Hoppa yfir valmynd
1. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 69/2011

 

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 1. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 69/2011.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 5. janúar 2011, var A, tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur væri hafnað á grundvelli 46. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem látið hafi verið hjá líða að tilkynna um áframhaldandi atvinnuleit hér á landi innan sjö virkra daga frá því að tímabili hafi lokið skv. 43. gr. laganna eða komudegi, hafi hinn tryggði komið til landsins áður en tímabilinu lauk. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða dagsetta 3. maí 2011 og var hún móttekin samdægurs.

Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu Vinnumálastofnunar til málsins með bréfi dagsettu 9. maí 2011. Svarbréf stofnunarinnar er dagsett 21. júní 2011. Þar kemur fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar verið tilkynnt með bréfi dagsettu 5. janúar 2011. Í ljósi þess að kæra til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða sé dagsett 3. maí 2011 telji Vinnumálastofnun að þriggja mánaða kærufrestur sé liðinn og að vísa beri málinu frá úrskurðarnefndinni, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Vinnumálastofnun telji því að ekki sé nauðsynleg frekari aðkoma úrskurðarnefndarinnar að máli þessu. Kæranda var sent áðurnefnt bréf Vinnumálastofnunar, dags. 21. júní 2011 með bréfi úrskurðarnefndarinnar dags. 2. ágúst 2011. Var henni gefinn kostur á að koma athugasemdum sínum á framfæri fyrir 16. ágúst 2011. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Hin kærða ákvörðun í máli þessu var tekin á fundi Vinnumálastofnunar þann 4. janúar 2011 og tilkynnt kæranda með bréfi dags. 5. janúar 2011. Í bréfinu var kæranda tilkynnt um kæruheimild til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og um kærufrest til nefndarinnar. Kæra kæranda barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 3. maí 2011. Ekkert í gögnum máls þessa gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

Úrskurðarorð

Kæru í máli A er vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum