Hoppa yfir valmynd
30. nóvember 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 31/2004

Þriðjudaginn, 30. nóvember 2004

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

  

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 23. júní 2004 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 22.júní 2004. Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, um greiðslur úr Fæðingaorlofssjóði, sem tilkynnt var með bréfi dagsettu 27. maí 2004.

 

Í rökstuðningi með kæru segir meðal annars:

„Í 13. gr. laga nr. 95/2000, 22. maí stendur skýrum orðum: „Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skal nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs.“

Í 7 gr. laga nr. 95/2000, 22. maí er orðið „fæðingar- og foreldraorlof“ útskýrt sem „leyfi frá launuðum störfum“. Því verður upphafsdagur fæðingarorlofs einstaklings að miðast við þann dag, sem hann eða hún hefur töku leyfis frá launuðu starfi sínu. Fram að upphafsdegi fæðingarorlofs hlýtur sami einstaklingur því sannanlega að teljast vera í launuðu starfi en ekki í leyfi frá starfi sínu.

Hvenær réttur til töku fæðingarorlofs stofnast hefur ekki með upphafsdag fæðingarorlofs að gera annað en það að upphafsdagur fæðingarorlofs skal vera á eða eftir fæðingardag barns og fyrir 18 mánaða aldur þess, sbr. 1. mgr. laga nr. 95/2000, 22. maí. Undantekning á þó við um konur skv. 2. mgr. 8. gr. laga nr. 95/2000, 22. maí.

Fram kemur í 1. mgr. 8. gr. laga nr. 95/2000, 22. maí að foreldrar eiga hvor um sig sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að 3 mánuði. Vegna þessa er ekki hægt að tala um sameiginlegt fæðingarorlof foreldra, enda er slíkt hugtak hvergi útskýrt í lögunum.

Af ofansögðu má ljóst vera að faðir hefur frelsi til að haga upphafsdegi fæðingarorlofs síns hvenær sem er á 18 mánaða tímabili eftir fæðingu barns síns, enda eru hagsmunir barnsins og fjölskyldunnar best tryggðir á þann hátt. Í þessu getur ekki talist mismunun eftir kynferði skv. lögum nr. 96/2000, 22. maí.

Sbr. 2. mgr. 22. gr. laga nr. 96/2000, 22. maí telst það ekki mismunun milli kynja að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar og barnsburðar. Að því gefnu er á engan hátt að sjá að ákvæði laga nr. 95/2000, 22. maí brjóti í bága við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.“

 

Með bréfi, dags. 5. júlí 2004, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins.

 

Greinargerð lífeyristryggingasviðs Tryggingastofnunar ríkisins er dagsett 20. ágúst 2004. Í greinargerðinni segir:

„Kærður er útreikningur á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og óskar kærandi eftir því að viðmiðunartímabil tekjuútreiknings hans verði annað en litið var til við afgreiðslu umsóknar hans.

Með umsókn, dags. 5. maí 2003, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í 3 mánuði frá 1. september 2004 að telja. Umsóknin varðar barn sem fætt er 29. júní 2003.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við 12 mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Í greinargerð með lagafrumvarpinu er tekið fram að hér sé átt við almanaksmánuði.

Við afgreiðslu lífeyristryggingasviðs á umsókn kæranda var miðað við 80% meðaltekna hans á tímabilinu frá 1. apríl 2002 til og með mars 2003, en barn hans fæddist í júní 2003, eins og að framan greinir.

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hefur, í máli nr. 42/2001, kveðið úr um það hvað skuli teljast upphafsdagur fæðingarorlofs, sbr. 2. og 3. mgr. 8. gr. ffl. Er þar miðað við að upphaf orlofs sé í síðasta lagi við fæðingu barns. Samkvæmt því skal útreikningur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði miðast við það tímamark, jafnvel þótt annað foreldrið nýti rétt sinn til töku orlofs síðar.

Lífeyristryggingasvið telur að ágreiningsefni í máli þessu sé sambærilegt því sem um ræddi í máli nr. 42/2001 og vísar af þeim sökum til niðurstöðu þess máls og rökstuðnings fyrir þeirri niðurstöðu.“

 

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 26. ágúst 2004, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslur úr Fæðingaorlofssjóði.

Afgreiðsla málsins hefur dregist nokkuð meðal annars vegna anna hjá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.

Samkvæmt 2. mgr. 8. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.) stofnast réttur til fæðingarorlofs við fæðingu barns. Ákvæðið veitir konu þó heimild til þess að hefja töku fæðingarorlofs allt að einum mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag sem staðfestur skal með læknisvottorði. Í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof kemur fram varðandi þá undantekningu að ekki verði litið á þetta sem mismunun, þar sem það teljist ekki mismunun að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar, sbr. 3. gr. laga nr. 28/1991 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla (nú 22. gr. laga nr. 96/2000).

Upphafsdagur fæðingarorlofs foreldra er skilgreindur í 2. mgr. 8. gr. ffl. Það færi í bága við 1. mgr. 22. gr. laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, þar sem hvers kyns mismunun eftir kynjum er lýst óheimil, ef karlar gætu sjálfir ákvarðað upphafsdag fæðingarorlofs.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl. skal mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur tveimur mánuðum fyrir upphafsdag fæðingarorlofs, sbr. og 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 909/2000 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Fram kemur í athugasemdum með frumvarpi til laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof að miða skuli við almanaksmánuði við útreikning á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Lögin heimila ekki að vikið sé frá reglu 2. mgr. 13. gr. laganna.

Samkvæmt meginreglunni í 2. mgr. 8. gr. ffl. var upphafsdagur fæðingarorlofs kæranda fæðingardagur barnsins, þann 29. júní 2003. Viðmiðunartímabil útreiknings greiðslna til kæranda úr Fæðingarorlofssjóði er samkvæmt því frá apríl 2002 til og með mars 2003 sbr. 2. mgr. 13. gr. ffl.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslur í fæðingarorlofi staðfest.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslu til A í fæðingarorlofi er staðfest.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum