Hoppa yfir valmynd
26. október 2004 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 37/2003

Þriðjudaginn, 26. október 2004

 

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurðuðu Guðný Björnsdóttir hdl., Ósk Ingvarsdóttir læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur. 

Þann 25. maí 2003 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 25. maí 2003. 

Kærð var ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins sem tilkynnt var kæranda með bréfi dags. 7. maí 2003 þar sem kæranda er synjað um greiðslu úr Fæðingaorlofssjóði.

 

Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar:

Í greinargerð Tryggingastofnun ríkisins dagsett 3. september 2003 er fallist á kröfur kæranda. Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála framsendi kæranda greinargerðina og hefur nefndin ítrekað óskað eftir afstöðu hans til framhalds málsins. Svör hafa ekki borist frá kæranda.

Með hliðsjón af því sem að framan greinir vísar úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála málinu frá þar sem fallist hefur verið á kröfur kæranda.

 

ÚRSKURÐARORÐ: 

Kæru A er vísað frá þar sem fallist hefur verið á kröfur kæranda.

 

 

Guðný Björnsdóttir

Heiða Gestsdóttir

Ósk Ingvarsdóttir



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum