Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 166/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 13. nóvember 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 166/2011.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 28. nóvember 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann sama dag fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Umsóknin var samþykkt en með vísan til starfsloka hjá fyrirtækinu B, var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í þrjá mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 18. október 2011. Vinnumálastofnun tók ákvörðun þessa á grundvelli 1. mgr. 54. gr., sbr. 56. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með kæru móttekinni 5. desember 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur 10. september 2010. Hann hóf störf hjá B 12. september 2011. Kærandi lét Vinnumálastofnun vita af starfinu 19. september og var hann í kjölfarið afskráður af atvinnuleysisskrá.

 

Hinn 18. október 2011 sótti kærandi aftur um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun. Ásamt umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur fylgdi vinnuveitendavottorð frá B. Samkvæmt vottorðinu starfaði kærandi hjá B á tímabilinu frá 12. september til 10. október 2011 í 100% starfshlutfalli. Í vottorðinu kemur fram að ástæða starfslokanna hafi verið eigin uppsögn kæranda.

 

Með bréfi, dags. 7. nóvember 2011, óskaði Vinnumálastofnun eftir skriflegri afstöðu kæranda á ástæðum uppsagnar hans. Vinnumálastofnun bárust skýringar frá kæranda 10. nóvember 2011. Mál kæranda var tekið upp á fundi Vinnumálastofnunar þann 28. nóvember 2011 og var það mat stofnunarinnar að skýringar kæranda á ástæðum starfsloka teldust ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með bréfi, dags. 28. nóvember 2011, var kæranda tilkynnt um þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að samþykkja umsókn hans en með vísan til starfsloka hjá B var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í þrjá mánuði sem hann hefði ella fengið bætur fyrir, sbr. 1. mgr. 54. og 56. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinumarkaðsaðgerða, dags. 19. janúar 2012, segir að mál þetta varði 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um áhrif þess ef starfi er sagt upp án gildra ástæðna. Vísað er til þess að í frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

 

Segir Vinnumálastofnun að í athugasemdum við 1. mgr. 1. gr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar komi meðal annars fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða aðstæður sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum sem séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar er að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veita lögin þeim fjárhagslegt úrræði og ber að gera ríkar kröfur til þeirra sem segja upp störfum sínum, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

 

Vinnumálastofnun telur ljóst að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá B. Ágreiningur snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hefur orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafa fá tilvik verið talin falla þar undir. Vinnumálastofnun vísar til skýringa kæranda til stofnunarinnar og í kæru þar sem kærandi segir að hann hafi talið að hann hefði haft heimild til að minnka við sig vinnu hjá B á meðan hann væri að klára meirapróf. Svo hafi hins vegar ekki verið og vinnuveitandi hafi talið að kærandi hefði látið sig hverfa frá vinnu. Í kæru kemur fram að hann hafi verið tilneyddur til að hætta störfum þar sem hann hefði misst húsnæði sitt í C í kjölfar andláts móður kærustu hans. Hann hafi því flutt til D.

 

Í ljósi d- og e-liðar 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar fellst Vinnumálastofnun ekki á að vegalengd frá vinnustað kæranda hafi verið næg ástæða fyrir uppsögn í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að kæranda hafi mátt vera ljóst að með því að segja starfi sínu lausu á þeim tímum sem nú eru, gæti verið erfiðleikum bundið fyrir hann að komast í annað starf. Þá fellst Vinnumálastofnun ekki heldur á að aðrar ástæður sem kærandi hefur fært fram í málinu geti talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli ákvæðisins.

 

Vinnumálastofnun vísar enn fremur til 1. mgr. 56. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem fjallað er um ítrekunaráhrif fyrri ákvarðana um biðtíma. Kemur þar meðal annars fram að sá sem áður hefur sætt biðtíma skv. 54. eða 55. gr. eða viðurlögum skv. 57.‒59. gr. og sækir um atvinnuleysisbætur eftir að hafa verið í starfi í skemmri tíma en 24 mánuði og sagt því starfi upp er hann gegndi síðast án gildra ástæðna skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir.

 

Vinnumálastofnun upplýsir að kærandi hafi áður fengið viðurlög í formi tveggja mánaða biðtíma þar sem hann sagði áður upp starfi sínu hjá E. Þar sem nú sé um að ræða viðurlagaákvörðun í annað skipti á sama bótatímabili kemur hin seinni viðurlagaákvörðun til ítrekunar hinni fyrri, sbr. 1. mgr. 56. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða Vinnumálastofnunar að greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda skuli fyrst hefjast þegar hann hefur verið skráður án bóta í þrjá mánuði.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. janúar 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 8. febrúar 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 27. mars 2012, var kærandi látinn vita um tafir á afgreiðslu málsins vegna gríðarlegs fjölda kærumála hjá úrskurðarnefndinni.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

 

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

 

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

 

Í 1. mgr. 56. gr., laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 19. gr. laga nr. 134/2009, er fjallað um ítrekunaráhrif fyrri ákvarðana um biðtíma og er hún svohljóðandi:

 

Sá sem áður hefur sætt biðtíma skv. 54. eða 55. gr. eða viðurlögum skv. 57.–59. gr. og sækir að nýju um atvinnuleysisbætur eftir að hafa verið í starfi í skemmri tíma en 24 mánuði og sagt því starfi upp er hann gegndi síðast án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku seinni umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama á við um þann sem hefur misst starfið af ástæðum sem hann á sjálfur sök á eða hætt námi án gildra ástæðna.

 

Kærandi sagði sjálfur upp störfum sínum hjá B, án þess að vera með annað starf í hendi. Með vísan til framanritaðs og röksemda sem færðar hafa verið fram fyrir hinni kærðu ákvörðun af hálfu Vinnumálastofnunar, er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Um ítrekun var að ræða þar sem kærandi hafði hætt í starfi hjá E. í mars árið 2008. Með vísan til framanritaðs ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í þrjá mánuði.

 


 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 28. nóvember 2011 um niðurfellingu bótaréttar A í þrjá mánuði er staðfest.

 

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúríksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum