Hoppa yfir valmynd
14. október 2014 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 8/2014

Úrskurður

 Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 14. október 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 8/2014.

1.      Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 13. janúar 2014, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A að stofnunin hefði á fundi sínum 13. janúar 2014 fjallað um rétt hans til atvinnuleysisbóta. Tekin hafi verið sú ákvörðun að fella niður bótarétt hans frá og með 10. janúar 2014 í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Þá hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur sem verði innheimtar skv. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 22. janúar 2014. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 22. nóvember 2012.

Kærandi staðfesti atvinnuleit sína 25. nóvember 2013 með rafrænum hætti frá erlendri IP-tölu. Vinnumálastofnun sendi honum því bréf, dags. 5. desember 2013, og tilkynnti honum að stofnunin hefði upplýsingar um að hann hefði verið staddur erlendis í nóvember 2013 samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda var veittur sjö daga frestur til þess að koma skýringum á framfæri, en engar athugasemdir bárust frá honum. Vinnumálastofnun tók þá ákvörðun 17. desember 2013 að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur þar sem umbeðnir farseðlar og skýringar vegna hinnar ótilkynntu ferðar höfðu ekki borist. Kærandi mætti í viðtal hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar 6. janúar 2014 og skilaði farseðlum vegna ferðar sinnar til Bandaríkjanna í nóvember. Málið var í kjölfarið tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun 10. janúar 2014 þar sem hin kærða ákvörðun var tekin.

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru að honum hafi verið boðið í ferð til Bandaríkjanna í átta daga til þess að heimsækja ættingja. Hafi honum láðst að tilkynna ferð sína til Vinnumálastofnunar. Hann hafi skráð sig í atvinnuleit í gegnum tölvu í Bandaríkjunum og hafi IP-talan sagt til um hvar hann væri staddur. Daginn sem athugasemd Vinnumálastofnunar hafi komið hafi hann átt fund með B þar sem kærandi hafi skilað flugfarseðlum. Í samskiptaskrá kæranda hjá Vinnumálastofnun 6. janúar segir að hann hafi skilað inn flugfarseðlum vegna boðsferðar til C og hafi hann komið hreint og beint fram og skráð sig þaðan.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 11. mars 2014, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysisbóta þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið sé á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Fyrir liggi í máli þessu að kærandi hafi verið staddur í Bandaríkjunum á tímabilinu 18. nóvember til 26. nóvember 2013. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um utanlandsferð sína, líkt og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Á kynningarfundum Vinnumálastofnunar sé vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysisbóta. Þessar upplýsingar liggi einnig fyrir á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. mars 2014, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 27. sama mánaðar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.      Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, en hún er svohljóðandi:

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi staddur erlendis á tímabilinu frá 18. til 26. nóvember 2013, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili.

Ekki verður dregin í efa sú staðhæfing kæranda að honum hafi ekki verið kunnugt um það að hann mætti ekki sem atvinnuleitandi fara út fyrir landsteinana án þess að tilkynna það til Vinnumálastofnunar. Hann getur eigi að síður sem atvinnuleitandi á atvinnuleysisbótum ekki borið fyrir sig vankunnáttu á lögum um atvinnuleysistryggingar. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sína um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fortakslaust en í því felst að hvorki Vinnumálastofnun né úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða getur tekið ákvörðun um vægari viðurlög í máli kæranda en ákvæðið felur í sér.

Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann þáði á meðan hann var staddur erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, að fjárhæð samtals 34.182 kr.

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 Úrskurðarorð

 Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 13. janúar 2014 í máli A um að hann skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 18. nóvember til 26. nóvember 2013, að fjárhæð samtals 34.182 kr. er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum