Hoppa yfir valmynd
25. mars 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 33/2021 Úrskurður 25. mars 2021

Mál nr. 33/2021                     Millinafn:       Draumland

 

 

Hinn 25. mars 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 33/2021 en erindið barst nefndinni 9. mars.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrði 6. gr. eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Draumland er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla né kvenna. Nafnið Draumland uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi laganna.

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Draumland er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum