Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 139/2011

Miðvikudaginn 11. janúar 2012 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 139/2011:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefnd kærandi, hefur með kæru, dags. 30. október 2011, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, frá 20. september 2011 vegna synjunar á umsókn um endurútreikning lána hjá sjóðnum.

 

I. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi kærði ákvörðun um synjun á endurútreikningi lána hjá Íbúðalánasjóði sem hvíla á fasteigninni að B, í samræmi við samkomulag lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila.

Skráð fasteignamat á íbúð kæranda að B var 8.600.000 kr. Staða áhvílandi lána var 9.641.172 kr. Í endurútreikningnum kemur einnig fram að íbúðarlán kæranda hjá Sparisjóði Svarfdæla hafi verið fellt niður, alls 453.295 kr.

 

II. Málsmeðferð

Með bréfi, dags. 3. október 2011, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði. Að auki var þess farið á leit við Íbúðalánasjóð að tekin yrði afstaða til kærunnar. Afstaða kærða barst með bréfi, dags. 19. október 2011. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 24. október 2011, var bréf Íbúðalánasjóðs sent kæranda til kynningar. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi kærir synjun Íbúðalánasjóðs um leiðréttingu lána í 110% leiðinni. Í rökstuðningi með kæru til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 20. september 2011, segir kærandi að Íbúðalánasjóður hafi synjað umsókn hennar þrátt fyrir að þar komi fram að veðsetning íbúðar umfram 110% sé 181.172 kr. Þá segir kærandi að við afgreiðslu umsóknar hennar hafi Íbúðalánasjóður miðað við stöðu lánanna þann 1. janúar 2011, þrátt fyrir að henni hafi verið tilkynnt um ákvörðun Íbúðalánasjóðs með bréfi sem dagsett er þann 20. september 2011. Þá greinir kærandi frá því að staða áhvílandi íbúðarlána sé nú 9.860.657 kr og því telur kærandi að u.þ.b. 400.000 kr. séu yfir 110% mörkunum. Loks greinir kærandi frá því að um verulegar fjárhæðir sé að ræða og biður um endurskoðun ákvörðunar Íbúðalánasjóðs þar sem hún telji ekki rétt að miða við stöðu áhvílandi lána aftur í tímann.

 

IV. Sjónarmið kærða

Íbúðalánasjóður áréttar að áramótastaða lána kæranda hjá sjóðnum hafi um síðustu áramót verið 9.211.066 kr., en uppfært fasteignamat í 110% sé 9.460.000 kr. Vegna þess hafi Íbúðalánasjóður ekki talið efni til niðurfærslu lána sjóðsins, sbr. ákvörðunarbréf um synjun umsóknar kæranda, dags. 20. september 2011.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála er meðal annars að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi kærir synjun Íbúðalánasjóðs á leiðréttingu lána í 110% leiðinni, en umsókn kæranda var synjað þar sem áhvílandi veðskuldir voru 107% af verðmæti fasteignarinnar, miðað við skráð fasteignamat eignarinnar, eftir niðurfellingu láns hjá Sparisjóði Svarfdæla, sem nam alls 453.295 kr.

Í 3. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 kemur fram að við verðmat fasteigna samkvæmt ákvæðinu skuli miða við fasteignamat eða markaðsverð þeirra, hvort sem er hærra. Við hina kærðu ákvörðun byggði Íbúðalánasjóður á skráðu fasteignamat íbúðar kæranda. Kærandi byggir hins vegar á því að við ákvörðun um niðurfærslu lána eigi að miða stöðu áhvílandi veðskulda þegar ákvörðun var tekin, þ.e. í september 2011 í stað þess að miða við stöðu áhvílandi veðskulda þann 1. janúar 2011. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að Íbúðalánasjóði beri að gæta jafnræðis og samræmis í úrlausn þeirra umsókna sem honum berast. Þá ber Íbúðalánasjóði að fylgja fyrrgreindum lögum nr. 29/2011 og þar er ekki að finna undanþágur. Í 1. mgr. 1. gr. laganna kemur fram að Íbúðalánasjóði sé heimilt að færa niður veðkröfur sjóðsins á hendur einstaklingum, að uppfylltum skilyrðum laganna, enda sé uppreiknuð staða veðkrafna 1. janúar 2011 umfram 110% af verðmæti fasteignar í eigu lántaka eða maka hans. Samkvæmt ákvæðinu ber Íbúðalánasjóði því að miða við stöðu áhvílandi veðkrafna þann 1. janúar 2011 og er ekki að finna undantekningar frá því.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið og 1. mgr. 1. gr. laga nr. 29/2011 verður því að staðfesta hina kærðu ákvörðun Íbúðalánasjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, um synjum um endurútreikning á lánum A, áhvílandi á fasteigninni að B, er staðfest.

 

Ása Ólafsdóttir,

formaður

 

Margrét Gunnlaugsdóttir                   Gunnar Eydal

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum