Hoppa yfir valmynd
11. maí 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 11/2010

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 11. maí 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 11/2010.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 9. desember 2009, vakti Vinnumálastofnun athygli kæranda, A, á því að samkvæmt bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, ljúki bótatímabili hans hjá Atvinnuleysistryggingasjóði þann 31. desember 2009. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi, dags. 18. janúar 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi vonast til þess að hin kærða ákvörðun verði endurskoðuð, þar sem erfitt sér að framfleyta sér eins og ástandið sé. Kærandi segir að samkvæmt greiðsluseðli sínum, dags. 1. september 2009, eigi hann eftir 204 daga á atvinnuleysisbótum. Hann kveðst telja að hann eigi eftir 100 daga frá síðustu áramótum.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 1. júní 2005 eða í tíð laga nr. 12/1997 og þáði greiðslu atvinnuleysisbóta þann 1. júlí 2006 þegar lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar tóku gildi. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda með bréfi, dags. 9. desember 2009, að bótatímabili hans myndi ljúka þann 31. desember 2009 samkvæmt bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar, dags. 21. apríl 2010, kemur fram að samkvæmt bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, geti þeir sem hafa verið skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun fyrir 15. nóvember 2005 að hámarki átt rétt til grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til 31. desember 2009 en þó ekki lengur en í fimm ár frá því að þeir fyrst skráðu sig atvinnulausa hjá stofnuninni. Ákvæðið eigi við um þá sem hafi verið samfellt án atvinnu frá 15. nóvember 2005 eða starfað í skemmri tíma en sex mánuði á innlendum vinnumarkaði. Í ákvæði til bráðabirgða III með lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að ákvæði laganna eigi að öllu leyti við um þá sem skráðir höfðu verið atvinnulausir fyrir gildistöku laganna, hafi þeir starfað samfellt í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði. Hafi sá tryggði starfað í meira en sex mánuði áður en hann sótti aftur um atvinnuleysisbætur skuli ekki litið til fyrra bótatímabils samkvæmt eldri lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 og ekki gert að skilyrði að eldra tímabili ljúki áður en tímabil skv. 29. gr. gildandi laga um atvinnuleysistryggingar hefjist. Samkvæmt greiðslusögu kæranda og fyrirliggjandi gögnum frá ríkisskattstjóra hafi kærandi ekki starfað í sex mánuði á umræddu tímabili.

Í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar segi kærandi að á greiðsluseðli Vinnumálastofnunar frá september 2009 komi fram að hann eigi 204 ónýtta daga eftir af bótatímabili. Um þetta segir í greinargerð Vinnumálastofnunar að á greiðsluseðlum komi fram þeir dagar sem atvinnuleitandi hafi nýtt á bótatímabili sínu, sem og þeir dagar sem ónýttir séu. Miðist sá útreikningur ávallt við yfirstandandi bótatímabil en ekki lokadagsetningu bráðabirgðaákvæðis II með lögum um atvinnuleysistryggingar, enda mögulegt að þeir sem falli undir bráðabirgðaákvæði II tæmi rétt sinn fyrir 31. desember 2009. Kærandi hafi því ekki mátt vænta þess að tímabil héldi áfram að líða fram yfir það hámark sem sett sé í bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar. Í bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að þeir sem heyri undir ákvæðið geti að hámarki átt rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta til 31. desember 2009. Ljúki fimm ára bótatímabili fyrir þann tíma geti sá sem um ræðir ekki átt rétt til atvinnuleysistrygginga lengur en það tímabil vari.

Þá segir í greinargerðinni að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi ekki áunnið sér rétt á nýju bótatímabili, hvorki á grundvelli 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar né bráðabirgðaákvæðis III sömu laga. Það sé því niðurstaða Vinnumálastofnunar að bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar eigi við í máli kæranda og hann geti því ekki notið greiðslu atvinnuleysistrygginga eftir 31. desember 2009 nema að öðrum ákvæðum laganna uppfylltum.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 23. apríl 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 7. maí 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, öðluðust gildi 1. júlí 2006 og leystu þá af hólmi lög sama efnis nr. 12/1997. Með hinum nýju lögum voru gerðar ýmsar breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu, meðal annars var boðið upp á að atvinnuleysisbætur yrðu tekjutengdar í allt að þrjá mánuði frá tilteknu tímamarki, sbr. 32. gr. laganna, og að lengd tímabils sem atvinnuleysisbætur væru greiddar fyrir takmarkaðist við ákveðið hámark, sbr. 29. gr. laganna. Þar sem meginreglur hinna nýju laga gátu annaðhvort aukið réttindi þeirra sem voru þá á atvinnuleysisbótum eða dregið úr þeim var með ákvæðum I–III til bráðabirgða tekin afstaða til réttarstöðu þeirra atvinnuleitenda sem nutu greiðslu atvinnuleysisbóta áður en hin nýju lög komu til framkvæmda. Kærandi var einn þeirra sem tilheyrði þessum hópi atvinnuleitanda.

Fallist verður á það með Vinnumálastofnun að ákvæði II til bráðabirgða hafi átt við um kæranda þegar hin kærða ákvörðun var tekin en lagaákvæðið er svohljóðandi:

Sá sem var skráður atvinnulaus fyrir 15. nóvember 2005 og hefur verið án atvinnu samfellt síðan eða hefur starfað í skemmri tíma en sex mánuði á innlendum vinnumarkaði getur að hámarki átt rétt á grunnatvinnuleysisbótum samkvæmt lögum þessum til 31. desember 2009 en þó ekki í lengri tíma en fimm ár frá skráningu hjá svæðisvinnumiðlun að teknu tilliti til starfstímabila hans. Að öðru leyti gilda ákvæði laga þessara um réttindi hans og skyldur innan atvinnuleysistryggingakerfisins.

Í ljósi þess að ákvæði þetta mælir fyrir um stöðvun greiðslu atvinnuleysisbóta frá og með 1. janúar 2010 að telja þá verður hin kærða ákvörðun staðfest með vísan til þess rökstuðnings sem Vinnumálastofnun hefur fært fyrir henni.

 

Úr­skurðar­orð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli A frá 9. desember 2009 um það að hann eigi ekki rétt til atvinnuleysisbóta frá og með 1. janúar 2010 er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum