Hoppa yfir valmynd
9. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 175/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A í máli nr. 175/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 12. júlí 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hann verið staddur erlendis frá 20. maí til 30. maí 2010 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að þar sem hann hafi látið hjá líða að veita upplýsingar um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, hafi stofnunin tekið ákvörðun um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði sem ella hefði verið greiddar bætur fyrir frá degi ákvörðunar. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 8. september 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 28. október 2009 og fékk greiddar bætur í samræmi við bótarétt sinn.

Vinnumálastofnun barst rafræn staðfesting á atvinnuleit á kennitölu kæranda frá Spáni þann 24. maí 2010. Í kjölfarið sendi Vinnumálastofnun kæranda bréf þann 9. júní 2010 þar sem óskað var eftir skýringum á dvöl hans erlendis. Mál kæranda var tekið fyrir á fundi stofnunarinnar þann 28. júní 2010. Þar sem engin gögn höfðu borist frá kæranda voru greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans stöðvaðar. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda ákvörðun stofnunarinnar með bréfi, dags. 5. júlí 2010. Þann 5. júlí 2010 varð starfsmanni Vinnumálastofnunar ljóst að kærandi hafði skilað umbeðnum gögnum ásamt maka sínum sem hafði fengið sams konar bréf frá stofnuninni. Fyrir lágu því bókunarupplýsingar ferðaskrifstofu þar sem fram kemur að kærandi hafi ásamt fjölskyldu sinni verið staddur erlendis frá 20. maí til 30. maí 2010.

Mál kæranda var því tekið fyrir að nýju á fundi Vinnumálastofnunar þann 9. júlí 2010. Í kjölfarið var kæranda tilkynnt með bréfi stofnunarinnar, dags. 12. júlí 2010, að Vinnumálastofnun hefði tekið þá ákvörðun, með vísan til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, að fella niður greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans í tvo mánuði frá degi ákvörðunar.

Í kæru sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 8 september 2010, segir kærandi að hann hafi farið til útlanda með fjölskylduna en að hann hafi ekki vitað að honum bæri að tilkynna það til Vinnumálastofnunar. Um leið og hann hafi fengið bréf Vinnumálastofnunar, hafi hann og maki hans sem fengið hafi sams konar bréf frá stofnuninni veitt allar þær upplýsingar sem beðið hafi verið um og beðist afsökunar á því að hafa ekki veitt þær upplýsingar áður en fjölskyldan fór í þá ferð sem um ræðir. Kærandi segist hafa fengið þær upplýsingar hjá Vinnumálastofnun á Akureyri eftir að hann fékk fyrsta bréf Vinnumálastofnunar varðandi dvöl hans erlendis, að hann þyrfti engar áhyggjur af þessu að hafa. Kærandi segir að honum hafi verið sagt að ef hann myndi veita allar þær upplýsingar sem stofnunin færi fram á og gerði vel grein fyrir ferðinni yrði þetta allt í lagi. Kærandi kveðst hafa verið upplýstur um að hann fengi ekki greiddar atvinnuleysisbætur fyrir þá tíu daga sem hann hafi verið staddur erlendis, sem honum þykir eðlilegt, en hann segir að ekki hafi verið rætt um önnur möguleg viðurlög eins og biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærandi bendir einnig á að svipting bótaréttar hans og maka hans í tvo mánuði hafi haft verulega alvarlegar fjárhagslegar afleiðingar fyrir hann og fjölskyldu hans.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 3. maí 2011, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segir að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Vinnumálastofnun bendir á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða.

Vinnumálastofnun telur í ljós leitt að kærandi hafi verið staddur erlendis á tímabilinu frá 20. maí 2010 til 30. maí 2010.

Vinnumálastofnun áréttar að í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram um þessa ferð sína til útlanda, eins og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar til þeirra skýringa sem kæranda færir fram í kæru sinni, dags. 8. september 2010, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þar sem hann segist ekki hafa vitað að tilkynna þyrfti utanlandsferðir til Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun segir að margsinnis hafi verið vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi. Vinnumálastofnun bendir á að einu undanþágur frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sé að finna í VII. kafla laganna. Bent er á að sérstök athygli sé vakin á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim sem hugi að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit, sé bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag.

Fram kemur af hálfu Vinnumálastofnunar að það sé eindregin afstaða stofnunarinnar að eftirlitsaðgerðum stofnunarinnar verði ekki jafnað við tilkynningu frá atvinnuleitanda og telur stofnunin að í ljósi 9. gr. og 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verði að gera greinarmun á þeim sem láta sjálfir vita um ferðir sínar og þeim sem ekki láta sjálfir vita um ferðir sínar, en stofnuninni berast þær upplýsingar með öðrum leiðum.

Fram kemur að það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, þann 12. júlí 2010, sbr. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Niðurstaða Vinnumálastofnunar er því að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi, 12. júlí 2010, sbr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Niðurstaða Vinnumálastofnunar er einnig að kærandi fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma sem kærandi uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 9. maí 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 23. maí 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

 Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma ea viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur staðfest að hann var staddur erlendis frá 20. maí til 30. maí 2010, en hann tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að honum hafi ekki verið kunnugt um að atvinnuleitendum beri skylda til að tilkynna Vinnumálastofnun um utanlandsferðir fyrirfram. Engum gögnum er til að dreifa sem styðja þessa fullyrðingu. Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um þessi atriði á kynningarfundum stofnunarinnar. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna. Að auki ber kæranda að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann þáði á meðan hann var staddur erlendis og uppfyllti ekki skilyrði um greiðslu atvinnuleysistrygginga, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 12. júlí 2010 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði og endurgreiðslu atvinnuleysisbóta fyrir tímabilið 20. maí til 30. maí 2010 er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum