Hoppa yfir valmynd
12. ágúst 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 33/2015

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík


Miðvikudaginn 12. ágúst 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 33/2015:


Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 12. júní 2015, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 13. maí 2015, á umsókn hennar um styrk vegna sérstakra erfiðleika að fjárhæð 1.300.000 krónur.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um styrk vegna sérstakra erfiðleika að fjárhæð 1.300.000 krónur hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 26. janúar 2015. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 5. febrúar 2015, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 13. maí 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um styrk að upphæð kr. 1.300.000.- þar sem eigi verður talið að aðstæður umsækjanda falli að skilyrðum þeim sem sett eru í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð varðandi aðstoð vegna sérstakra erfiðleika.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 13.  maí 2015. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 12. júní 2015. Með bréfi, dags. 15. júní 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 18. júní 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 24. júní 2015, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi búið í félagslegu leiguhúsnæði í 15 ár án nokkurra greiðsluvandamála þar til árið 2014. Hún sé nú heimilislaus og hafi óskað eftir að fá niðurfellda skuld til þess að geta aftur hafið viðskipti við Félagsbústaði. Kærandi tekur fram að hún sé á lágmarkslaunum og hafi misst aukavinnu sína en vegna veikinda sé erfitt að finna nýja vinnu sem henti. Þá sé sonur hennar í framhaldsskóla og geti ekki aðstoðað hana fjárhagslega. Kærandi bendir á að það sé ómögulegt að komast á almenna leigumarkaðinn vegna þess hversu hátt verðlagið sé og hún eigi ekki pening til þess að borga tryggingu.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda og vísað til þess að hún hafi ekki uppfyllt skilyrði 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg til greiðslu styrks vegna sérstakra erfiðleika en öll skilyrði a–e-liða 24. gr. verði að vera uppfyllt svo heimilt sé að veita lán eða styrk samkvæmt ákvæðinu. Kærandi uppfylli ekki skilyrði a-liðar þar sem hún hafi ekki þegið fjárhagsaðstoð sér til framfærslu undanfarna sex mánuði eða lengur en kærandi fái greiddan lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Þá sé ákvæði d-liðar ekki uppfyllt þar sem ekki liggi fyrir að styrkurinn muni breyta skuldastöðu kæranda til hins betra þegar til lengri tíma sé litið. Við mat á d-lið ákvæðisins hafi verið litið til þess að kærandi hafi áður fengið styrk vegna skulda við Félagsbústaði hf. sem hafi ekki breytt skuldastöðu hennar til hins betra. Í maí 2012 hafi verið samþykkt að veita kæranda styrk að fjárhæð 370.000 krónur til greiðslu húsaleiguskuldar við Félagsbústaði hf. með því skilyrði að greidd yrði áfallandi húsaleiga í sex mánuði. Kærandi hafi ekki staðið við það samkomulag og því hafi ekki verið forsenda til að veita styrkinn.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að skilyrði 24. gr. reglnanna væru ekki uppfyllt og því hafi synjun um styrk verið staðfest.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg frá 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk vegna sérstakra erfiðleika að fjárhæð 1.300.000 krónur.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Umsókn kæranda um styrk vegna sérstakra erfiðleika var synjað á þeirri forsendu að skilyrðum 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið fullnægt. Í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Samkvæmt því er heimilt að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika, að uppfylltum öllum neðangreindum skilyrðum:

a) umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur,

b) staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana,

c) fyrir liggi yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða Umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á,

d) fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið,

e) fyrir liggi samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við.

Í a-lið 24. gr. reglnanna er gert að skilyrði að umsækjandi hafi notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu síðastliðna sex mánuði eða lengur. Kærandi hafði ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu síðastliðna sex mánuði eða lengur þegar umsókn barst Reykjavíkurborg. Þegar af þeirri ástæðu átti kærandi ekki rétt á styrk vegna sérstakra erfiðleika á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð


Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 13. maí 2015, um synjun á umsókn A um styrk vegna sérstakra erfiðleika að fjárhæð 1.300.000 krónur er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum