Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2024 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 54/2024 Úrskurður 16. apríl 2024

Mál nr. 54/2024                    Aðlögun kenninafns: Konráðsdóttir

Hinn 16. apríl 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 54/2024.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 12. apríl 2024, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX og YY um að dóttir þeirra, ZZ yrði kennnd við föður sinn, Konrad, en nafn hans aðlagað að íslensku máli, Konráð.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Konráðsdóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum