Hoppa yfir valmynd
22. september 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 38/2015

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 22. september 2015 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 38/2015.

1. Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 26. febrúar 2015, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum þann 25. febrúar 2015 tekið þá ákvörðun að kæranda yrði gert að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í samræmi við 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um dvöl sína erlendis. Kærandi var jafnframt krafinn um ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 13. janúar 2015 til 18. janúar 2015 skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi kærði ákvörðun Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 16. apríl 2015. Vinnumálastofnun telur að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 5. desember 2014 og fékk greitt til 30. janúar 2015. Með bréfi, dags. 2. febrúar 2015, var kæranda tilkynnt um að stofnunin hefði upplýsingar um að hann hefði verið staddur erlendis á sama tíma og hann hefði þegið greiðslur atvinnuleysisbóta. Var kæranda gefinn sjö daga frestur til að skila inn skýringum vegna þessa. Skýringarbréf kæranda barst 4. febrúar 2015. Með bréfi, dags. 26. febrúar 2015, var kæranda tilkynnt um viðurlagaákvörðun stofnunarinnar.

Kærandi heldur því fram í kæru að honum hafi ekki verið kunnugt um að hann mætti ekki fara til útlanda. Hann hafi farið á B í sjálfboðavinnu fyrir C dagana 13. til 18. janúar 2015. C hafi borgað fyrir hann flugfarið, gistingu og uppihald. Þetta hafi verið launalaus vinnuferð sem hann hefði ekki farið í hefði hann vitað að það væri betra að vera heima vegna launanna.  

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 22. maí 2015, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingarskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingarskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið sé á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Þá segir í greinargerðinni að ljóst sé að kærandi hafi verið staddur erlendis á tímabilinu frá 13. janúar til 18. janúar 2015. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit.  Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um utanlandsferð sína, líkt og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Á kynningarfundum Vinnumálastofnunar sé vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysistrygginga. Þessar upplýsingar sé einnig að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er hafi haft bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Kærandi eigi því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Athygli sé vakin á því að kærandi hafi verið afskráður af atvinnuleysisskrá þann 30. janúar 2015 og hafi ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög því ekki komið til áhrifa. Sæki kærandi um greiðslu atvinnuleysistrygginga á ný eftir að hafa starfað í a.m.k. hálfan mánuð falli viðurlögin niður, sbr. 3. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. 

Þá beri kæranda að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hann hafi verið staddur erlendis í samræmi við 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, samtals að fjárhæð 22.702 krónur, að meðtöldu 15% álagi.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 29. maí 2015, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Athugasemdir bárust ekki.

2. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi. Fyrir liggur að kærandi var staddur erlendis á tímabilinu frá 13. janúar til 18. janúar 2015, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrir fram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili.

Af hálfu kæranda kemur fram að hann hafi ekki vitað að hann mætti ekki fara til útlanda samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða felst ekki á þessar skýringar kæranda enda kemur fram í samskiptasögu kæranda hjá Vinnumálastofnun að hann fékk þær upplýsingar í tölvupósti þann 8. desember 2014 að ef hann færi til útlanda í orlof yrði hann að tilkynna um það fyrirfram. Auk þess eru veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á heimasíðu Vinnumálastofnunar sem kæranda var í lófa lagið að kynna sér.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fortakslaust en í því felst að hvorki Vinnumálastofnun né úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða getur tekið ákvörðun um vægari viðurlög í máli kæranda en ákvæðið felur í sér.

Í 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um leiðréttingar á atvinnuleysisbótum og hljóðar 2. mgr. lagagreinarinnar svo:

Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ber kæranda einnig að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hann uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að endugreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann hlaut á meðan hann var erlendis, þ.e. fyrir tímabilið frá 13. til 18. janúar 2015, auk 15% álags eða samtals 22.702 krónur.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest. 

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 26. febrúar 2015 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði og endurgreiðslu ofgreiddra bóta, er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum