Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2019 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 7/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 15. janúar 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 7/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU18120008

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 4. desember 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 15. nóvember 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 3. júlí 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 31. júlí 2018, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi og jafnframt að hann hefði hlotið alþjóðlega vernd þar í landi. Þann 2. ágúst 2018 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 13. september 2018, kom fram að kærandi væri með alþjóðlega vernd og gilt dvalarleyfi í Grikklandi. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 25. október 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 15. nóvember 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 20. nóvember 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 4. desember 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 14. desember 2018, ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn frá kæranda 14. janúar 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann mótmæli því að verða endursendur til Grikklands og vilji fremur deyja hér á landi. Kærandi hafi dvalið um 11 mánuði í Grikklandi og orðið fyrir miklu ofbeldi og líflátshótunum í flóttamannabúðum þar í landi vegna [...] sinnar, en hann sé [...]. Hann hafi ítrekað lagt fram kvartanir en grísk yfirvöld hafi ekkert aðhafst. Þá kveður kærandi að ómögulegt sé að fá atvinnu í Grikklandi og líf hans þar hafi verið erfitt. Hann hafi fengið framfærslufé frá Sameinuðu þjóðunum þar til um mánuði eftir gildistöku dvalarleyfis hans, en þá hafi aðstoðinni verið hætt. Í kjölfar gildistöku dvalarleyfisins hafi hann ekki fengið nokkra fjárhagslega aðstoð og þurft að sjá fyrir sér sjálfur. Þá hafi hann ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Grikklandi. Hins vegar hafi hann verið fluttur á sjúkrahús í tvígang vegna bagalegs ástands hans en hann hafi ekki haft efni á nauðsynlegri og aðkallandi aðgerð á handlegg. Þá kveður kærandi að hann hafi orðið fyrir fordómum í Grikklandi og þar séu fasistar út um allt. Hann hafi ítrekað leitað til lögreglu vegna þess en sökum tungumálaörðugleika hafi lögreglan vísað honum á dyr.

Kærandi kveður að honum hafi verið ýtt fram af þriðju hæð byggingar fyrir fjórum til fimm árum síðan og gengist undir tvær aðgerðir á handlegg í heimaríki vegna þess. Hann sé með skrúfur í handleggnum eftir slysið en handleggur hans hafi ekki enn gróið. Þá sé hann mjög verkjaður í handleggnum en hafi ekki haft efni á að gangast undir nauðsynlega skurðaðgerð í Grikklandi. Enn fremur þjáist hann af hjartsláttartruflunum, sé með óþægindi í brjóstkassa og upplifi mikla mæði. Kærandi hafi gengist undir aðgerð á handlegg hér á landi þann 13. nóvember sl. og farið í stöðumat á Landspítalanum þann 2. janúar sl. Þá kveður kærandi að hann sé þunglyndur og taki lyf vegna þess. Hann gráti m.a. mikið, hafi litla matarlyst og eigi við svefnörðugleika og framkvæmdaleysi að stríða. Þá noti hann svefnlyf og róandi lyf við kvíða sem hann þjáist af. Kærandi kveður að orsök andlegra erfiðleika hans sé sjö ára fangelsisvist í illræmdu fangelsi, þ. á m. einangrunarvist, [...].

Þá gerir kærandi athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á stöðu hans í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og vísar í því sambandi m.a. til áðurgreindra líkamlegra og andlegra vandamála sinna. Þá vísar kærandi til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 23. og 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi gerir enn fremur athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar í máli hans, einkum að stofnunin hafi lagt til grundvallar að kæranda standi til boða fullnægjandi heilbrigðisþjónusta í Grikklandi. Með vísan til reynslu kæranda og fyrirliggjandi gagna um aðstæður í Grikklandi sé að hans mati fráleitt að leggja til grundvallar að hann geti nýtt sér heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá gerir kærandi athugasemd við rökstuðning Útlendingastofnunar m.t.t. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, í tengslum við túlkun 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga um sérstakar ástæður. Kærandi kveður að þau viðmið sem sett séu fram í reglugerðinni séu nefnd í dæmaskyni og því sé ekki um að ræða upptalningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á sérstökum ástæðum. Vísar kærandi í því sambandi m.a. til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 199/2018 frá 24. apríl 2018, þar sem komi m.a. fram að það sé mat nefndarinnar að með reglugerðarbreytingunni hafi ekki verið horfið frá þeirri þróun að gefa sérstaklega viðkvæmri stöðu einstaklinga aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi í fyrsta lagi til þess að sérstakar ástæður séu uppi í máli hans, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi í því sambandi m.a. til laga nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, lögskýringargagna að baki breytingarlögunum og viðkvæmrar stöðu sinnar, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og 552/2017, frá 10. október 2017, nr. 581/2017, 583/2017 og 586/2017, frá 24. október 2017, og nr. 393/2018, frá 27. september 2018. Í framangreindum úrskurðum hafi nefndin fellt úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar, um synjun á efnismeðferð, með vísan til sérstakra ástæðna. Kærandi vísar til þess að aðstæður í Grikklandi séu bágbornar, kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu og hann þurfi á sérhæfðri læknisaðstoð að halda. Þá verði staða kæranda í Grikklandi verulega síðri en almennings þar.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi í öðru lagi til þess að endursending hans til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. einnig 42. gr. sömu laga. Vísar kærandi í því sambandi til 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna, 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Þá vísar kærandi til erfiðra aðstæðna einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi, þ. á m. húsnæðisvanda og erfiðs aðgengis að heilbrigðisþjónustu, framfærslu og vinnumarkaði, svo og fordóma gagnvart innflytjendum þar í landi.

Með greinargerð sinni lagði kærandi fram ýmis fylgigögn, þ. á m. heilsufarsgögn, ljósmyndir og myndskeið, sem hann kveður vera úr flóttamannabúðum í Grikklandi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 2. október 2017 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 5. október 2020. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára gamall [...] karlmaður sem er staddur einn hér á landi. Samkvæmt fyrirliggjandi heilsufarsgögnum hefur kærandi glímt við skerta hreyfigetu og verki í olnboga og neðri hluta upphandleggs vegna slyss sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki og aðgerðar sem hann hafi gengist undir í kjölfarið. Kærandi gekkst undir aðgerð hér á landi vegna framangreinds, þann 13. nóvember sl., þar sem plötur og skrúfur voru fjarlægðar. Samkvæmt gögnum málsins gekk aðgerðin vel en ekki tókst að fjarlægja eina plötu sem var inngróin í bein auk þess sem kærandi glímir enn við einhverja skerðingu á hreyfigetu og verki í olnboga.

Þá kemur fram í framlögðum heilsufarsgögnum að kærandi glími við háan blóðþrýsting og hjartsláttaróreglu og hafi verið með lungnabólgu, sem hann hafi fengið sýklalyfjameðferð við. Í endurritum viðtala við kæranda hjá Útlendingastofnun kemur m.a. fram að hann segist glíma við óþægindi í brjósti, mæði, þunglyndi og kvíða og noti svefnlyf, [...] og [...]. Niðurstöður kvíða- og streituprófs (e. Depression Anciety Stress Scales, DASS), sem kærandi gekkst undir á Göngudeild sóttvarna þann 14. ágúst sl., gefa til kynna að hann sé með milt þunglyndi, mildan kvíða og eðlilegt streitustig (e. normal).

Samkvæmt framansögðu hefur kærandi notið nokkurrar heilbrigðisþjónustu hér á landi og að miklu leyti fengið bót meina sinna í handlegg. Með vísan til gagna málsins, þ. á m. framburðar kæranda og fyrirliggjandi heilsufarsgagna, er það mat kærunefndar að kærandi sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Þá hefur kærandi borið fyrir sig að aðstæður hans í Grikklandi hafi verið óviðunandi og vísar í því sambandi til líkamlegrar og andlegrar heilsu sinnar. Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hann hafi orðið fyrir fordómum í Grikklandi, svo og ofbeldi og líflátshótunum vegna [...] sinnar.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018);
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018);
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • 2016 Report on International Religious Freedom – Greece (United States Department of State, 15. ágúst 2017);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015);
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014) og
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu.

Af ofangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi í Grikklandi kemur m.a. fram að trúfrelsi sé verndað í grísku stjórnarskránni og að gríska rétttrúnaðarkirkjan sé ríkiskirkja landsins.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni, við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki, nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til framangreinds tekur kærunefnd ekki undir þá málsástæðu kæranda að aðstæður hans í Grikklandi, að því leyti sem þær snúa að aðgangshindrunum að atvinnu- og húsnæðismarkaði, heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð, séu þess eðlis að flutningur hans til Grikklands myndi fela í sér brot á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Hefur kærandi m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður eigi við í máli hans þar sem hann verði fyrir alvarlegri mismunun í Grikklandi og staða hans þar sé verulega síðri en almennings. Þá sé hann í viðkvæmri stöðu vegna líkamlegrar og andlegrar vanheilsu og skortur sé á viðhlítandi heilbrigðisþjónustu, og annarri félagslegri þjónustu, honum til handa í Grikklandi.

Þrátt fyrir ýmsar aðgangshindranir hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess og notið við það þýðingar- eða túlkaþjónustu. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Af framburði kæranda og framlögðum gögnum frá Grikklandi, svo og gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður þar, verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og 552/2017, frá 10. október 2017, nr. 581/2017, 583/2017 og 586/2017, frá 24. október 2017, og nr. 393/2018, frá 27. september 2018. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í síðastgreinda málinu í ljósi einstaklingsbundinna aðstæðna þeirra, einkum þar sem um var að ræða börn, og að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í fyrstgreindum úrskurðum vegna þess að ekki er um að ræða sömu viðtökuríki.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 25. október 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 3. júlí 2018.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans, þ. á m. mat stofnunarinnar á einstaklingsbundnum aðstæðum hans og beitingu 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun, sem nefndin telur ítarlega rökstudda og vandaða, og endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 2. júlí 2018 og sótti um alþjóðlega vernd daginn eftir. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal                                                            Árni Helgason  

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum