Hoppa yfir valmynd
16. desember 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 35/2014

Úrskurður

 Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 16. desember 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 35/2014.

1.      Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 17. febrúar 2014, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum 13. febrúar 2014 fjallað um rétt hennar til atvinnuleysisbóta. Tekin hafi verið sú ákvörðun að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir  vegna dvalar hennar erlendis skv. 1. mgr., 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Þá hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur tímabilið 27. janúar til 31. janúar 2014 á meðan hún hafi verið erlendis sem verði innheimtar skv. 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 24. mars 2014. Hún óskar þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. september 2013. Vinnumálastofnun bárust upplýsingar í febrúar 2014 um að kærandi hefði verið stödd erlendis þann mánuð. Kæranda var sent bréf 6. febrúar 2014 og henni veittur sjö daga frestur til þess að koma skýringum vegna málsins á framfæri. Í skýringum kæranda sem bárust í bréfi 10. febrúar 2014 kom fram að hún hefði farið til útlanda vegna þess að móðir hennar hafi verið veik. meðfylgjandi voru farseðlar og samkvæmt þeim var kærandi stödd erlendis á tímabilinu 27. janúar til 6. febrúar 2014.

Kærandi skilaði inn frekari skýringum 20. febrúar 2014 um ástæður þess að hún hefði ekki tilkynnt fyrirfram um ferð sína til útlanda. Fram kom að hún hefði lent í bílslysi á leiðinni til B til þess að tilkynna um ferð sína og í kjölfarið hafi hún ekki haft tök á að tilkynna um ferðina og gleymt því. Bréfinu fylgdi lögregluskýrsla vegna slyssins. Mál kæranda var í kjölfarið endurupptekið og á fundi Vinnumálastofnunar 5. mars 2014 var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest.

 Kærandi óskaði eftir endurupptöku málsins með nýju skýringarbréfi, dags. 7. mars 2014, þar sem fram kom að hún vissi að hún hefði gert mistök. Málið var endurupptekið að nýju 14. mars 2013 og var fyrri ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest.

Í kæru kæranda gerir kærandi grein fyrir því að á leið hennar til B 24. janúar 2014 hafi hún lent í bílslysi, þar sem hún hafi slasast. Í kjölfar slyssins hafi hún tekið sterk verkjalyf og verið í hvíld og þar af leiðandi hafi farist fyrir að tilkynna um ferð hennar til C. Eftir flugið heim hafi hún verið veik í baki vegna slyssins og hafi því komið með farseðlana til Vinnumálastofnunar 10. febrúar 2014. Þar hafi henni verið sagt að allt væri í lagi.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 12. maí 2014, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysisbóta þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Fyrir liggi í máli þessu að kærandi hafi verið stödd erlendis á tímabilinu 27. janúar til 6. febrúar 2014. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um utanlandsferð sína, líkt og henni hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi þó áður tilkynnt um ferð sína til útlanda fyrirfram þannig að það sé ljóst að hún hafi vitneskju um þá skyldu sína. Í skýringarbréfi kæranda, dags. 7. mars 2014, viðurkenni hún enn fremur að hún hafi gert mistök. Þá hafi Vinnumálastofnun borist upplýsingar um ferð kæranda til útlanda og sent henni bréf þess efnis áður en hún hafi haft samband við stofnunina þar að lútandi.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 15. maí 2014, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir þann 30. sama mánaðar. Frekari athugasemdir kæranda bárust með bréfi hans, dags. 29. maí 2014. Þar kemur einkum fram að D, sem vinni hjá B, hafi ekkert skráð 10. febrúar 2014 um slysið sem kærandi hafði lent í.

2.      Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi. Fyrir liggur að kærandi var stödd erlendis á tímabilinu frá 27. janúar til 6. febrúar 2014, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fortakslaust en í því felst að hvorki Vinnumálastofnun né úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða getur tekið ákvörðun um vægari viðurlög í máli kæranda en ákvæðið felur í sér. Ekki verður fallist á að það sem kærandi hefur fært fram sér til málsbóta, þ.e. að sú staðreynd að hún lenti í bílslysi á leið sinni til þess að tilkynna um ferðalagið, hafi nein áhrif á hina kærðu ákvörðun þar sem kærandi hafði tækifæri til þess að tilkynna um ferð sína með öðrum hætti en að koma á skrifstofu Vinnumálastofnunar.

Með vísan til framangreinds verður hin kærða ákvörðun staðfest.


 Úrskurðarorð

 Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 13. febrúar 2014 í máli A um að fella niður bótarétt hennar frá og með 13. febrúar 2014 í tvo mánuði er staðfest.

 Brynhildur Georgsdóttir, formaður  

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum