Hoppa yfir valmynd
1. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 89/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 1. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 89/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2011, ákvað stofnunin að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A. Ástæðan var sú að kærandi uppfyllti ekki skilyrði bráðabirgðaákvæðis VI í lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem hún taldist ekki sjálfstætt starfandi skv. b-lið 3. gr. sömu laga. Kærandi hafði áunnið sér rétt til atvinnuleysistrygginga skv. 15. gr. laganna sem launamaður. Í nefndu bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2011, segir að fram komi í umsóknargögnum kæranda að hún hefði nýverið opnað rekstur á eigin kennitölu. Rekstur samhliða atvinnuleysisbótum sé ekki leyfilegur nema samkvæmt bráðabirgðaákvæði VI. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða vegna þessarar ákvörðunar, dags. 28. júní 2011 og mótt. 30. júní 2011. Af því tilefni óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu Vinnumálastofnunar til málsins með bréfi dagsettu 30. júní 2011.

Í bréfi Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar, dags. 15. júlí 2011, kemur fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda sé ákvörðun í máli hennar frá 24. mars 2011. Hafi henni, með bréfi dagsettu þann sama dag, verið leiðbeint um kærufrest til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða. Í ljósi þess að kæra til úrskurðarnefndarinnar sé dagsett þann 28. júní 2011 telji Vinnumálastofnun að þriggja mánaða kærufrestur hafi verið liðinn og að vísa beri málinu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. júlí 2011, sent afrit af bréfi Vinnumálastofnunar og þeim gögnum sem frá henni bárust og henni gefinn kostur á að koma frekari athugasemdum á framfæri fyrir 8. ágúst 2011. Kærandi hefur ekki nýtt sér það.

 

2.

Niðurstaða

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Hin kærða ákvörðun var tekin á fundi Vinnumálastofnunar þann 23. mars 2011 og tilkynnt kæranda með bréfi stofnunarinnar, dags. 24. mars 2011. Í bréfinu var kæranda tilkynnt um kæruheimild til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og um kærufrest til nefndarinnar. Kæra kæranda var dagsett 28. júní 2011 og móttekin 30. júní 2011. Þegar kæran barst var hinn þriggja mánaða kærufrestur liðinn, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ekkert í gögnum málsins gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

Úrskurðarorð

Kæru í máli A er vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum