Hoppa yfir valmynd
16. desember 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 50/2004

Fimmtudaginn, 16. desember 2004

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir, lögfræðingur.

Þann 16. nóvember 2004 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 15. nóvember 2004.

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 24. júní 2004 um að synja kæranda um fæðingarstyrk sem námsmanni.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) skal kæra berast úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Samkvæmt gögnum málsins var hin kærða ákvörðun tilkynnt kæranda með bréfi frá Tryggingastofnun ríkisins, dagsettu 24. júní 2004. Kæran barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir að kærufrestur var liðinn eða þann 16. nóvember 2004.

Í 4. mgr. 6. gr. ffl. er um málsmeðferð vísað til stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 1. mgr. 28. gr. þeirra laga segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:
   
1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
   
2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Þar sem hvorki verður séð að sérstakar ástæður leiði til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi komið of seint fram, né að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin fyrir, kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að vísa beri kærunni frá, þar sem hún er of seint fram komin.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kæru A er vísað frá þar sem hún er of seint fram komin.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum