Hoppa yfir valmynd
14. desember 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 148/2011

Miðvikudaginn 14. desember 2011 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 148/2011:

A og B

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A og B, hér eftir nefnd kærendur, hafa með ódagsettri kæru, sem barst þann 7. október 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, frá 21. september 2011 vegna synjunar á umsókn um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærendur kærðu ákvörðun um synjun á endurútreikning lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni að C, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Samkvæmt endurútreikningi Íbúðalánasjóðs, dags. 21. september 2011, var skráð fasteignamat á íbúð kærenda að C 14.000.000 kr. Við ákvörðun Íbúðalánasjóðs var miðað við mat löggilts fasteignasala sem var 15.000.000 kr. Staða áhvílandi lána var 16.423.474 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 11. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 24. október 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 28. október 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kærendum til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kærendum.

 

III. Sjónarmið kærenda

Kærendur kæra synjun Íbúðalánasjóðs um leiðréttingu lána í 110% leiðinni. Í rökstuðningi með kæru til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 7. október 2011, segja kærendur að þau geri kröfu um að einkalán og lán með veði í annarri fasteign en fasteign þeirra að C, verði tekin til greina er Íbúðalánasjóður endurútreiknar áhvílandi lán þeirra hjá sjóðnum, enda hafi umrædd lán verið tekin til að fjármagna kaupin á íbúðinni að C. Þetta séu því raunverulegar skuldir sem hafi verið stofnað til í tengslum við fasteignakaup.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að niðurfærsla samkvæmt lögum nr. 29/2011 lýtur alfarið að veðkröfum, þ.e. að áhvílandi lánum Íbúðalánasjóðs á viðkomandi íbúð. Aðrar skuldir koma því ekki til álita hvað niðurfærsluna varðar að mati sjóðsins. Þá bendir kærði á að íbúð kærenda hafi verið verðmetin að beiðni sjóðsins í samræmi við ákvæði 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011.

 

V. Niðurstaða

Málskot kærenda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærendur hafa fært fram þau rök að við endurútreikning lána þeirra hjá Íbúðalánasjóði eigi einnig að taka tillit til láns frá einkaaðilum og láns sem tekið hafi verið til að fjármagna kaup á íbúð þeirra að C, en umrætt lán er með veði í fasteign sem er ekki í eigu kærenda. Í 1. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011, sbr. lið 1.1 í 1. gr. samkomulags lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila frá 15. janúar 2011, kemur fram að heimild til niðurfærslu taka eingöngu til áhvílandi veðskulda. Er því ljóst að Íbúðalánasjóði var ekki heimilt að lögum að líta til annarra lána kærenda við útreikning á veðsetningarhlutfalli af verðmæti fasteignar þeirra.

Kærða ber að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum reglum og þar er ekki að finna undanþágur, svo sem vegna annarra veðskulda. Í lögum nr. 29/2011 kemur skýrt fram að eingöngu sé heimilt að færa niður áhvílandi veðskuldir kærða. Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og samkvæmt ákvæðum í 1.1 í 1. gr. í samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjun um endurútreikning á lánum A og B, áhvílandi á íbúðinni að C, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum