Hoppa yfir valmynd
15. september 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 41/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 15. september 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 41/2010.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 11. janúar 2010, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hafi á fundi sínum þann 31. desember 2009 fjallað um umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur frá 9. desember 2009. Fallist var á umsókn kæranda en réttur hans til atvinnuleysisbóta var felldur niður í 40 daga frá umsóknardegi, með vísan til 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, sbr. c-lið 3. gr. laganna, þar sem hann hætti í námi. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 5. mars 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi var skráður í nám við Framhaldsskólann á B-stað á haustmisseri árið 2009. Hann sótti um atvinnuleysisbætur með rafrænni umsókn þann 9. desember 2009 og í skýringarbréfi er barst frá honum til Vinnumálastofnunar með tölvupósti þann 11. desember 2009 kemur fram að ástæður þess að hann hætti námi hafi verið af fjárhagslegum toga. Í kæru kæranda kemur fram að hann hafi hætt í skóla vegna þess að hann hafi ekki getað lifað lengur á foreldrum sínum og enn fremur hafi honum verið lofað vinnu í febrúar 2010.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 29. júní 2010, er vitnað til 1. mgr. 55. laga um atvinnuleysistryggingar og bent á að í athugasemdum við umrædda grein frumvarps til laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að eðlilegt sé að þeir sem hætti námi án þess að hafa til þess gildar ástæður sæti sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Orðalagið „gildar ástæður“ hafi verið skýrt þröngt sem hafi þýtt í raun og veru að fá tilvik falli þar undir. Ágreiningurinn snúist um það hvort ástæður kæranda fyrir því að hætta námi sínu teljist gildar í skilningi framangreindra ákvæða.

Skýringar þær er kærandi gefi fyrir því að hætta námi lúti aðallega að fjárhagsástæðum. Í vottorði frá Framhaldsskólanum á B-stað sem gefið hafi verið út þann 9. desember 2009 komi fram að kærandi hafi verið skráður í nám á haustönn 2009. Segi kærandi í kæru sinni til úrskurðarnefndar að hann hafi hætt í námi þann 17. desember 2009. Þó liggi fyrir í skýringarbréfi kæranda frá 11. desember 2009 að hann hafi þá þegar hætt námi sínu við skólann.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafa fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Veiti lögin þeim því fjárhagslegt úrræði og beri því að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum eða hætti námi sínu, um að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að stunda nám eða gegna launuðu starfi. Í máli kæranda telji Vinnumálastofnun ljóst að með því að hætta námi sínu hafi kærandi tekið ákvörðun um að vera skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun í stað þess að halda áfram námi sínu.

Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda á því hvers vegna hann hafi hætt námi teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og sé bótaréttur kæranda því felldur niður í 40 daga, sbr. 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli 40 daga biðtími hefjast við móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Skýrt sé kveðið á um upphaf biðtíma samkvæmt ákvæðinu. Kærandi hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 9. desember 2009. Með vísan til ákvæðisins skuli miða upphaf biðtíma við þá dagsetningu og falli bótaréttur kæranda niður frá þeim degi í 40 daga, sbr. 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 4. ágúst 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 18. ágúst 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur hætt námi, sbr. c-lið 3. gr., án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Staðfesting frá viðkomandi skóla um að námi hafi verið hætt skal fylgja umsókninni.

Í athugasemdum við 55. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar segir að eðlilegra þyki að þeir sem hætta í námi án þess að hafa til þess gildar ástæður þurfi að sæta sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Skipti þá ekki hvenær á námsönn hlutaðeigandi hætti námi. Gert sé ráð fyrir að vottorð frá hlutaðeigandi skóla um að hann hafi hætt námi fylgi umsókninni. Að öðru leyti er vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins. Þar segir að nefnd er fjallaði um efni laganna hafi tekið afstöðu til þess hvað gætu talist gildar ástæður og komist að þeirri niðurstöðu að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega slíkar ástæður í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagaregla þessi verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun sé þar með falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur falli að umræddri reglu. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Niðurstaða máls kæranda veltur á þeirri forsendu að hann ákvað sjálfur að hætta námi í Framhaldsskólanum á B-stað. Ástæður þess segir hann vera „fjárhagsástæður“. Fallist er á þá niðurstöðu Vinnumálastofnunar að ekki sé unnt að líta svo á að ástæður kæranda fyrir því að hætta námi teljist gildar ástæður. Er hin kærða ákvörðun því staðfest.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 31. desember 2009 í máli A er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum