Hoppa yfir valmynd
26. maí 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 168/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 26. maí 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 168/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 27. júlí 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 23. júlí 2010 fjallað um fjarveru hans á boðuðum fundi þann 13. júlí 2010. Vegna fjarveru kæranda var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði frá og með degi ákvörðunar, þ.e. 23. júlí 2010, sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir með vísan til 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi mótteknu 1. september 2010. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 7. mars 2009. Hann var með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 6. júlí 2010, boðaður til fundar á stofnuninni þann 13. júlí 2010. Bréfið var sent á lögheimili kæranda að B-götu 153 í sveitarfélaginu C en það heimilisfang hafði hann tilkynnt Vinnumálastofnun sem aðsetur sitt. Kærandi mætti ekki til fundarins og boðaði ekki forföll. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 14. júlí 2010, var honum tilkynnt að fjarvera hans á fyrrgreindum fundi gæfi stofnuninni tilefni til að telja hann ekki lengur í virkri atvinnuleit, skv. 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og var honum, í samræmi við 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, gefinn kostur á að gefa skýringar á fjarveru sinni. Þann 19. júlí 2010 bárust skýringar frá kæranda í tölvubréfi. Þar kom fram að hann fái póstinn sinn til móður sinnar sem hafi farið til D-lands um miðjan júní og sett póstinn í bið. Hann hafi ekki vitað af þessu og fengið póstinn 16. júlí 2010. Skýringar kæranda voru ekki teknar gildar og var hin kærða ákvörðun tekin þann 23. júlí 2010 eins og fram hefur komið.

Af hálfu kæranda kemur fram að hann hafi fengið póstinn heim til móður sinnar sem hafi farið í frí til D-lands yfir sumarið. Hún hafi sett póstinn í biðpóst. Kærandi kveðst hafa fengið póstinn sinn viku eftir boðaðan fund, hann hafi strax hringt og látið vita í gegnum tölvupóst.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 23. mars 2011, er vísað til 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, um heimild stofnunarinnar til að boða einstaklinga sem eru tryggðir til stofnunarinnar. Bent er á að í athugasemdum um 4. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 134/2009 um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar segi: „Gert er ráð fyrir að stofnunin boði atvinnuleitendur til sín með sannanlegum hætti enda lagt til að það geti leitt til missis bóta skv. XI. kafla laganna láti atvinnuleitandi hjá líða að sinna þessari boðun, sbr. 21. gr. frumvarps þessa. Með sannanlegum hætti er átt við bréf á lögheimili hlutaðeigandi. Jafnframt er gert ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst er lögheimili viðkomandi enda þykir þetta mikilvægur liður í eftirliti stofnunarinnar með því að þeir sem fá greiddar atvinnuleysisbætur séu í virkri atvinnuleit.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Í greinargerð er fylgdi fyrrgreindu frumvarpi því er varð að lögum nr. 134/2009 komi fram að sömu viðurlög skuli eiga við í þeim tilvikum þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað og þegar atvinnuleitendur séu boðaðir til stofnunarinnar til að kanna hvort hann uppfylli enn skilyrði laganna. Þá sé sérstaklega tekið fram að bréf á lögheimili hlutaðeigandi sé sannanleg boðun í skilningi laganna. Það sé eindregin afstaða Vinnumálastofnunar að bregðist atvinnuleitandi skyldu sinni, skuli það leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í málinu sé ljóst að Vinnumálastofnun sendi kæranda boðunarbréf á lögheimili hans. Í skýringum sínum til stofnunarinnar segist kærandi ekki hafa fengið boðun á fund eftirlitsdeildar Vinnumálastofnunar fyrr en 16. júlí 2010. Í bréfi kæranda komi fram að móðir hans hafi farið til D-lands og óskað eftir biðpósti á meðan hún dvaldist erlendis. Af þeim sökum hafi boðun stofnunarinnar ekki borist kæranda í tæka tíð.

Það sé grundvallarskilyrði þess að unnt sé að aðstoða umsækjanda um atvinnuleysisbætur við að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitandi sinni þeim boðunum og ábendingum sem sannanlega séu send með viðurkenndum hætti. Verði ekki fallist á það að atvinnuleit kæranda sé háð veru annarra fjölskyldumeðlima hans á landinu. Vinnumálastofnun líti svo á að það teljist liður í virkri atvinnuleit að upplýsa stofnunina um þær breytingar sem verði á högum atvinnuleitenda, hafi þær breytingar bein áhrif á getu atvinnuleitandans til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og sinna viðtölum sem stofnunin boði til með sannanlegum hætti, sbr. 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Af fyrirliggjandi gögnum sé ljóst að kærandi var boðaður til fundar hjá eftirlitsdeild Vinnumálastofnunar með sannanlegum hætti. Í ljósi þess að rík skylda hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum og mætingar á boðaða fundi stofnunarinnar, sé það mat Vinnumálastofnunar að með fjarveru sinni hafi kærandi brugðist skyldum sínum skv. 3. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. og 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 31. mars 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 14. apríl 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. a-lið 21. gr. laga nr. 134/22009, en hún er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í athugasemdum við 58. gr. með frumvarpi til laga atvinnuleysistryggingar kemur fram að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Sé litið svo á að hinum tryggðu sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist þeir þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er virk atvinnuleit skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Til að geta talist vera í virkri atvinnuleit þarf umsækjandi að hafa vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, sbr. g-lið 14. gr. laganna. Ekki er gert ráð fyrir undanþágum frá þessari skyldu, en gera verður ráð fyrir því að til slíkrar þátttöku sé boðað með eðlilegum hætti og kæranda almennt gert mögulegt að taka þátt í slíkum aðgerðum. Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. b-lið 4. gr. laga nr. 134/22009, að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunna að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum. Skal hinn tryggði þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Kærandi var boðaður til fundar á Vinnumálastofnun þann 13. júlí 2010 með bréfi, dags. 6. júlí 2010, sem var sent á lögheimili kæranda. Kærandi mætti ekki á fundinn. Aðspurður gaf hann þær skýringar að pósturinn hans fari heim til móður hans sem hafi farið erlendis og sett póstinn í bið.

Þær kröfur eru gerðar til þeirra er þiggja atvinnuleysisbætur að þeir veiti Vinnumálastofnun upplýsingar um sína hagi og breytingar á þeim, þannig að stofnunin geti aðstoðað þá við að fá starf við hæfi og gefið þeim kost á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum. Þær skýringar sem kærandi hefur gefið á fjarveru sinni á boðuðum fundi hjá Vinnumálastofnun réttlæta ekki fjarveru hans á fundinum. Með fjarveru sinni brást kærandi skyldum sínum skv. 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og slíkt leiðir til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar er staðfest.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 23. júlí 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum