Hoppa yfir valmynd
1. september 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 4/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 1. september 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 4/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 2. nóvember 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði ákveðið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans, þar sem hann hafi ekki tilkynnt um vinnu hjá fyrirtækinu X ehf. í júní, júlí og ágúst árið 2010, samhliða því að þiggja greiðslu atvinnuleysisbóta. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, og var það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hafi starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var einnig gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 273.220 kr. með 15% álagi, samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, fyrir tímabilið 1. júní til 31. ágúst 2010. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 4. janúar 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 8. desember 2009 og fékk greiddar atvinnuleysistryggingar í samræmi við rétt sinn.

Við samkeyrslu á gagnagrunnum Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra í septembermánuði 2010, komu í ljós tekjur kæranda í júnímánuði 2010 að fjárhæð 353.600 kr. vegna starfs hans hjá fyrirtækinu X ehf. Kærandi hafði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um tekjur vegna tilfallandi vinnu eða hlutastarfs.

Með bréfi, dags. 8. september 2010, óskaði Vinnumálastofnun eftir því að kærandi gerði grein fyrir þeim tekjum er hann hafði á sama tíma og hann þáði greiðslu atvinnuleysistrygginga með því að skila inn launaseðli og útfylltu eyðublaði með tilkynningu um tekjur. Kæranda var einnig gerð grein fyrir þeim viðurlögum sem liggja við því broti að greina vísvitandi rangt frá upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að ákvarða bótarétt umsækjanda um atvinnuleysisbætur.

Þann 13. september 2010 skilaði kærandi inn eyðublaði með tilkynningu um tekjur þar sem hann sagði tekjurnar frá X ehf. vera alls 353.600 kr. og að um væri að ræða uppgjör vegna skatts. Vinnumálastofnun hafði í kjölfarið samband við X ehf. og óskaði eftir nánari upplýsingum frá þeim um störf kæranda hjá fyrirtækinu. Greindu X ehf. frá því að kærandi hefði verið í fullu starfi hjá þeim síðan í byrjun júnímánaðar sama árs. Kærandi hafði fengið frí til þess að fara til útlanda vegna andláts föður síns en kærandi hafði tilkynnt Vinnumálastofnun um fyrirhugaða dvöl sína til B-lands á tímabilinu 27. júlí til 20. ágúst 2010.

Á fundi Vinnumálastofnunar þann 12. október 2010 var tekin sú ákvörðun að synja kæranda um áframhaldandi greiðslur atvinnuleysistrygginga í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um ótilkynnta vinnu kæranda. Jafnframt er komist að þeirri niðurstöðu að kærandi hafi aflað atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti í skilningi 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og ætti því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga fyrr en að hafa starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Kæranda var tilkynnt þessi ákvörðun Vinnumálastofnunar með bréfi, dags. 2. nóvember 2010, og leiðbeint um rétt sinn til þess að óska eftir endurupptöku máls síns og um kæruheimild til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

Þann 8. nóvember 2010 barst Vinnumálastofnun bréf frá kæranda, en stofnunin leit á bréfið sem beiðni um endurupptöku máls. Þann 29. desember 2010 var kæranda tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að synja beiðni hans um endurupptöku máls, þar sem ekki væri tilefni til endurupptöku málsins á grundvelli 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, þar sem engar nýjar upplýsingar hafi komið fram í málinu.

Kærandi sótti að nýju um greiðslu atvinnuleysistrygginga þann 16. nóvember 2010 en var synjað þar sem hann hafði ekki unnið í tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði frá 2. nóvember 2010 er honum var tilkynnt um viðurlagaákvörðun stofnunarinnar vegna fyrri brota. Kæranda var tilkynnt um synjunina með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 17. janúar 2011.

Í tölvupósti til Vinnumálastofnunar, dags. 11. janúar 2011, segist kærandi iðrast þeirrar yfirsjónar að hafa ekki tilkynnt um starf hjá X ehf, en segir að vinnuveitandi hans hafi lofað að leysa öll mál tengd því að hann væri skráður atvinnulaus.

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 29. júní 2010, áréttar Vinnumálastofnun að með lögum nr. 134/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, hafi verið gerðar veigamiklar breytingar á 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Verknaðarlýsing ákvæðisins geri grein fyrir því hvaða atvik geti leitt til þess að viðurlögum á grundvelli ákvæðisins sé beitt. Fram komi í athugasemdum með 23. gr. frumvarpsins sem orðið hafi að lögum nr. 134/2009, að Vinnumálastofnun skuli beita viðurlögunum ef atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna stofnuninni um að atvinnuleit sé hætt, skv. 10. gr. laganna, eða um tilfallandi vinnu, eins og kveðið er á um í 35. gr. a. sömu laga.

Vinnumálastofnun áréttar einnig að í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé það gert að skilyrði þess að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laganna að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er nánar kveðið á um hvað telst til virkrar atvinnuleitar, en ljóst sé að einstaklingur sem sinnir fullu starfi getur hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun vísar til gagna málsins en þar kemur fram að kærandi var í fullu starfi hjá fyrirtækinu X ehf., frá byrjun júnímánaðar 2010 til loka ágústmánaðar sama árs, á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun. Kærandi tilkynnti ekki um þessar breytingar á högum sínum til Vinnumálastofnunar, en rík skylda hvílir á þeim sem njóta greiðslna atvinnuleysistrygginga um að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar til að geta ákvarðað bótarétt viðkomandi. Vinnumálastofnun vísar einnig til þess sem fram kemur í gögnum málsins að kærandi tilkynnti stofnuninni um fyrirhugaða ferð sína til Lettlands, en þegar kærandi hélt í þá ferð hafði hann þegar hafið störf hjá X ehf.

Telur Vinnumálastofnun að í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu sem hvílir á atvinnuleitendum um að tilkynna til Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt, sbr. 10. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, hafi kærandi brugðist skyldum sínum. Það sé álit Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar frá júnímánuði 2010 til 20. ágúst 2010 þar sem hann hafi verið við störf á tímabilinu og hafði að auki ekki tilkynnt til stofnunarinnar að virkri atvinnuleit væri hætt. Vinnumálastofnun vísar til 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, en samkvæmt skýru orðalagi greinarinnar beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil er atvinnuleitandi uppfyllir ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar. Telur Vinnumálastofnun því að kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið frá júní 2010 til 20. ágúst 2010, að fjárhæð 273.220 kr. og telur Vinnumálastofnun að staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar frá 2. nóvember 2010.

Starfsmaður úrskurðarnefndarinnar óskaði eftir skýringum Vinnumálastofnunar á endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta á hendur kæranda, þar sem viðmiðunartímabil endurgreiðslukröfunnar virtist vera nokkuð á reiki í gögnum máls, þar sem annars vegar var miðað við tímabilið 1. júní til 20. ágúst 2010 og hins vegar tímabilið 1. júní til 31. ágúst 2010. Einnig var óskað eftir afriti af vottorði vinnuveitanda. Vinnumálastofnun lagði fram afrit af yfirliti yfir bótatímabil kæranda þann 21. júlí 2010, en þar kemur fram að kærandi fékk eingöngu greiddar atvinnuleysisbætur til 20. ágúst 2010, en hann var í vinnu hjá fyrirtækinu X ehf. til 31. ágúst 2010. Vinnumálastofnun aflaði staðfestingar símleiðis á vinnu kæranda hjá fyrirtækinu X ehf. og því liggur ekki fyrir vottorð vinnuveitanda.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar dags. 31. maí 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 14. júní 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur meðal annars að 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Þessu ákvæði var bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 23. gr. laga nr. 134/2009. Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi því sem varð að síðarnefndu lögunum var ákvæðið skýrt nánar. Þar kom meðal annars fram að beita ætti ákvæðinu í þrenns konar tilvikum, í fyrsta lagi þegar atvinnuleitandi veitir Vinnumálastofnun vísvitandi rangar upplýsingar í umsókn um atvinnuleysisbætur sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögunum, í öðru lagi þegar atvinnuleitandi starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. laganna og í þriðja lagi þegar atvinnuleitandi verður uppvís að þátttöku á vinnumarkaði án þess að hafa tilkynnt um tilfallandi vinnu, sbr. nú 35. gr. a.

Helsti tilgangur 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er að tryggja að atvinnuleitendur veiti réttar upplýsingar um hagi sína í atvinnumálum og upplýsi um breytingar sem á þeim kunna að verða. Með þessu á meðal annars að sporna gegn „svartri atvinnustarfsemi“.

Í þessu máli verður ekki fallist á að kærandi hafi verið að sinna tilfallandi vinnu í skilningi 35. gr. a. laga um atvinnuleysistryggingar en telja verður tilfallandi vinnu þá atvinnustarfsemi sem fellur til með óreglubundnum hætti og stendur stutt yfir hverju sinni en ekki yfir nokkra mánaða samfellt skeið eins og á við í þessu máli. Af þessum sökum kemur eingöngu til greina að beita 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á þeim grundvelli að kærandi hafi starfað á vinnumarkaði á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit væri hætt.

Þegar 60. gr. laganna er beitt á þessum grundvelli þarf að skýra orðin að „starfa á vinnumarkaði“ með hliðsjón af a- og b-liðum 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt a-lið ákvæðisins er launamaður hver sá sem vinnur launuð störf í annarra þjónustu í a.m.k. 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði og greitt er tryggingagjald vegna starfsins samkvæmt lögum um tryggingagjald. Í b-lið ákvæðisins er sjálfstætt starfandi einstaklingur hver sá sem starfar við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi í því umfangi að honum sjálfum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt reglum fjármálaráðherra, skil á staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi og tryggingagjaldi vegna starfs síns.

Á grundvelli tímabundins ráðningarsamnings starfaði kærandi fyrir X ehf. í júní–ágúst 2010 á sama tíma og hann fékk greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi var á þessu tímabili launamaður í skilningi a-liðar 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og starfaði á innlendum vinnumarkaði í skilningi 2. ml. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Af framansögðu er ljóst að kærandi var starfandi á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann þáði atvinnuleysisbætur. Hann tilkynnti Vinnumálastofnun hvorki um þessa atvinnustarfsemi sína né að atvinnuleit hans hafi verið hætt. Það er niðurstaða úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða að með framangreindri háttsemi hafi kærandi brotið gegn 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og því beri að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Á tímabilinu 1. júní til 31. ágúst 2010 fékk kærandi greiddar 237.583 kr. í atvinnuleysisbætur. Vinnumálastofnun krefst þess að fá þá fjárhæð endurgreidda að viðbættu 15% álagi, sbr. 3. ml. 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 1. ml. 2. mgr. 39. gr. sömu laga. Fallast verður á að kæranda beri að endurgreiða 273.220 kr. eins og kveðið var á um í hinni kærðu ákvörðun.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 2. nóvember 2010 í máli A um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta er staðfest. Kærandi skal ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði. Þá ber honum að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 273.220 kr.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum