Hoppa yfir valmynd
22. júní 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 42/2011

Miðvikudaginn 22. júní 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 42/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dagsettri 10. maí 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs frá 2. maí 2011 vegna umsóknar um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði synjun um endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 10. maí 2011, er verðmat á íbúð kæranda að B 23.500.000 kr. Í endurútreikningnum kemur einnig fram að kærandi á bifreið N að fjárhæð 1.242.945 kr. Fasteign kæranda miðað við uppreiknað fasteignamat í 110% nemur 25.850.000 kr. Íbúðalánaskuldir kæranda nema samtals 26.102.774 kr.

 

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi vísar til meðfylgjandi skjala til stuðnings máli sínu. Meðal þeirra er lokaaðvörun vegna lögfræðiinnheimtu frá BYR, innheimtubréf frá lögmönnum Thorsplani og álagningar- og innheimtuseðlar fyrir árið 2010.

 

III. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður bendir á að samkvæmt lánaákvörðun, dags. 18. maí 2011, sé virði fasteignar kæranda miðað við uppreiknað verðmat í 110% 25.850.000 kr. og staða íbúðalána þann 1. janúar 2011 sé 26.102.774 kr. Aðfararhæfar eignir séu 1.242.945 kr.

Eignir séu samkvæmt þessu hærri en skuldirnar og forsendur niðurfærslu því ekki til staðar, sbr. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011 svo og með vísan til 1. gr. laga nr. 29/2011 um breytingu á lögum um húsnæðismál. Reglur geri ekki ráð fyrir að sjóðurinn meti í slíkum tilvikum aðstæður kæranda við niðurfærslu á veðkröfum og synjun því að mati sjóðsins í samræmi við gildandi reglur.

 

IV. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Í lið 2.2 í 2. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011 kemur fram að lántaki skuli upplýsa kröfuhafa um aðrar aðfararhæfar eignir samkvæmt lögum um aðför nr. 90/1989. Reynist veðrými vera til staðar á aðfararhæfum eignum, á niðurfærsla skulda að lækka sem því nemur. Með aðfararhæfum eignum er átt við allar eignir, nema þær séu sérstaklega undanþegnar fjárnámi. Aðfararhæfar eignir eru til dæmis fasteignir, bifreiðar og bankainnstæður. Auk fasteignar sinnar að B á kærandi bifreið eins og rakið hefur verið.

Það er álit úrskurðarnefndarinnar að Íbúðalánasjóði beri að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur. Þar kemur skýrt fram að ef veðrými er á aðfararhæfum eignum lækkar niðurfærsla veðskulda sem því nemur. Kærandi hefur ekki mótmælt því að verðmæti eigna sé það sem fram kemur í gögnum málsins, en hefur lagt fram skjöl sem sýna eiga fram á að skuldir hans séu meiri en gert hafi verið ráð fyrir við útreikning Íbúðalánasjóðs. Hefur hann lagt fram innheimtubréf vegna ógreiddrar greiðslukortaskuldar, samtals 1.098.906 kr., ógreiddra opinberra gjalda vegna ársins 2010 samtals 1.405.901 kr. og yfirlit um vanskil vegna láns nr. C.

Í 1. gr. 1.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila að þær skuldir sem færa má niður séu skuldir sem stofnað hefur verið til vegna fasteignakaupa umsækjanda fyrir árið 2009 og sem hvíla með veði á eign sem ætluð er til heimilishalds lántaka. Tekur samkomulagið því ekki til annarra veðskulda en þeirra sem hvíla á viðkomandi fasteign, auk sem ekki er gert ráð fyrir því að við niðurfærslu sé tekið mið af öðrum skuldum umsækjanda. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og með vísan til 1. gr. laga nr. 29/2011 og samkvæmt ákvæðum í 2. gr. 2.2 í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

Vakin skal athygli á því að í bréfi Íbúðalánasjóðs til kæranda, dags. 2. maí 2011, er tekið fram að kærandi hafi fjögurra vikna frest til þess að skjóta ákvörðuninni til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála. Þessi frestur er nú þrír mánuðir, eftir breytingu sem gerð var með lögum nr. 152/2010, sem tóku gildi þann 1. janúar 2011.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, varðandi synjun um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á íbúðinni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum