Hoppa yfir valmynd
18. febrúar 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 75/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

 

Miðvikudaginn 18. febrúar 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 75/2014:

 

Kæra A

á ákvörðun

Fjarðabyggðar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með bréfi, dags. 22. desember 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Fjarðabyggðar um synjun á umsókn hans um fjárhagsaðstoð.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um fjárhagsaðstoð hjá Fjarðabyggð fyrir október 2014 með umsókn, dags. 4. nóvember 2014. Umsókn kæranda var synjað með bréfi félagsþjónustusviðs, dags. 28. nóvember 2014, með þeim rökum að kærandi uppfyllti ekki skilyrði 13. gr. reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 29. desember 2014. Með bréfi, dags. 7. janúar 2015, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir öllum gögnum málsins, þar á meðal umsókn kæranda, ákvörðun sveitarfélagsins og gögnum um fjárhag kæranda. Enn fremur var óskað eftir greinargerð Fjarðabyggðar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Fjarðabyggðar barst með bréfi, dags. 13. janúar 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 21. janúar 2015, var bréf Fjarðabyggðar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi óskar eftir að ákvörðun Fjarðabyggðar um synjun á umsókn hans um fjárhagsaðstoð verði endurskoðuð og að hann njóti sannmælis.

 

III. Sjónarmið Fjarðabyggðar

Í greinargerð Fjarðabyggðar kemur fram að kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð fyrir októbermánuð 2014 vegna fjárhagserfiðleika. Þegar ráðgjafi hafi verið búinn að afla tekjuupplýsinga samkvæmt 14. gr. reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð hafi komið í ljós að kærandi hafi verið yfir tekjuviðmiðum 13. gr. reglnanna. Heildartekjur kæranda í október 2014 hafi verið 269.149 krónur en viðmið fjárhagsaðstoðar samkvæmt 13. gr. reglnanna væri 147.211 krónur. Það hafi því verið niðurstaða meðferðarteymis fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar að synja kæranda um fjárhagsaðstoð á grundvelli of hárra tekna.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð frá 20. desember 2013. Í máli þessu er ágreiningur um hvort Fjarðabyggð hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð var synjað á þeim grundvelli að skilyrði 13. gr. reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð hafi ekki verið uppfyllt. Samkvæmt 12. gr. reglnanna skal grunnþörf til framfærslu lögð til grundvallar við ákvörðun á fjárhagsaðstoð og frá henni dregnar heildartekjur, sbr. 12. gr. Í 13. gr. reglnanna kemur fram að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar til einstaklinga 18 ára og eldri geti numið allt að 147.211 krónum á mánuði.

Í 14. gr. reglnanna er kveðið á um að allar tekjur einstaklings, og maka ef við á, aðrar en greiðslur vegna barna-, húsaleigu- og vaxtabætur, mánuðinn sem sótt er um og mánuðinn á undan séu taldar með við mat á fjárþörf. Þá kemur fram að með tekjum sé átt við allar tekjur einstaklings og maka, sem ekki séu sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar skattskyldar tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.s.frv. Miða skuli við heildartekjur áður en skattar eru dregnir frá.

Kærandi sótti um fjárhagsaðstoð fyrir októbermánuð 2014. Bar því að miða við tekjur kæranda í september og október 2014. Samkvæmt staðgreiðsluskrá voru tekjur kæranda 311.510 krónur í september 2014 og 269.149 krónur í október 2014. Tekjur kæranda voru því nokkuð hærri en grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, sbr. 13. gr. reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð.

Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndarinnar að skilyrði reglna Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð hafi ekki verið uppfyllt í málinu og kærandi hafi því ekki átt rétt á fjárhagsaðstoð fyrir október 2014. Hin kærða ákvörðun verður því staðfest.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Fjarðabyggðar, dags. 28. nóvember 2014, um synjun á umsókn A um fjárhagsaðstoð er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum