Hoppa yfir valmynd
18. ágúst 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 277/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 18. ágúst 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 277/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16060012

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 8. júní 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. júní 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Þýskalands.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002, sbr. 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 18. apríl 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 3. apríl 2016, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 27. apríl 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 28. apríl 2016 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 2. júní 2016 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Þýskalands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 8. júní 2016 til kærunefndar útlendingamála auk þess sem óskað hafði verið eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar daginn áður. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 8. júní 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 10. júní 2016.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-

refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi vilji ekki fara aftur til Þýskalands þar sem hann óttist um líf sitt þar í landi. Hann hafi unnið á hóteli í Hamburg við ræstingar. Hann haft haft lyklavöld að geymslu þar sem búnaður til ræstinga hafi verið geymdur en eigandi hótelsins hafi einnig geymt fíkniefni þar. Hann sé þekktur fyrir að vera með fólk í vinnu við sölu fíkniefna. Efni höfðu horfið úr geymslunni og hafi eigandinn sakað kæranda um stuldinn, en kærandi væri saklaus. Kærandi hafi engin réttindi í Þýskalandi þar sem hann hafi unnið svart á hótelinu og treysti sér því ekki til þess að leita til lögreglu þar í landi. Kærandi telji sig ekki óhultan í Þýskalandi þar sem hóteleigandinn sé á eftir honum í hefndarhug. Þá hræðist hann að halda áfram í hælismeðferð þar vegna þess að hann eigi ekki von á jákvæðri niðurstöðu í máli sínu þar sem fólk í svipaðri stöðu og hann hafi verið sent þaðan til [...].

Í greinargerð kæranda kemur fram að álag sé á hæliskerfi Þýskalands í ljósi aukningar hælisumsókna þar í landi. Þýskaland sé meðal þeirra Evrópulanda sem taka við hvað flestum hælisleitendum. Móttökumiðstöðvar séu mjög fjölmennar og jafnvel yfirfullar. Ekki fáist fjármunir til þess að veita hælisleitendum viðeigandi þjónustu auk þess sem engar samræmdar reglur séu um aðbúnað fólks í slíkum miðstöðvum. Oft sé aðbúnaður ekki eins og best verði á kosið, t.d. varðandi hreinlæti. Meðal annars er vísað til skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mannréttindamál í Þýskalandi varðandi vandamál í hæliskerfi Þýskalands (Germany 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016)). Þá hafi tilvik um andúð gegn hælisleitendum komið upp í landinu.

Þá er af hálfu kæranda vísað til tillaga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá mars 2015 um aðgerðir til að takast á við komu flóttamanna til Evrópu yfir Miðjarðarhafið. Þar sé biðlað til Evrópuríkja að beita fullveldisreglu Dyflinnarreglugerðar, m.a. með það að markmiði að létta á því álagi sem sé á fáein ríki, þar á meðal Þýskalandi.

Hælisleitendur í Þýskalandi njóti takmarkaðrar lögfræðiaðstoðar við hælismál sitt. Þeir hafi ekki sjálfkrafa aðgang að lögfræðiaðstoð heldur sinni góðgerðarfélög og frjáls félagasamtök slíkri þjónustu, en það sé bundið við ákveðin svæði í Þýskalandi og standi ekki alltaf til boða. Ekkert kerfi sé til staðar sem tryggi hælisleitendum aðgang að lögfræðiaðstoð áður en hælisviðtal fari fram. Hælisleitendur verði að greiða sjálfir fyrir lögfræðiþjónustu á fyrsta stjórnsýslustigi. Fari þeir með málið fyrir dómstóla geti þeir sótt um gjafsókn og hvort fallist verði á slíka beiðni velti á því hversu líklegt dómstólnum þyki að fallist verði á hælisumsóknina, en sami dómstóll taki ákvörðun um gjafsókn og dæmi í hælismálinu. Eins og þetta fyrirkomulag um réttaraðstoð sé þá virðist möguleiki hælisleitenda á að gæta réttinda sinna takmarkaður.

Í greinargerð kæranda er vísað til d-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga og lögskýringagagna að baki þeim. Vísað sé til þess að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a kveði á um heimild til að synja um efnismeðferð en ekki skyldu. Þá geri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga ekki kröfu um að kerfisbundinn ágalli sé á meðferð hælisumsókna eða aðbúnaði hælisleitenda í móttökuríki til þess að taka megi mál til efnismeðferðar. Ákvæðið geri heldur ekki kröfu um að endursending feli í sér

brot gegn 45. gr. laga um útlendinga heldur geri hún kröfu um að fram fari sérstakt mat í hverju tilviki fyrir sig hvort sérstakar ástæður mæli með að umsókn verði tekin til efnismeðferðar hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort Útlendingastofnun hafi tekið rétta ákvörðun þegar ákveðið var að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Þýskalands. Úrlausnarefni málsins er afmarkað við það hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og skuli taka hana til efnislegrar meðferðar.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu í málum er varða Grikkland og Ítalíu getur sú staða komið upp að óheimilt sé að endursenda hælisleitendur til einstakra ríkja vegna ástands í viðkomandi móttökuríki. Aðildarríki mannréttindasáttmálans verða að vera meðvituð um alvarlega galla sem kunna að vera á meðferð hælisumsókna eða móttöku hælisleitenda í því aðildarríki sem endursenda skal til á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Verður því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð í Þýskalandi.

Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir skýrslur um aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, sbr. m.a.:

* Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, nóvember 2015)

* Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015)

* Reception of female refugees and asylum seekers in the EU: Case study Germany (Directorate-General for Internal Policies, Policy Department C: Citizens‘ rights and Constitutional Affairs, European Parliament, febrúar 2016)

* Germany 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016)

* Amnesty International Report 2014/15 - Germany (Amnesty International, 25. febrúar 2015)

* Freedom in the world 2015 – Germany (Freedom House, 15. apríl 2015).

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Þýskalands brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi byggir á því að hann sé ekki óhultur í Þýskalandi því hann hræðist eiganda hótels sem hann vann hjá. Hann kveður eiganda hótelsins hafa ásakað sig um stuld á fíkniefnum í hans eigu. Af ofangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Þýskalandi má ráða að kærandi getur leitað aðstoðar lögreglu eða annarra yfirvalda í Þýskalandi óttist hann fyrrverandi atvinnuveitanda sinn.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 30. maí 2016 eiga nokkra vini hér á Íslandi. Áður en kærandi kom hingað til lands hafði hann aldrei verið búsettur hérlendis, en kærandi sótti um hæli hér á landi þann 11. apríl 2016. Til þess er að líta að koma kæranda til Íslands og dvöl hans hér tengist einvörðungu umsókn hans um hæli hér á landi, en ekki því að hann hafi átt hér fjölskyldu eða ættingja. Það að kærandi eigi vini hér á landi leiðir ekki til þess að uppfyllt séu skilyrði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga, um sérstök tengsl við Ísland. Til viðbótar má nefna að í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar um viðmiðanir til að ákvarða hvaða aðildarríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd, er miðað við fjölskyldutengsl, sbr. einnig g.- og h. – lið 2. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Ekkert annað í gögnum máls sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Þýskalands með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson Anna Tryggvadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum