum og sækja um sjúkradagpeninga. Ég gat ómögulega vitað þetta þá auk þess sem var efst í huga að klára námskeiðin en ekki að tryggja mér fæðingarorlofið hálfu ári seinna.“

 

Með bréfi, dagsettu 29. desember 2005, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 20. janúar 2006. Í greinargerðinni segir:

„Kærð er synjun á fæðingarstyrk námsmanna skv. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004.

Með umsókn, dags. 14. október 2005, sem móttekin var 25. október 2005, sótti kærandi um fæðingarstyrk námsmanna í sex mánuði frá áætluðum fæðingardegi barns hennar, sem var 24. nóvember 2005.

Umsókninni fylgdu vottorð vegna væntanlegrar barnsfæðingar, dags. 21. október 2004 og námsferilsyfirlit B-háskóla, dags. 21. október 2005.

Með bréfi lífeyristryggingasviðs, dags. 9. nóvember 2005, var umsókn kæranda um fæðingarstyrk námsmanna synjað á þeim grundvelli að hún uppfyllti ekki skilyrði um fullt nám. Tekið var fram að í stað fæðingarstyrks námsmanna yrði kæranda greiddur fæðingarstyrkur, sem foreldri utan vinnumarkaðar og henni sent greiðsluyfirlit þess efnis, dags. sama dag.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar sem hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns rétt á fæðingarstyrk. Skilgreiningu á fullu námi er að finna í 1. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Þar kemur fram að fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof teljist vera 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almanna menntakerfis á Íslandi eða á háskólastigi, í a.m.k. sex mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns. Enn fremur að heimilt sé að meta sambærilegt nám í öðrum ríkjum, enda uppfylli foreldri lögheimilisskilyrði skv. 16. gr. eða undanþáguákvæði 17. gr. reglugerðarinnar. Í 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um að leggja skuli fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Enn fremur að heimilt sé að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Barn kæranda fæddist þann 28. nóvember 2005 og verður því, við mat á því hvort kærandi hafi stundað fullt nám í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barnsins, að líta hvort tveggja til náms hennar á vorönn og haustönn 2005.

Samkvæmt námsferlisyfirliti B-háskólastundaði kærandi nám við skólann bæði á vorönn og haustönn 2005. Á vorönninni var kærandi upphaflega skráð í 27 einingar, sagði hún sig úr 16 þeirra, lauk prófi í 7 einingum og skilaði vottorði vegna námskeiðs til 4 eininga. Á haustönninni var kærandi upphaflega skráð í 14 einingar, sagði sig úr 4 þeirra og var enn skráð til náms í 10 einingum við útgáfu námsferilsyfirlitsins.

Þegar um er að ræða nám við B-háskóla teljast 15 einingar á önn vera 100% nám og því teljast 11 - 15 einingar vera fullt nám samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof. Með hliðsjón af framangreindu taldi lífeyristryggingasvið nám kæranda á vorönn 2005 ekki ná því að vera fullt nám í skilningi laga um fæðingar- og foreldraorlof og að þar með uppfyllti hún ekki skilyrðið um að hafa verið í fullu námi í a.m.k. 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barns hennar. Lífeyristryggingasvið leitaði því ekki nánari upplýsinga um nám kæranda á haustönn 2005, þó ekki væri upplýst hvort kærandi hefði á fyrri hluta haustannar 2005 stundað nám í þeim 4 einingum sem hún hafði sagt sig úr við útgáfu námsferilsyfirlitsins né hvenær kærandi hefði sagt sig úr þeim einingum.

Nokkrar undanþáguheimildir er að finna frá skilyrðinu um fullt nám í sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Þannig er samkvæmt 8. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þrátt fyrir að skilyrði um samfellt nám í a.m.k. sex mánuði fyrir fæðingu barns sé ekki uppfyllt hafi foreldri verið í samfelldu starfi í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fram til þess að námið hófst. Samkvæmt 9. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000, sbr. 9. gr. laga nr. 90/2004, er heimilt að greiða foreldri fæðingarstyrk sem námsmanni þegar foreldri hefur lokið a.m.k. einnar annar námi skv. 1. mgr. 19. gr. og hefur síðan verið samfellt á vinnumarkaði. Skilyrði er að nám og starf hafi verið samfellt í a.m.k. sex mánuði. Þá segir í 19. gr. reglugerðar um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks nr. 1056/2004 að heimilt sé að greiða móður fæðingarstyrk sem námsmanni þó að hún fullnægi ekki skilyrðum 2. mgr. 18. gr. um viðunandi námsárangur og/eða ástundun enda hafi hún ekki getið stundað nám á meðgöngu vegna skilgreindra heilsufarsástæðna. Skal hún sannanlega hafa verið skráð í fullt nám og fengið greidda sjúkradagpeninga, verið á biðtíma eftir dagpeningum á þeim tíma eða hefði átt rétt á þeim fyrir umrætt tímabil samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá er heimilt að veita undanþágu frá skilyrðinu um fullt nám þegar foreldri á eftir minna en sem nemur 75% af námi á síðustu önn í námi og ljóst er að viðkomandi er að ljúka ákveðinni prófgráðu, sbr. 20. gr. reglugerðar nr. 1056/2004.

Við afgreiðslu umsóknar kæranda var ekki talið að nokkur þessara undanþáguheimilda, frá skilyrðinu um að foreldri skuli hafa verið í 75–100% námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, ætti við um aðstæður kæranda.

Með vísan til alls framangreinds telur Tryggingastofnun ríkisins að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um greiðslu fæðingarstyrks námsmanna samkvæmt 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dagsettu 30. janúar 2006, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi dagsettu 31. janúar 2006, þar sem kærandi ítrekar röksemdir sínar.

 

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofmála aflaði frekari upplýsinga um nám kæranda á síðustu 12 mánuðum fyrir fæðingu barnsins. Með tölvupósti dags. 31. mars 2006 staðfesti D, prófessor í E-fræði við B-háskóla að kærandi væri skráð í námskeiðið E-fræði 1 á vormisseri 2006 og að hún hefði próftökurétt frá vormisseri 2005, verkefnum hefði verið skilað á vormisseri 2005 og því ekki krafist mætingar né verkefnaskila á vormisseri 2006.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kæra varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni.

Samkvæmt 1. mgr. 19. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2004, eiga foreldrar í fullu námi rétt til fæðingarstyrks. Fullt nám í skilningi laganna er skilgreint í 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, sbr. 7. mgr. 19. gr. ffl.

Í 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar segir að fullt nám í skilningi ffl. og reglugerðarinnar teljist 75-100% samfellt nám í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns. Sama eigi við um 75-100% nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Samkvæmt 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi skóla um að foreldri hafi verið skráð í 75-100% nám og hafi sýnt viðunandi námsárangur. Þá er heimilt að taka tillit til ástundunar náms á þeirri önn er barn fæðist.

Kærandi ól barn 28. nóvember 2005. Tólf mánaða viðmiðunartímabil samkvæmt framangreindu er því frá 28. nóvember 2004 fram að fæðingu barns.

Hjá B-háskóla er almennt miðað við að 100% nám sé 15 einingar á misseri. Kærandi lauk 14 einingum á haustmisseri 2004. Á vormisseri 2005 var kærandi skráð í 27 einingar en sagði sig úr 16 einingum. Lauk hún prófi í 7 einingum og skilaði læknisvottorði vegna E-fræði 1 sem metinn er til 4 eininga. Á haustmisseri 2005 var kærandi skráð í 14 einingar en sagði sig úr 4 einingum. Staðfest er að kærandi er skráð í próf í E-fræði 1 á vormisseri 2006, sem hún gat ekki mætt í á vormisseri 2005 vegna veikinda. Í ljósi ástundunar og verkefnaskila kæranda í því fagi á vormisseri 2005 var ekki gerð krafa um mætingu eða skil á verkefnum á vormisseri 2006.

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála telur nægilega staðfest að kærandi hafi stundað fullt nám á vorönn 2005 þar sem staðfest er að hún lauk 7 einingum og ástundaði nám og skilaði verkefnum í 4 eininga fagi. Þá telur nefndin að taka beri tillit til náms hennar í lok haustannar 2004. Samkvæmt því uppfyllir kærandi skilyrði 1. mgr. 19. gr. ffl., sbr. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2004 sbr. 1. og 2. mgr. 18. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um að hafa verið í fullu námi í a.m.k. sex mánuði á síðustu tólf mánuðum fyrir fæðingu barns.

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er hafnað. Greiða ber kæranda fæðingarstyrk sem námsmanni.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A um greiðslu fæðingarstyrks sem námsmanni er hafnað. Greiða ber kæranda fæðingarstyrk sem námsmanni.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum