Hoppa yfir valmynd
9. ágúst 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 201/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 9. ágúst 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 201/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 2. september 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 31. ágúst 2010 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 3. ágúst 2010. Vinnumálastofnun samþykkti umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, en með vísan til starfsloka hjá fyrirtækinu X banka var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í 40 daga sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá 3. ágúst 2010, með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 20. október 2010. Kærandi krefst þess að henni verði greiddar tekjutengdar atvinnuleysisbætur án biðtíma frá skráningardegi, 3. ágúst 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 3. ágúst 2010. Í vottorði vinnuveitanda, X banka, dags. 7. júlí 2010, er ástæða starfsloka tilgreind sem eigin uppsögn kæranda. Með bréfi, dags. 12. ágúst 2010, óskaði Vinnumálastofnun eftir skriflegum athugasemdum frá kæranda. Sökum þess hvernig starfslokum kæranda var háttað, var kærandi beðin um að færa fram skýringar á uppsögn sinni. Með bréfi, dags. 18. ágúst 2010, bárust Vinnumálastofnun skýringar frá kæranda.

Kærandi tilgreinir í skýringarbréfi sínu til Vinnumálastofnunar og í kæru ástæður starfsloka sem óánægju með starfsumhverfi og launakjör. Telur kærandi að fyrirtækið hafi látið hjá líða að bregðast við stórauknum fjölda verkefna á vinnustaðnum í kjölfar bankahrunsins með gríðarlega miklu álagi á starfsfólkið. Ekkert hafi verið gert fyrir fólkið sem vann í bankanum nema kröfur um lengri vinnudag og vinna á laugardögum. Þetta hafi verið álagsvinna á lágmarkslaunum. Einnig telur kærandi sig hafa sætt launamisrétti sem hún fékk ekki leiðréttingu á þrátt fyrir að eftir því hafi verið leitað hjá yfirmönnum. Telur kærandi að hið mikla álag á vinnustaðnum og hin óréttlátu launakjör hafi réttlætt eigin uppsögn hennar á starfi hjá X banka. Kærandi telur sig því eiga rétt á greiðslu atvinnuleysistrygginga með tekjutengingu, án biðtíma frá skráningardegi, 3. ágúst 2010.

Samkvæmt greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 29. mars 2011, er það mat stofnunarinnar að skýringar kæranda á ástæðum starfsloka teljist ekki gildar í skilningi 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Vinnumálastofnun vísar til þess að í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Með hliðsjón af því sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf er ekki í boði.

Segir Vinnumálastofnun að í athugasemdum við 1. mgr. 1. gr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar segi meðal annars að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður sem liggja að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum sem séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan yrði matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Vinnumálastofnun áréttar að tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir eru og misst hafa fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veita lögin þeim fjárhagslegt úrræði og ber að gera ríkar kröfur til þeirra sem segja upp störfum sínum um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda á almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Þyki Vinnumálastofnun ljóst að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu þann 31. júlí 2010. Stofnunin telji að ágreiningur snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis. Hefur orðalagið „gildar ástæður“ verið túlkað þröngt og hafa fá tilvik verið talin falla þar undir. Vinnumálastofnun vísar til þess að í skýringarbréfi kæranda til Vinnumálastofnunar komi meðal annars fram að kærandi hafi sagt upp störfum vegna óánægju með launakjör og starfsumhverfi. Kærandi hafi óskað eftir launahækkun en yfirmenn hafi ekki orðið við þeirri beiðni. Einnig hafi álag á vinnustað margfaldast. Vinnumálastofnun telur að kæranda hafi mátt vera það ljóst að með því að segja starfi sínu lausu gæti verið erfiðleikum bundið fyrir hana að komast í aðra vinnu. Það er mat Vinnumálastofnunar að ágreiningur milli kæranda og vinnuveitanda um launakjör og aðstæður á vinnustað teljist ekki gildar ástæður í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 1. apríl 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 15. apríl 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 17. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur. Í skilningi 1. mgr. 54. gr. er orðalagið „gildar ástæður“ skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.

Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Að sögn kæranda voru ástæður starfsloka hennar óánægja með starfsumhverfi og launakjör. Hún sagði vinnuveitanda sinn hafa látið hjá líða að bregðast við stórauknum fjölda verkefna og miklu álagi á starfsfólkið. Kröfur hafi verið gerðar um lengri vinnudag og vinnu á laugardögum. Þetta hafi verið álagsvinna á lágmarkslaunum. Þá nefndi kærandi launamisrétti sem hún hafi ekki fengið leiðrétt þrátt fyrir að hafa leitað eftir því. Hún telur hið mikla álag á vinnustaðnum og hin óréttlátu launakjör hafa réttlætt uppsögn hennar.

Það er alvarlegt mál að segja starfi sínu lausu og verða án atvinnutekna án þess að vera með annað starf í hendi. Því gera lög um atvinnuleysistryggingar ráð fyrir því að ekki sé afsakanlegt að segja starfi upp sínu og þiggja í framhaldinu atvinnuleysisbætur nema fyrir uppsögn séu gildar ástæður. Í samræmi við það verður að gera þá kröfu að launamenn sem telja sig ekki geta gegnt starfi sínu áfram fullreyni úrræði til úrbóta áður en þeir grípa til þess að segja starfi sínu lausu og sækja í kjölfarið um atvinnuleysisbætur.

Ástæður kæranda fyrir uppsögn lúta að stöðu hennar á vinnustaðnum. Hafi hún verið óánægð í starfi sínu bar henni að leita allra ráða til að lagfæra það sem ábótavant var áður en hún sagði starfi sínu lausu. Þannig verður að gera þá kröfu til starfsmanna að þeir nýti sér tiltæk úrræði, svo sem að leita til trúnaðarmanns stéttarfélags skv. 10. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Í stað þess að grípa til úrræðis af því tagi kaus kærandi að segja starfi sínu lausu án þess að hafa annað starf í hendi.

Með vísan til framanritaðs og röksemda sem færðar hafa verið fram fyrir hinni kærðu ákvörðun af hálfu Vinnumálastofnunar, er það mat úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að ástæður kæranda fyrir uppsögn á starfi sínu hafi ekki verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ber því að staðfesta ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bótaréttar í tvo mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 31. ágúst 2010 um niðurfellingu bótaréttar A í tvo mánuði er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum