Hoppa yfir valmynd
7. apríl 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 115/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 7. apríl 2011 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 115/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 7. júlí 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 2. júlí 2010 fjallað um rétt kæranda til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Ákveðið var að fella niður bótarétt kæranda frá og með 7. júlí 2010 í þrjá mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem kærandi hafði verið erlendis frá 10. apríl til 24. apríl 2010 og hafði áður sætt viðurlögum. Þann 2. mars 2010 var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði vegna fjarveru hennar á boðaðan fund Vinnumálastofnunar sem haldinn var 18. desember 2010. Kæra kæranda til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða er dagsett 6. júlí 2010 og móttekin 7. júlí 2010. Ekki verður berlega ráðið af kærunni eða öðrum gögnum málsins hvora framangreindra ákvarðana kærandi er að kæra. Vinnumálastofnun lítur svo á að kærandi sé að kæra hina fyrri ákvörðun frá 2. mars 2010 og bendir á að þriggja mánaða kærufrestur hafi því verið liðinn.

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysistrygginga 15. október 2009. Þann 2. mars 2010 var bótaréttur hennar felldur niður í tvo mánuði vegna fjarveru hennar á boðaðan fund Vinnumálastofnunar sem haldinn var 18. desember 2010, en skýringar hennar á fjarverunni voru ekki metnar gildar. Rafræn staðfesting á atvinnuleit kæranda barst frá X-landi þann 21. apríl 2010. Henni var í kjölfarið sent bréf þann 18. maí 2010 þar sem óskað var skýringa á dvöl hennar erlendis. Engar skýringar bárust Vinnumálastofnun og með bréfi dags. 26. maí 2010 var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar skyldu stöðvaðar. Vinnumálastofnun bárust skýringar frá kæranda þann 31. maí 2010 ásamt farseðlum sem staðfestu brottfarar- og heimkomudag hennar. Í bréfi kæranda kom fram að hún hefði farið til X-lands til þess að bera vitni í dómsmáli þar í landi. Þá hafi hún ekki vitað að tilkynna bæri til Vinnumálastofnunar um fyrirhugaðar utanlandsferðir. Á fundi Vinnumálastofnunar þann 2. júlí 2010 var ákveðið í samræmi við 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, að fella niður greiðslur atvinnuleysistryggingar til kæranda í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi.

Í kæru kæranda, sem er dagsett 6. júlí 2010, virðist hún kæra þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður bótarétt hennar frá janúar til mars 2010 vegna fjarveru hennar á fundi sem haldinn var í desember.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 22. desember 2010, er bent á að í c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum og í 3. mgr. 9. gr. laganna sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar.

Vinnumálastofnun bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.

Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þar segi að atvinnuleitandi beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Vinnumálastofnun vísar í 1.mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið er á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Það sé ljóst að kærandi hafi verið stödd erlendis, tímabilið 10. apríl til 24. apríl 2010. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjanda að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Í bréfi sínu til Vinnumálastofnunar hafi kærandi tilkynnt Vinnumálastofnun að hún hafi farið til útlanda til þess að bera vitni í dómsmáli. Hún hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um ferð sína líkt og henni hafi borið að gera skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun bendir á að stofnunin hafi margsinnis vakið athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi. Einu undanþágurnar frá skilyrðum c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna í VIII. kafla laganna. Sé sérstaklega vakin athygli á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim sem hugi að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit sé bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag. Þá vekur stofnunin athygli á því að í þeim tilvikum sem stofnuninni er tilkynnt um slíkar ferðir fyrirfram sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því, nema fyrir liggi E-303 vottorð frá stofnuninni, að hann fái ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dveljist erlendis. Það sé eindregin afstaða stofnunarinnar að eftirlitsaðgerðum hennar verði ekki jafnað við tilkynningu frá atvinnuleitanda og verði í ljósi 9. gr. og 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að gera greinarmun á þeim sem láta sjálfir vita um ferðir sínar og þeirra sem stofnuninni berast upplýsingar um með öðrum leiðum. Það sé mat stofnunarinnar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er hafi haft bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysistrygginga. Kærandi eigi því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi, 7. júlí 2010, sbr. 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 30. desember 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 14. janúar 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Eins og fram hefur komið er kæra kæranda til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða dagsett 6. júlí 2010 og móttekin 7. júlí 2010. Ekki verður berlega ráðið af kærunni eða öðrum gögnum málsins hvort kærandi er að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 2. mars 2010 eða 2. júlí 2010. Í kjölfar þess að kæranda var tilkynnt um stöðvun atvinnuleysistrygginga til hennar, sbr. bréf Vinnumálastofnunar, dags. 26. maí 2010, kom hún á framfæri, þann 31. maí 2010, skýringum og gögnum varðandi ferð sína til útlanda í apríl 2010. Seinni ákvörðun Vinnumálastofnunar er dagsett 2. júlí 2010 og örfáum dögum síðar eða 6. júlí 2010 er kæra kæranda dagsett og þann 7. júlí 2010 sýndi kærandi starfsmanni Vinnumálastofnunar ljósrit af kærunni, sbr. það sem fram kemur í samskiptasögu. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið þykir verða að líta svo á, þrátt fyrir orðalag í kærunni, að kærandi hafi með kæru sinni frá 6. júlí 2010 verið að kæra ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 2. júlí 2010.

Mál þetta lýtur að 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum um nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, en hún er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. er þeim sem telst tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar skylt að upplýsa Vinnumálstofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Kærandi ber fyrir sig að hún hafi ekki vitað að þörf væri á að tilkynna ferð sína úr landi þar sem hún hefði hvorki verið í orlofsferð né flutt frá landinu.

Í 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Í c-lið 1. mgr. þess ákvæðis kemur fram skilyrði um að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. þó VIII. kafla laganna. Þá segir í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum skuli tilkynna Vinnumálstofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti skv. h-lið 1. mgr. án ástæðulausrar tafar.

Óumdeilt er að kærandi dvaldi erlendis á tímabilinu 10. apríl til 24. apríl 2010 án þess að láta Vinnumálastofnun vita af því fyrirfram. Á þessu tímabili var hún því ekki lengur í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og hafði brotið þá skyldu sína sem atvinnuleitandi að upplýsa Vinnumálastofnun um breytta hagi sína.

Með setningu laga nr. 134/2009 var gerð breyting á ákvæði 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, og var ákvæðið fært til þess er það nú er. Með þessari breytingu voru settar í lögin afar strangar viðurlagareglur í þeim tilvikum þegar sá sem fær greiddar atvinnuleysisbætur sinnir ekki tilkynningarskyldu sinni. Þessar reglur eru með öllu ófrávíkjanlegar og engin leið að horfa framhjá ákvæðinu.

Með hliðsjón af öllu framangreindu og framanröktum ákvæðum 3. mgr. 9. gr., c-liðar 1. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er sú ákvörðun Vinnumálastofnunar staðfest að kærandi hafi ekki átt rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta á tímabilinu frá 10. apríl til 24. apríl 2010. Þar sem kærandi hafði áður hlotið viðurlög vegna brota á ákvæðum laga um atvinnuleysistryggingar sætir hún ítrekunaráhrifum, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, og er réttur hennar til atvinnuleysisbóta felldur niður í þrjá mánuði.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 2. júlí 2010 í máli A um að fella niður bótarétt hennar í þrjá mánuði, er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum