Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 10/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 14. janúar 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 10/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20120006

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 1. desember 2020 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Pakistan (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. nóvember 2020, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt staða flóttamanns með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 14. maí 2018. Með ákvörðun, dags. 9. október 2018, komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi skyldi sendur til Slóveníu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 16. október 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 30. október 2018 til kærunefndar útlendingamála. Með úrskurði kærunefndar, dags. 12. desember 2018, var ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest. Samkvæmt gögnum málsins varð ekki af fyrirhuguðum flutningi kæranda úr landi þann 14. maí 2019 þar sem kærandi fannst ekki. Kærandi kom aftur til landsins þann 31. ágúst 2020 og sótti um alþjóðlega vernd að nýju þann sama dag. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 13. október 2020 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 10. nóvember 2020, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 1. desember 2020. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 15. desember 2020. Í greinargerð óskaði kærandi eftir því að honum yrði gefinn kostur á að mæta fyrir nefndina og gera grein fyrir máli sínu. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna fjölskyldudeilna. Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar í fyrri greinargerð sína til Útlendingastofnunar, dags. 29. október 2020, hvað varðar ástæður flótta, aðstæður í heimaríki og málsástæður og lagarök til stuðnings kröfum sínum. Kemur þar fram að kærandi, sem sé fæddur og uppalinn í þorpinu [...] í Pakistan, hafi yfirgefið heimaríki vegna fjölskyldudeilna. Föðurbróðir kæranda, maður að nafni [...], hafi ætlað að neyða kæranda til að kvænast dóttur hans. Þá hafi hann beitt kæranda ofbeldi og lokað hann inn í herbergi eftir að hann hafi séð til kæranda drekka áfengi í brúðkaupi í lok árs 2016. Í kjölfar þess hafi kærandi flúið til nálægrar borgar þar sem hann hafi dvalið í 10-12 daga, eða allt þar til fólk á vegum [...] hafi haft uppi á honum og flutt hann nauðugan aftur heim. Hafi [...] þá beitt kæranda frekara ofbeldi í viðurvist foreldra hans sem hafi ekki getað komið honum til varnar. Þá hafi hann gert þeim að flytja úr húsinu hans og síðar af landsvæði fjölskyldunnar sem hann kvað þau ekki eiga rétt til. Hafi það leitt til langvinnrar landadeilu sem hafi endað með því að [...] hafi skotið móður kæranda til bana. Faðir kæranda hafi þá orðið hræddur um líf kæranda og hafi hann því aðstoðað hann við að flýja Pakistan. Þá kemur fram að kærandi hafi ekki getað leitað aðstoðar lögreglu eða yfirvalda vegna málsins þar sem að [...] væri auðugur og hefði ítök innan lögreglunnar í Pakistan.

Í ofangreindri greinargerð kæranda er fjallað almennt um aðstæður og stöðu mannréttinda í heimaríki hans sem og öryggisástand landsins. Kveður kærandi að almennt öryggisástand þar í landi sé afar ótryggt, m.a. vegna árása og ofbeldis af hálfu hryðjuverkahópa. Heimildir beri með sér að yfirvöld, m.a. lögregluyfirvöld, beiti pyndingum gegn borgurum landsins í skjóli refsileysis. Í greinargerðinni er ítarleg umfjöllun um heiðursglæpi í Pakistan. Í því sambandi vísar kærandi til fjölda skýrslna og gagna, þ. á m. skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar fyrir árið 2018.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi heldur því fram í ofangreindri greinargerð að hann uppfylli skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hann eigi á hættu ofsóknir í heimaríki vegna aðildar sinnar að sérstökum þjóðfélagshópi, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laganna. Kærandi hafi ekki orðið við kröfu frænda síns um að giftast dóttur hans og hafi af þeim sökum þurft að þola líkamlegt og andlegt ofbeldi. Málið hafi undið upp á sig með þeim hætti að frændi kæranda hafi rekið fjölskyldu hans af heimili sínu og myrt móður hans. Þá vísar kærandi til ákvæða a- og c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga um að ekki sé raunhæft að leita ásjár yfirvalda.

Til vara er gerð sú krafa að kæranda verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ofangreindri greinargerð kemur fram að kærandi eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum í Pakistan. Almennt öryggisástand í Pakistan sé mjög ótryggt og gríðarlegt mannfall sé ár hvert vegna árása af hálfu öryggissveita ríkisins og hryðjuverkasamtaka. Yfirvöld beiti borgara sína pyndingum og brjóti þannig á mannréttindum þeirra. Þá telur kærandi, í ljósi þess hve mikil sambönd frændi hans hafi, að hann geti ekki leitað aðstoðar pakistanskra yfirvalda.

Til þrautavara gerir kærandi kröfu um að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í ofangreindri greinargerð kæranda kemur fram að krafan sé byggð á því hann muni búa við afar erfiðar félagslegar aðstæður í heimaríki, verði honum gert að snúa aftur. Kærandi standi frammi fyrir útskúfun í heimaríki vegna ágreinings síns og heiðursdeilu við frænda sinn sem hafi, vegna tengsla sinna innan lögreglunnar í Pakistan, getu til að nýta sér sambönd sín meðal yfirvalda eftir þörfum. Af þeim sökum geti kærandi og fjölskylda hans ekki leitað verndar lögreglu eða yfirvalda. Verði kæranda gert að snúa aftur til heimaríkis telji hann að það brjóti gegn grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Í greinargerð kæranda til kærunefndar er gerð athugasemd við mat Útlendingastofnunar að meiri líkur séu á því að kærandi búi yfir, eða geti orðið sér úti um, gögn sem leggi grunn að málsástæðum hans vegna þess hve langur tími hafi liðið frá því að hinir meintu atburðir hafi átt sér stað. Kærandi telji, m.a. í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem umsækjendur um alþjóðlega vernd séu í, að gera skuli minna kröfur um sönnunarfærslu en ella láta umsækjendur njóta vafans.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem væri til þess fallið að sanna á honum deili. Leysti stofnunin því úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Í fyrri málsmeðferð sinni hjá Útlendingastofnun hafi fundist jákvæð samsvörun fingrafara kæranda í gagnagrunni Eurodac vegna umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd í Slóveníu. Frá slóvenskum yfirvöldum hafi fengist þær upplýsingar að kærandi væri þekktur þar í landi sem [...], ríkisborgari Pakistan. Útlendingastofnun hafi ekki talið að kærandi hafi sannað hver hann væri með fullægjandi hætti, en með vísan til framangreinds og samþykkis slóvenskra yfirvalda um endurviðtöku kæranda, hafi stofnunin lagt til grundvallar að kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd undir gefnu auðkenni og sé ríkisborgari Pakistan. Kærunefnd hefur ekki forsendur til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á auðkenni kæranda og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé pakistanskur ríkisborgari. Að öðru leyti er auðkenni kæranda óljóst.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Pakistan, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2019 Country Reports on Human Rights Practices: Pakistan (U.S. Department of State, 11. mars 2020);
  • Country Information and Guidance Pakistan: Women fearing gender-based violence (UK Home Office, febrúar 2020);
  • Country Policy and Information Note. Pakistan: Background information, including actors of protection, and internal relocation (UK Home Office, júní 2020);
  • DFAT Country Information Report. Pakistan. (Australian Government. Department of Foreign Affairs and Trade, 20. febrúar 2019); 
  • EASO Country of Origin Report – Pakistan Security Situation (EASO, 30. október 2020);
  • Freedom in the World 2020 – Pakistan (Freedom House, 11. mars 2020);• Pakistan: Country Report (Asylum Research Consultancy, 18. júní 2018);
  • Pakistan. Ekteskap og skilsmisse (Landinfo, 24. júlí 2020);
  • Pakistan: Honour killings targeting men and women (Immigration and Refugee Board of Canada, 15. janúar 2013);
  • Pakistan: First Information Reports (FIRs) (2010-December 2013) (Immigration and Refugee Board of Canada, 10. janúar 2014);
  • Pakistan - Mänskliga rättigheter, demokrati och rättstatens principer: situationen per den 31 december 2018 (Utrikesdepartimentet, 18. júní 2019);
  • Pakistan Security Situation. Country of Information Report (European Asylum Support Office, október 2019);
  • State of Human Rights in 2018 (Human Rights Commission of Pakistan, 16. apríl 2019);
  • State of Human Rights in 2019 (Human Rights Commission of Pakistan, 30. apríl 2020);
  • Vefsíða Human Rights Commission of Pakistan (http://hrcp-web.org/hrcpweb/);
  • Vefsíða lögreglunnar í Punjab (https://www.punjabpolice.gov.pk/igp_complaint_center_8787);
  • Vefsíða Human Rights Commission of Pakistan (http://hrcp-web.org/hrcpweb/);
  • Vefsíða: Office of the Ombudsman Punjab (http://www.ombudsmanpunjab.gov.pk/mandate);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 14. janúar 2021);
  • The World Factbook: Pakistan (Central Intelligence Agency, 17. desember 2020);
  • World Report 2020 – Pakistan (Human Rights Watch, 15. janúar 2020) og
  • Stjórnarskrá Pakistan (http://na.gov.pk/uploads/documents/1333523681_951.pdf).

Samkvæmt ofangreindum gögnum er Pakistan sambandslýðveldi með rúmlega 233 milljónir íbúa. Þann 30. september 1947 gerðist Pakistan aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi árið 2010 og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 2008. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1966 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2010. Þá fullgilti ríkið jafnframt samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1996, en ríkið hefur hins vegar ekki undirritað valfrjálsa viðbótarbókun við samninginn. Pakistan fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 kemur fram að þrátt fyrir að pakistönsk löggjöf banni handahófskenndar handtökur og varðhald, jafnframt sem lögin kveði á um rétt til að vefengja lögmæti handtöku fyrir dómi, þá sé spilling innan lögreglunnar vandamál í Pakistan. Spilling á lægri stigum lögreglunnar sé algeng og séu dæmi um að lögreglan þiggi mútur. Einstaklingar tilkynni um meinta glæpi eða brot til lögreglunnar með svokallaðri FIR skýrslu (e. first instance report). FIR skýrslan sé fyrsta skrefið við rannsókn sakamáls og sé hún oftast lögð fram af þriðja aðila þó svo að lögreglan hafi heimild til að gera slíka skýrslu sjálf. FIR skýrslan veiti lögreglunni heimild til að halda meintum brotamanni í gæsluvarðhaldi í 24 klukkustundir á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Hægt sé að leggja fram slíka skýrslu hjá lögreglumanni, á lögreglustöð og á vefsíðum ákveðinna lögregluembætta í Pakistan. Þá hafi lögreglan í Punjab sett upp rafrænt kvörtunarkerfi til þess að taka á móti kvörtunum almennra borgara sem telji lögregluna ekki hafa sinnt skyldum sínum. Kvörtunum vegna þess að FIR skýrsla hafi ekki verið skráð eigi að svara innan 72 klukkustunda.

Í fyrrnefndri skýrslu kemur fram að þrátt fyrir að pakistönsk lög kveði á um sjálfstætt dómskerfi, réttláta málsmeðferð og að enginn skuli sviptur lífi, eignum eða frelsi án dóms og laga beri gögn með sér að dómskerfið hafi verið gagnrýnt fyrir spillingu. Spilling sé innan héraðsdómstóla en þeir séu afkastalitlir og undir þrýstingi frá auðugum og áhrifamiklum einstaklingum, einkum á sviði trúar- og stjórnmála. Þá kemur fram að þrátt fyrir að veikleikar séu í réttarkerfinu í Pakistan þá sé spilling refsiverð samkvæmt lögum, en ábyrgðarskrifstofa ríkisins (e. National Accountability Bureau (NAB)) hafi það hlutverk að útrýma spillingu í stjórnkerfum landsins með vitundarvakningu, forvörnum, rannsókn spillingarmála jafnframt sem skrifstofan ákæri í slíkum málum. NAB hafi heimild samkvæmt lögum að halda einstaklingum í 15 daga án þess að ákæra og mögulegt sé að framlengja varðhaldið með samþykki dómstóla. Synja megi einstaklingnum um leyfi til að ráðfæra sig við lögmann meðan á rannsókn standi. Þá sé ekki unnt að greiða tryggingu til að losna úr varðhaldi heldur sé það einungis ákvörðun formanns NAB að láta einstakling lausan.

Í framangreindum skýrslum EASO frá 2019 og 2020 kemur fram að að öryggisástand í Pakistan sé breytilegt eftir landshlutum en heimahérað kæranda, Punjab, sé eitt af öruggustu héruðum landsins. Samkvæmt ofangreindri skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2019 séu pólitískt ofbeldi, uppreisnarmenn, aðskilnaðarsinnar og sértrúarhópar helstu þættir sem hafi áhrif á öryggisástand landsins. Stjórnvöld og öryggissveitir séu með yfirráð á nærri öllum landssvæðum í Pakistan, einkum í helstu borgum og bæjarfélögum. Átök milli uppreisnarhópa og hersins valdi mestu mannfalli í Pakistan og sé fjöldi látinna þar í landi fremur lágur miðað við fjölda og dreifingu íbúa landsins. Þá eigi almennir borgarar almennt ekki á hættu að verða fyrir ofbeldi vegna hernaðarátaka í Pakistan.

Á vefsíðu starfandi umboðsmanns í Punjab (e. Ombudsman Punjab) kemur fram að hann hafi m.a. það hlutverk að vernda rétt borgaranna gegn brotum opinberra starfsmanna og koma í veg fyrir spillingu. Umboðsmaðurinn geti tekið til skoðunar öll ætluð brot opinberra starfsmanna sem varði borgara landsins að undanskildum ætluðum brotum æðsta dómstólsins (e. High Court) og dómstóla sem vinni undir yfirstjórn hans.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2020 og framangreindri skýrslu bandaríska utanríkis-ráðuneytisins kemur fram að pakistönsk stjórnvöld hafa á síðustu árum unnið að því að bæta lagaumhverfi varðandi heiðursglæpi. Breytingunum hafi einkum verið ætlað að bæta réttarstöðu kvenna, m.a. með því að auka aðgengi þeirra að dómstólum og koma á fót skilvirku kerfi sem verndi þær og aðstoði verði þær fyrir ofbeldi. Þá hafi lögum verið breytt árið 2016 til að koma í veg fyrir að gerendur gætu komist undan refsingu með því að fá fyrirgefningu frá fjölskyldumeðlimum þolenda heiðursglæpa. Refsingar vegna heiðursglæpa hafi jafnframt verið þyngdar á árinu 2016.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann eigi á hættu að verða fyrir heiðurstengdu ofbeldi eða heiðursmorði í heimaríki af hendi frænda síns að nafni [...]. Annars vegar vegna þess að hann hafi neitað að kvænast dóttur hans og hins vegar vegna þess að hann hafi orðið uppvís um að drekka áfengi í brúðkaupi í lok árs 2016. [...] hafi ítrekað beitt kæranda ofbeldi vegna framangreinds. Þá hafi hann rekið foreldra kæranda úr íbúðinni þeirra og síðar skotið móður kæranda til bana. Kærandi kveðst ekki geta leitað aðstoðar lögreglu eða yfirvalda vegna málsins þar sem að [...] sé auðugur og hafi sambönd innan lögreglunnar í Pakistan.

Kærandi hefur hvorki lagt fram gögn sem styðja við frásögn hans af ofangreindri atburðarás, t.a.m. gögn um tilvist téðs [...] og tengsl hans innan lögreglu eða yfirvalda í heimaríki eða um andlát móður hans. Í ljósi frásagnar kæranda sjálfs um að ætlaðar ofsóknir hafi átt sér stað fyrir um fjórum árum síðan er að mati kærunefndar ekki ósanngjarnt að gera kröfu um að kærandi leggi fram einhver gögn er leggi grunn að málsástæðum hans. Þrátt fyrir það telur kærunefnd, m.a. í ljósi stöðugs framburðar kæranda um ástæður flótta frá heimaríki frá því að að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi þann 14. maí 2018, að leggja megi til grundvallar að kærandi kunni að hafa orðið fyrir áreiti og ofbeldi í heimaríki af hálfu frænda síns.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu stjórnvalda í heimaríki sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Af framburði kæranda verður þó ráðið að hann telji sig ekki geta fengið aðstoð hjá lögreglu eða yfirvöldum vegna þeirra tengsla sem frændi hans, [...], hafi innan lögreglunnar í Pakistan. Þó að fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé að nokkru leyti ábótavant og spilling sé talsverð í landinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld í Pakistan geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá hefur kærandi, líkt og að ofan er rakið, ekki framvísað gögnum um að títtnefndur frændi hans hafi tengsl innan lögreglunnar eða yfirvalda í heimaríki og gæti þar með komið í veg fyrir að kærandi njóti aðstoðar þeirra. Verður því ekki lagt til grundvallar í málinu að kærandi geti ekki leitað aðstoðar yfirvalda vegna áreitis eða ofbeldis af hálfu frænda síns.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi ber fyrir sig ótryggt öryggisástand í heimaríki. Þá telur kærandi að hann geti ekki treyst á vernd yfirvalda í heimaríki vegna þeirrar hættu sem hann sé í. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrota í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður í heimaríki telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera með eyrnaverk og hafa fengið gröft í eyrun en vera heilsuhraustur að öðru leyti. Þegar framangreindar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem heimaríki kæranda kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands þann 31. ágúst 2020 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar, með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Í ljósi Covid-19 faraldursins er athygli kæranda einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.  

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

Þorbjörg I. Jónsdóttir                                                          Sindri M. Stephensen

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum