Hoppa yfir valmynd
20. ágúst 2013 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 158/2012.

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 20. ágúst 2013 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 158/2012.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 21. júní 2012, var kæranda, A, tilkynnt að stofnunin hefði á fundi sínum 15. júní 2012 fjallað um rétt kæranda til atvinnuleysisbóta. Tekin hafi verið ákvörðun um að hafna beiðni hans um rafræna staðfestingu atvinnuleitar, sbr. 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistyggingar, nr. 54/2006, og greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt, þar sem ekki hafi verið séð að um mistök stofnunarinnar hafi verið að ræða. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kæru, dags. 21. september 2012. Vinnumálastofnun telur að hin kærða ákvörðun hafi verið rétt.

Kærandi sótti um greiðslu atvinnuleysisbóta 23. janúar 2012 með rafrænni skráningu. Kærandi starfaði áður sem sjálfstætt starfandi í skilningi b-liðar 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi fór á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun 5. mars 2012 þar sem hann var upplýstur um réttindi sín og skyldur til þess að geta átt tilkall til atvinnuleysisbóta. Umsókn kæranda var samþykkt 7. mars 2012.

 

Af hálfu kæranda kemur fram í kæru, dags. 21. september 2012, að hann hafi fengið leiðbeiningar frá Vinnumálstofnun um að hann þyrfti að stimpla sig hjá stofnuninni mánaðarlega og stimplunin þurfi að eiga sér stað 20.–25. hvers mánaðar. Kærandi greinir frá því að honum hafi tekist að skrá sig í febrúar og mars en sökum lélegrar tölvukunnáttu hafi hann fengið eiginkonu sína til að stimpla sig í apríl 2012. Þá greinir kærandi frá því að eiginkona hans hafi talið að hún hefði stimplað hann með fullnægjandi hætti en þegar hún hafi ætlað að stimpla hann aftur í maí hafi hún ekki komist inn í kerfið. Kærandi hafi í kjölfarið farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar og fengið þau svör að hann hafi verið afskráður hjá stofnuninni þar sem hann hefði ekki stimplað sig í apríl. Kærandi greinir frá því að hann hafi fengið vinnu um miðjan júní 2012. Kærandi fer fram á að fá afturvirkar greiðslur fyrir tímabilið frá febrúar fram í miðjan júní 2012.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 12. október 2012, kemur fram að í samræmi við tilkynningu kæranda til stofnunarinnar um vinnu hans sem verktaki hafi hann verið skráður af atvinnuleysisskrá dagana 8.–19. mars 2012. Endurkoma kæranda á atvinnuleysisskrá hafi verið samþykkt 23. mars 2012 í kjölfar þess að hann hafi skilað inn umbeðnum skjölum vegna verktakavinnunnar 22. mars 2012.

 

Kærandi hafi ekki staðfest atvinnuleit sína til stofnunarinnar í apríl og maí 2012 líkt og honum bar skylda til, sbr. 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og því hafi kærandi ekki fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá og með 23. mars 2012.

Vinnumálastofnun bendir á að af samskiptasögu stofnunarinnar við kæranda megi ráða að frá því að kærandi skilaði inn umbeðnum skjölum vegna verktakavinnu sinnar 22. mars 2012 hafi hann næst haft samband við stofnunina þegar bréf frá kæranda hafi borist 2. júní 2012. Í bréfinu komi fram ástæður þess að hann staðfesti ekki atvinnuleit sína og jafnframt óski hann eftir afturvirkum greiðslum atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 23. mars til 31. maí 2012. Í skýringarbréfinu greini kærandi frá því að hann hafi talið sig hafa staðfest atvinnuleit sína á heimasíðu stofnunarinnar með fullnægjandi hætti í mars og apríl. Þá greini kærandi frá því að honum hafi líklegast borist 25. apríl 2012 tilkynning um að hann hafi verið tekinn af atvinnuleysisskrá og hafi hann í kjölfarið haft samband við Vinnumálastofnun þar sem honum hafi verið gefnar þær upplýsingar að senda skýringarbréf til stofnunarinnar varðandi ástæður þess að hann hafi ekki staðfest atvinnuleit sína með tilskildum hætti. Þá hafi kæranda verið tilkynnt um hina kærðu ákvörðun með bréfi, dags. 21. júní 2012.

 

Í greinargerðinni kemur einnig fram að mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að neita kæranda um greiðslu atvinnuleysistrygginga fyrir tímabilið 23. mars til 31. maí 2012 þar sem kærandi staðfesti ekki atvinnuleit sína eins og honum hafi verið skylt að gera skv. 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum í greinargerð sem fylgdi frumvarpi því er varð að lögum nr. 134/2009 um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að mikilvægt sé að festa framangreinda framkvæmd stofnunarinnar enn frekar í sessi innan atvinnuleysistryggingakerfisins og undirstrika þannig að eftir að umsókn hins tryggða um atvinnuleysisbætur hefur verið samþykkt beri honum skylda til að hafa samband við stofnunina með reglulegum hætti samkvæmt því fyrirkomulagi sem stofnunin ákveður. Lagabreytingin hafi tekið gildi 1. janúar 2010.

 

Vinnumálastofnun bendir einnig á að sá háttur sé hafður á að atvinnuleitanda sé gert að staðfesta að hann sé virkur í atvinnuleit mánaðarlega hjá stofnuninni. Atvinnuleitendur geti hringt í þjónustufulltrúa, skráð sig rafrænt á heimasíðu stofnunarinnar eða mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar til þess að staðfesta atvinnuleit sína. Í ljósi aukinna umsvifa þjónustuskrifstofa stofnunarinnar er atvinnuleitendum almennt ráðlagt að staðfesta sig rafrænt á Netinu.

Vinnumálastofnun greinir frá því að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta rafrænt 23. janúar 2012 og hafi hin rafræna skráning verið staðfest 6. febrúar 2012. Með undirskrift sinni staðfesti kærandi að hafa fengið upplýsingar um að staðfesta skuli atvinnuleit mánaðarlega hjá stofnuninni símleiðis, á heimasíðu stofnunarinnar eða með komu á þjónustuskrifstofu. Enn fremur séu á heimasíðu stofnunarinnar upplýsingar fyrir umsækjendur atvinnuleysisbóta. Sé þar meðal annars að finna ítarlegar upplýsingar um staðfestingu á atvinnuleit. Komi þar skýrt fram að staðfesta skuli atvinnuleit 20.–25. hvers mánaðar og að mögulegt sé að skrá staðfestingu á heimasíðu stofnunarinnar. Vinnumálastofnun tekur sérstaklega fram að staðfesting á atvinnuleit á heimasíðu stofnunarinnar sé með einfaldasta móti og fari hún í raun fram með einum smelli.

 

Vinnumálastofnun telur að af atvikum málsins sé ljóst að kærandi hafi verið nægilega upplýstur um skyldur sínar gagnvart Vinnumálastofnun, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Jafnframt sé það mat stofnunarinnar að það sé alfarið á ábyrgð atvinnuleitanda að staðfesting á atvinnuleit fari fram með áskildum hætti. Í þeim tilvikum sem atvinnuleitendum hafi láðst að staðfesta atvinnuleit sína hafi verið litið til þess hvort viðkomandi hafi verið í samskiptum við stofnunina á þeim tíma og metið það til ígildis staðfestingar á atvinnuleit. Af samskiptasögu stofnunarinnar við kæranda megi ráða að á tímabilinu 23. mars til 31. maí 2012 hafi kærandi ekki haft samband við Vinnumálastofnun og af þeim sökum liggi ekki fyrir staðfesting á atvinnuleysi kæranda á tímabilinu.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 16. október 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 30. október 2012. Athugasemdir kæranda bárust með bréfi, dags. 28. október 2012.

 

Í athugasemdum kæranda, dags. 28. október 2012, kemur meðal annars fram að hann hafi verið atvinnulaus í fimm til sex mánuði árið 2012. Hann hafi einungis fengið atvinnuleysisbætur fyrir hluta þess tíma en honum hafi verið synjað um atvinnuleysisbætur að hluta vegna lítilsháttar hnökra í framkvæmdaratriðum. Kærandi greinir frá því að hann hafi haft samband við Vinnumálastofnun í kringum 25. apríl 2012 þar sem honum hafi verið ráðlagt að skrifa bréf til stofnunarinnar og því sé það ekki rétt sem komi fram af hálfu Vinnumálastofnunar að hann hafi ekki haft samband við Vinnumálastofnun fyrr en 2. júní 2012.

Með bréfum úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. nóvember 2012 og 12. ágúst 2013, var kærandi látinn vita um tafir á afgreiðslu málsins vegna gríðarlegs fjölda kærumála hjá úrskurðarnefndinni.

 

2.

Niðurstaða

 

Í 6. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hefur verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum, hafa reglulega samband við Vinnumálastofnun eftir nánari fyrirkomulagi sem stofnunin ákveður. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar er að finna fyrirmæli um að hinum tryggða beri að staðfesta atvinnuleit á tímabilinu 20.–25. hvers mánaðar, hvort sem er í gegnum síma, á heimasíðu stofnunarinnar eða með komu á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Upplýsingar þessar eru einnig aðgengilegar á umsókn um atvinnuleysisbætur og umsækjendum er einnig leiðbeint um þessa skyldu á kynningarfundum og í kynningarbæklingi.

 

Kærandi hefur skilað þeim skýringum inn til Vinnumálastofnunar með bréfi, dags. 2. júní 2012, að vegna vankunnáttu hans á tölvur hafi konan hans séð um að skrá hann rafrænt en það hafi misfarist.

 

Samkvæmt upplýsingum í samskiptaskrá Vinnumálastofnunar við kæranda kemur fram að kærandi hafi sótt kynningarfund 5. mars 2012 en þar er farið hafi verið yfir þær reglur sem atvinnuleitendur þurfa að fara eftir til þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Kærandi staðfesti ekki atvinnuleit sína líkt honum bar að gera og á þar af leiðandi ekki rétt greiðslu atvinnuleysisbóta afturvirkt. Er hin kærða ákvörðun frá 15. júní 2012 staðfest.

 

 

Úr­skurðar­orð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 15. júní 2012 þess efnis að A eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum frá 23. mars til 31. maí 2012 er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir,

for­maður

 

 

 

Hulda Rós Rúriksdóttir                     Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum