Hoppa yfir valmynd
9. desember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 644/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 9. desember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 644/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21110031

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 9. nóvember 2021 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. október 2021, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Þess er aðallega krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að taka mál hennar til meðferðar á ný. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 en til þrautavara á grundvelli 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi hinn 3. janúar 2021. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, hinn 12. janúar 2021, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þá kom þar fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi hinn 3. apríl 2020. Með umsókn framvísaði kærandi grísku dvalarleyfisskírteini með gildistíma til 8. júlí 2023 og flóttamannavegabréfi gefnu út af grískum stjórnvöldum með gildistíma til 21. október 2025. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun hinn 18. janúar 2021, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað hinn 1. mars 2021 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Kærði kærandi ákvörðunina hinn 16. mars 2021 til kærunefndar útlendingamála. Hinn 3. júní 2021 var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun dagana 23. og 24. júní 2021. Með ákvörðun dags. 22. október 2021, synjaði Útlendingastofnun öðru sinni að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda hinn 26. október 2021. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar hinn 9. nóvember 2021. Greinargerð kæranda barst kærunefnd hinn 19. nóvember 2021, ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn hinn 24. nóvember 2021.

 

III.      Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Grikklands.

IV.      Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að eftir að hún hafi hlotið alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi framfærsla stöðvast og henni tjáð að hún þyrfti að yfirgefa flóttamannabúðirnar. Kærandi hafi á tímabili verið heimilislaus áður en hún hafi loks komist til Aþenu en þar hafi hún fundið húsaskjól í kirkju. Kærandi hafi aldrei fengið upplýsingar um húsnæði eða aðstoð í Grikklandi og henni sagt að bjarga sér sjálf. Kæranda hafi verið ógnað með hníf og hún verið rænd í Grikklandi auk þess sem kærandi hafi orðið vitni að því þegar vinkonu hennar var nauðgað í flóttamannabúðunum og hún myrt. Kærandi hafi greint frá því að hafa ekki fengið almanntrygginganúmer eftir að hún hlaut alþjóðlega vernd í Grikklandi. Þá hafi kærandi ekki getað sótt um atvinnu enda hafi hún ekki haft þar til bær gögn og ekki talað grísku. Þá hafi kærandi ekki fengið félagslega aðstoð í Grikklandi.

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til kærunefndar, dags. 25. mars 2021, en hún ber fyrir sig sömu málsástæður og þar komi fram. Kærandi gerir þar ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar m.a. við mat stofnunarinnar á aðgengi hennar að heilbrigðisþjónustu, húsnæði, félagslegri aðstoð og atvinnu í Grikklandi. Þá andmælir kærandi mati Útlendingastofnunar á að hún geti leitað á náðir lögreglu eða annarra yfirvalda telji hún á sér brotið.

Kærandi gerir kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir stofnunina að taka mál hennar til meðferðar á ný. Krafan byggir á því að slíkir annmarkar hafi verið á málsmeðferð kæranda hjá Útlendingastofnun að rétt sé að ógilda ákvörðunina. Í kjölfar úrskurðar kærunefndar í máli kæranda, dags. 3. júní 2021, hafi kærandi verið boðuð í framhaldsviðtal hjá Útlendingastofnun. Þar hafi kærandi greint frá því að hafa ekki verið með almannatrygginganúmer í Grikklandi. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi átt að ganga úr skugga um framangreint áður en ákvörðun var tekin, t.d. með því að afla umræddra upplýsinga frá grískum yfirvöldum. Þá gerir kærandi athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um möguleika flóttafólks til að afla sér almannatrygginganúmers. Kærandi gerir einnig athugasemd við tilvísun Útlendingastofnunar til svars Flóttamannastofnunar, dags. 10. mars 2020, vegna fyrirspurnar kærunefndar. Kærandi vísar til þess að það sem fram komi í svari Flóttamannastofnunar styðji frásögn hennar um að verulegar hindranir séu til staðar hvað varðar aðgang að nauðsynlegum skráningum. Í ljósi framangreinds og þess að Útlendingastofnun lét hjá líða að afla fullnægjandi upplýsinga um það hvort kærandi hafi í raun skatt-og almannatrygginganúmer í Grikklandi, líkt og kærunefnd taldi sérstakt tilefni til, sé rannsókn málsins eftir sem áður áfátt og brjóti gegn 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Til vara gerir kærandi þá kröfu að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar byggt á því að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar um 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, þar sem fram komi viðmið hvað varðar mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar. Þá fjallar kærandi um álit trúnaðarlæknis á heilsufari hennar en hún telur það verulega ábótavant m.a. þar sem gögnin sem trúnaðarlæknir var fengin til að meta voru orðin fimm mánaða gömul þegar álitið var skrifað. Þá kemur hvergi fram í áliti læknisins hvort að heilsufari kæranda sé stefnt í hættu ef rof verði á meðferð eða þjónustu. Kærandi gerir athugasemd við álit trúnaðarlæknisins og vísar til þess að ekki hafi farið fram mat á andlegu ástandi kæranda eins og það sé í dag. Þá hafi Útlendingastofnun ekki óskað eftir uppfærðum heilsufarsgögnum fyrr en eftir að álit læknisins lá fyrir. Þá vísar kærandi til þess að einum degi eftir að talsmaður hennar hafi sent heilsufarsgögn sem báru með sér að andleg heilsa hennar væri slæm hafi hún verið boðuð í birtingu hjá Útlendingastofnun. Kærandi mótmælir mati Útlendingastofnunar á andlegri heilsu hennar og vísar til fyrirliggjandi heilsufarsgagna í máli hennar. Sé litið til framburðar kæranda og fyrirliggjandi heilsufarsgagna megi draga þá ályktun að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi, enda hafi hún endurtekið lýst því yfir að hún vilji svipta sig lífi auk þess að hafa í þrjú skipti gert tilraun til þess á síðustu misserum. Kærandi telur því ljóst að hún glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm. Kærandi vísar þá til þess að aðgangur flóttafólks að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi séu verulegum takmörkunum háður auk þess sem hún sé ekki með skatt- eða almannatrygginganúmer í Grikklandi

Kærandi gerir athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar um kröfu hennar um efnismeðferð á grundvelli 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Kærandi vísar til þess að íslensk stjórnvöld hafi ekki sent umsækjendur um alþjóðlega vernd til Grikklands á vegum Dyflinnarreglugerðarinnar frá því í október 2010. Kærandi vísar til þess að samkvæmt mannréttindasáttmálanum geti efnahagslegar ástæður, einar og sér talist til brota gegn sáttmálanum, þ.e. þegar aðstæður nái ákveðnum alvarleikaþröskuldi. Vísar kærandi til dóma Mannréttindadómstóls Evrópu máli sínu til stuðnings. Kærandi telur að í ljósi frásagnar hennar af aðstæðum sínum í Grikklandi sem og fjölmargra heimilda sem beri saman um óviðunandi aðstæður flóttafólks í Grikklandi, að endursending hennar til Grikklands feli í sér verulega hættu á því að hún verði fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð og gerir því þá kröfu að umsókn hennar verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi hinn 3. apríl 2020 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 8. júlí 2023. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

 

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2020 – Country Reports on Human Rights Practices: Greece (United States Department of State, 30. mars 2021);
  • Amnesty International Report 2020/21 – Greece (Amnesty International, 7. apríl 2021);

  • Annual report 2019 – Executive Summary (The Greek Ombudsman Independent Authority, 31. desember 2019);
  • Asylum Information Database, Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, júní 2020);
  • Beneficiaries of international protection in Greece – Access to documents and socio-economic rights (Refugee Support Aegean, 22. mars 2021);
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018);
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017);
  • Excluded and segregated – The vanishing education of refugee children in Greece (Refugee Support Aegean, 13. apríl 2021);

  • Freedom in the World 2020 – Greece (Freedom House, 5. júní 2020);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015);
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017);
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017);
  • Report on the Living Conditions of Beneficiaries of International Protection in Greece (Passerell, nóvember 2020);
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017);

  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016);
  • Upplýsingar af vefsíðu Doctors of the World (https://mdmgreece.gr/);
  • Upplýsingasíða Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (https://help.unhcr.org/greece/living-in-greece/access-to-education/, sótt 9. desember 2021);
  • Upplýsingar af vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal): https://e-justice.europa.eu;
  • Upplýsingasíða Refugee Info Greece (http://refugee.info/greece/, sótt 9. desember 2021);
  • Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (https://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 9. desember 2021);
  • Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-eueea, sótt 9. desember 2021) og
  • World Report 2021 – European Union (Human Rights Watch, 13. janúar 2021).

Af framangreindum gögnum verður ráðið að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur meðal annars bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagsástand í Grikklandi hafi haft á aðstæður einstaklinga sem hlotið hafi vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifi oft á jaðri samfélagsins og búi í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sambærilegan rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst jafnframt aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá því í júní 2021 eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu með sömu skilyrðum og grískir ríkisborgarar, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt fyrrnefndri skýrslu hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu þar í landi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Þetta eigi jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafi rétt til dvalar í ríkinu. Auk þess hafi útgáfa almannatrygginganúmera (AMKA) (áður nefnt kennitölur) falið í sér hindranir fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd við að afla sér heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt upplýsingasíðu Refugee Info Greece fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafa verndar í Grikklandi og sem veitir upplýsingar á grísku, arabísku, farsi, urdu, frönsku, lingala/bantu, norður-kúrdísku og ensku hafi allir umsækjendur um alþjóðlega vernd fengið svokallað AMKA eða almannatrygginganúmer sem veitti þeim m.a. aðgang að heilbrigðiskerfinu. Í janúar 2020 hafi skilyrði fyrir útgáfu almannatrygginganúmera breyst og fái umsækjendur um alþjóðlega vernd nú útgefin tímabundin almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmer (PAAYPA), meðan þeir sem hlotið hafa alþjóðlega vernd fái útgefið varanlegt almannatrygginganúmer. Þegar umsækjanda sé veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi verði almannatrygginga- og heilbrigðisþjónustunúmerið óvirkt mánuði eftir að viðkomandi hljóti dvalarleyfi. Einstaklingar geti þá í kjölfarið sótt um varanlegt almannatrygginganúmer í næstu þjónustumiðstöð. Til að sækja um slíkt númer þurfi einstaklingar að framvísa dvalarleyfi eða ferðaskilríkjum og staðfestingu á heimilisfangi. Til að fá varanlegt almannatrygginganúmer gefið út sé nægilegt að sýna fram á heimilisfang í búðum eða í gistiskýli. Þá segir á upplýsingasíðunni að samkvæmt gildandi löggjöf séu allir aðilar í hinum opinbera heilbrigðisgeira skyldugir til að veita öllum fyrstu hjálp þegar nauðsyn beri til. Eigi allir rétt á að leita til sjúkrahúsa og fá ókeypis læknisþjónustu og lyf sem þeir þarfnist þrátt fyrir að viðkomandi hafi hvorki PAAYPA eða AMKA númer. Á upplýsingasíðunni er unnt að eiga í samskiptum við þjónustufulltrúa á netspjalli í gegnum Facebook á áðurgreindum tungumálum. Á upplýsingasíðunni er einnig hægt að nálgast skjal á grísku sem hlaða má niður þar sem þessi réttur til þjónustu fyrir alla er útskýrður.

Í skýrslu ECRE kemur fram að aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi að húsnæði sé háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með heimild til dvalar í Grikklandi. Fá gistiskýli séu í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði sé til staðar sem einungis sé ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt geti reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin sé mikil og dæmi séu um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum og yfirfullum íbúðum við mjög bágar aðstæður. Eigi þetta einnig við um einstaklinga sem hafi verið sendir aftur til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum. Þá hafi í mars 2020 verið gerðar breytingar á útlendingalöggjöfinni í Grikklandi sem kveði á um að þegar ákvörðun um að veita alþjóðlega vernd liggi fyrir skuli draga úr fjár- og húsnæðisstuðningi. Handhöfum alþjóðlegrar verndar sem dvelji í úrræðum innan hins svokallaða ESTIA kerfi eða öðrum úrræðum, þar með talið hótelum og íbúðum, sé skylt að yfirgefa þau innan 30 daga eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þó séu undantekningar frá þessari reglu, sérstaklega þegar um sé að ræða fólk sem glími við alvarlegan heilsubrest. Í skýrslu Passerell frá því í nóvember 2020 kemur fram að félagasamtök bjóði upp á gistiúrræði fyrir einstaklinga með alþjóðlega vernd í Grikklandi en langur biðlisti sé eftir plássi þar og barnafjölskyldur og einstaklingar í viðkvæmri stöðu gangi fyrir.

Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar með alþjóðlega vernd eigi sambærilegan rétt á félagslegri aðstoð og grískir ríkisborgarar. Erfiðleikar geti þó verið til staðar við að nálgast félagslegar bætur vegna ákveðinna kerfishindrana, m.a. þurfi einstaklingar sem hyggist sækja um félagslegar bætur að leggja fram ákveðin skjöl s.s. fæðingarvottorð, upplýsingar um fjölskyldustöðu og prófskírteini. Þá hafi einstaklingar fengið synjun á umsókn sinni frá opinberum starfsmönnum þvert á reglur um jafnræði í grískum lögum. Þær félagslegu bætur sem í boði séu í Grikklandi séu t.d. bætur fyrir fjölskyldur en skilyrði fyrir slíkum bótum sé að sýnt sé fram á fimm ára óslitna og varanlega búsetu í Grikklandi. Þá veiti grísk yfirvöld einstaklingum, m.a. handhöfum alþjóðlegrar verndar, sem búi undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna, svokallaðan KEA styrk. Þá séu í reynd engir aðrir framfærslustyrkir en KEA í boði. Jafnframt séu engin sérúrræði til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga. Þá sé félagsleg aðstoð ekki bundin við búsetu á tilteknum stað.

Samkvæmt skýrslu ECRE hafa einstaklingar með alþjóðlega vernd aðgang að atvinnumarkaðnum með sömu skilyrðum og ríkisborgarar Grikklands. Ekki sé þörf á sérstöku atvinnuleyfi. Atvinnuleysi sé hins vegar mikið í landinu og samkeppni við grískumælandi einstaklinga og erfiðleikar við að fá skattnúmer (AFM) útgefið dragi úr atvinnumöguleikum handhafa alþjóðlegrar verndar. Þessir erfiðleikar við að sækja sér atvinnu hafi leitt til þess að einstaklingar reyni að afla sér tekna með óformlegum og jafnvel ólöglegum leiðum sem hindri þar með aðlögun þeirra að samfélaginu. Samkvæmt rannsókn frá árinu 2018 hafi meirihluti þeirra flóttamanna sem þá hafi verið starfandi verið í óskráðu starfi. Þeir einstaklingar sem ekki starfi innan hins hefðbundna atvinnumarkaðar hafi ekki aðgang að almannatryggingakerfinu og vinni sér ekki inn atvinnutengd réttindi, s.s. atvinnuleysisbætur. Mikill meirihluti einstaklinga með alþjóðlega vernd og umsækjendur um vernd reiði sig því á fjárhagsaðstoð og dreifingu matvæla og muna af hálfu stjórnvalda og mannúðarsamtaka til þess að uppfylla grunnþarfir sínar. Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafi mætt erfiðleikum við að fá útgefið skattnúmer hjá grískum stjórnvöldum. Útgáfa skattnúmers sé grundvöllur þess að geta lifað og starfað löglega í Grikklandi og þess að einstaklingar geti sótt aðstoð og réttindi hjá grískum stjórnvöldum. Skattnúmerið sé forsenda þess að geta sótt um félagslega aðstoð, til að vinna hvort sem er sem starfsmaður hjá öðrum eða að hefja eigin rekstur, og til þess að gera samninga um leigu á húsnæði. Samkvæmt upplýsingasíðu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd þurfi einstaklingar sem hyggjast sækja um skattnúmer að framvísa ferðaskilríki eða dvalarleyfi og staðfestingu á heimilisfangi eða heimilisleysi. Umsóknarferlið fari einungis fram á grísku en umsækjendur geti leitað eftir aðstoð hjá endurskoðendum eða frjálsum félagasamtökum.

Vegna heimilda um þessa erfiðleika varðandi útgáfu skattnúmera sendi kærunefnd útlendingamála árið 2020 fyrirspurn til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og óskaði eftir upplýsingum um hvort stofnuninni væri kunnugt um hindranir sem einstaklingar með alþjóðlega vernd í Grikklandi kunni að mæta við að verða sér úti um slíkt skattnúmer. Í svari Flóttamannastofnunnar, dags. 10. mars 2020, kemur m.a. fram að almennt þurfi að sækja um skattnúmerið í eigin persónu hjá viðeigandi stjórnvaldi, umsóknina þurfi að fylla út á grísku og sýna þurfi skilríki s.s. dvalarskírteini. Þá sé engin túlkaþjónusta í boði en öll málsmeðferðin, bæði skriflega umsóknin og samskipti við stjórnvöld, þurfi að fara fram á grísku. Starfsmenn grískra yfirvalda séu ekki skyldugir samkvæmt lögum til þess að tala ensku í störfum sínum eða vinna með gögn sem ekki séu skrifuð eða þýdd yfir á grísku. Niðurstaða umsóknar um skattnúmer sé því undir því komin að starfsmaðurinn sé viljugur til samvinnu og að umsækjandi um skattnúmer hafi grunn í ensku eða grísku. Þá kom fram í svari Flóttamannastofnunar að það væri mismunandi og oft misvísandi framkvæmd milli þeirra stjórnvalda sem sjái um útgáfu númeranna. Framkvæmdin færi í raun eftir því hversu vant starfsfólkið væri að þjónusta þennan hóp. Þá geti viðmót og vilji starfsmanna stjórnvaldsins haft áhrif á niðurstöðu varðandi útgáfu skattnúmers og þeir umsækjendur sem njóti aðstoðar frjálsra félagasamtaka eða lögmanna í umsóknarferlinu séu líklegri til þess að fá jákvætt svar við umsókn sinni. Þá hafi komið upp vandamál hjá þessum hópi varðandi það að tengja skattnúmer hjóna saman. Grísk skattayfirvöld hafi árið 2018, gefið út fyrirmæli um ítarlegri skoðun á skilríkjum erlendra umsækjenda um skattnúmer, sem hafi í kjölfarið leitt til þess að biðtími eftir niðurstöðu hafi lengst töluvert hjá þeim hópi. Flóttamannastofnun, gríski umboðsmaðurinn og frjáls félagasamtök hafi í kjölfarið ítrekað lýst yfir áhyggjum vegna þessa og því hafi grísk stjórnvöld brugðist við með breytingu á framkvæmd, en þó sé þörf á frekari aðgerðum til að bæta þetta ferli. Þá sé óvíst hver staðan sé varðandi þann málafjölda sem enn bíði afgreiðslu af þessum sökum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2020 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram í skýrslunni að flóttakonur hafi orðið fyrir kynbundnu ofbeldi í flóttamannabúðunum í Grikklandi og að þeim standi til boða að dvelja tímabundið í skýlum á vegum stjórnvalda og að þær hafi aðgengi að lögfræðilegri aðstoð og sálfræðiþjónustu. Þá kemur fram í vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem eru þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eiga rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára kona. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi verið í varðhaldi í 20 daga í Íran og hafi hún m.a. verið lamin í höfuðið. Þá greindi kærandi frá því að hún væri með stöðuga verki frá höfði og niður eftir líkamanum og að hún væri bólgin í efri góm. Kærandi glími við minnisleysi og ætti erfitt með svefn en fyrir utan það glími hún ekki við andleg vandamál. Þá hafi kærandi orðið fyrir ofbeldi í flóttamannabúðunum í Grikklandi. Í gögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 19. janúar 2021, kemur fram að kærandi sé almennt heilbrigð en að hún hafi greint frá því að hún hafi orðið fyrir líkamsárás og tilraun til nauðgunar og ráns í Grikklandi.

Í gögnum frá bráðadeild Landspítalans, dags. 23. janúar 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað á bráðadeild vegna verkja í hægri úlnlið og hendi. Kærandi hafi farið í röntgenmyndatöku og fengið teygjusokk vegna þess. Samkvæmt gögnum frá bráðadeild Landspítala, dags. 6. apríl 2021, hafi kærandi leitað á bráðadeild vegna kviðverkja og verkja vegna blæðinga. Þá kemur þar fram að kærandi hafi orðið fyrir kynfæralimlestingu við níu ára aldur og að henni hafi verið nauðgað í heimaríki. Samkvæmt gögnum frá Göngudeild kvenlækninga, dags. 7. apríl 2021, hafi kærandi farið í skoðun hjá kvenlækni og hafi ekki verið grunur um bráðan vanda. Kærandi hafi fengið fræðslu og ráðleggingar varðandi verkjastillingu.

Samkvæmt bráðamóttökuskrá Landspítala, dags. 14. apríl 2021, hafi kærandi verið lögð inn á bráðamóttöku vegna sjálfsvígstilraunar. Kærandi hafi greint frá því að maðurinn sem hafi nauðgað henni í heimaríki og hafi einnig drepið barnshafandi systur hennar og föður, hafi rænt móður hennar og hafi kærandi ekkert heyrt frá henni síðan. Kærandi hafi greint frá því að hún vilji ekki lifa. Þá kemur fram að kærandi hafi verið innrituð í legulotu og verið nauðungarvistuð í 72 klukkustundir á móttökugeðdeild vegna bráðrar sjálfsvígshættu og hafi hún m.a. hlotið ráðgjöf geðlæknis og fengið lyf til inntöku. Þá hafi kærandi verið með staðfest Mósa-smit og verið í einangrun vegna þess. Samkvæmt gögnum hafi kærandi útskrifast hinn 21. apríl 2021 og hafi hún greint frá því að henni liði betur. Kærandi hafi fengið ávísað lyfjum og fengið leiðbeiningar eftir útskrift.

Í komunótu frá sálfræðingi hjá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 2. júní 2021, kemur fram að óskað hafi verið eftir bráðaeftirfylgd með kæranda vegna fyrri áfallasögu en kærandi hafi m.a. greint frá því að móðir hennar hafi látist nýlega. Kærandi hafi verið metin í nokkurri sjálfsvígshættu. Í göngudeildarskrá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 4. júní 2021, kemur fram að kærandi hafi komið í eftirfylgni. Kærandi hafi greint frá svipaðri líðan og hafi enn verið í miklu áfalli eftir móðurmissinn. Kærandi sofi illa og upplifi mikla vanlíðan. Óskað hafi verið eftir að sálfræðiviðtölum yrði fjölgað. Í bráðamóttökuskrá, dags. 16. júní 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna höfuðverkjar, brjóstverkjar og uppkasta. Kærandi hafi greint frá því að höfuðverkurinn hafi varað í nokkur ár og hafi komið í kjölfar höfuðhöggs. Þá hafi kærandi greint frá kvíða og vanlíðan en neitað sjálfsvígshugsunum. Kæranda hafi verið ávísað magasýrulyfi og henni ráðlagt að leita til heilsugæslu vegna frekari meðferðar og eftirfylgni. Í komunótu frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 24. júní 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna kvíða, depurðar og krísu. Kærandi hafi ekki viljað leggjast inn og henni því ávísað sefandi lyfi auk þess sem henni hafi verið ráðlagt að koma í endurmat daginn eftir. Í komunótu bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 25. júní 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað í endurmat. Kærandi hafi verið metin í nokkurri sjálfsvígshættu en ekki talið líklegt að hún muni gera sjálfsvígstilraun hér á landi á næstunni. Hækkaður hafi verið skammtur á geðdeyfðarlyfi sem kærandi hafi áður fengið ávísað. Í komunótu frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 5. júlí 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað með sjúkrabíl. Kærandi hafi greint frá því að hafa tekið inn öll lyf sem hún átti í sjálfsvígstilgangi. Kærandi hafi greint frá því að vera hrædd um að gera sér eitthvað og hafi óskað eftir að leggjast inn. Óskað hafi verið eftir frekari stuðningi frá félagsþjónustu og kærandi beðin um að koma í endurmat daginn eftir. Í komunótu frá bráðadeild, dags. 10. júlí 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað með sjúkrabíl eftir að hafa tekið inn lyfjablöndu í sjálfsskaðatilgangi. Kærandi hafi verið í eftirliti á bráðamóttöku yfir nóttina. Í göngudeildarskrá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 11. júlí 2021, kemur fram að líðan kæranda hafi verið sambærileg en hún upplifi enn mikla depurð og sjálfsvígshugsanir. Kærandi hafi greint frá því að langa að stinga sig með hníf eða keyra á til að enda þjáningar sínar. Kærandi hafi verið metin í mikilli örvæntingu og óskað eftir að fá ávísað lyfjum í sjálfsvígstilgangi. Kærandi hafi verið lögð inn vegna yfirstandandi sjálfsvígshættu. Í viðtali hjá félagsráðgjafa, dags. 12. júlí 2021, hafi kærandi greint frá því að röð áfalla væri ástæða þess að henni liði illa. Kærandi hafi greint frá því að finna fyrir vonleysi og sársauka þegar hún hugsi um fjölskyldu í heimaríki. Í dagáli geðlæknis, dags. 12.-14. júlí 2021, kemur m.a. fram að kærandi hafi greint frá því að hafa átt erfitt með svefn og að hún finni fyrir vonleysi. Í læknabréfi, dags. 15. júlí 2021, kemur fram að við útskrift hafi kærandi lýst betri líðan og neitað sjálfsvígshugsunum. Mælt hafi verið með lyfjaskömmtun viku í senn fyrir kæranda. Þá hafi kæranda verið ráðlagt að leita sér aðstoðar ef líðan versni. Í komunótu bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 4. október 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna lyfjaendurnýjunar. Gleymst hafi að bóka tíma á heilsugæslu og því hafi hún ekki tekið inn lyfin sín í fjóra daga. Kærandi finni fyrir einkennum svefntruflana á ný auk hræðslu og endurupplifana. Kærandi hafi neitað sjálfsvígshugsunum. Kærandi hafi fengið meðferðis lyfseðla og hún hvött til að bóka tíma á heilsugæslu. Í göngudeildarnótu frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 3. nóvember 2021, kemur fram að kærandi hafi leitað þangað vegna þess að hún hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Kærandi hafi neitað sjálfsvígshugsunum en greint frá því að vilja deyja ef hún yrði send til Grikklands. Kærandi eigi í meiri erfiðleikum með svefn og henni ráðlagt að auka skammt á svefnlyfi. Þá kemur fram í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. maí til 22. nóvember 2021, að kærandi hafi hitt þar sálfræðing í sex skipti.

Einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst, m.a. sú aðstoð rakin sem hún hefur fengið hér á landi. Kærandi hefur m.a. borið fyrir sig að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar vegna slæmra aðstæðna í Grikklandi. Kærandi hafi ekki haft aðgengi að heilbrigðisþjónustu, félagsaðstoð eða atvinnu í Grikklandi. Af framlögðum heilsufarsgögnum má sjá að kærandi hefur glímt við andleg veikindi. Í gögnum frá móttökugeðdeild Landspítala, dags. 14.-21. apríl 2021, kemur fram að kærandi hafi verið lögð inn á geðdeild vegna sjálfsvígstilraunar og verið nauðungarvistuð í 72 tíma vegna bráðrar sjálfsvígshættu. Kærandi hafi útskrifast hinn 21. apríl 2021. Í komunótu frá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 5. júlí 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað með sjúkrabíl. Kærandi hafi greint frá því að hafa tekið inn öll lyf sem hún átti í sjálfsvígstilgangi. Kærandi hafi greint frá því að vera hrædd um að gera sér eitthvað og hafi óskað eftir að leggjast inn. Óskað hafi verið eftir frekari stuðningi frá félagsþjónustu og kærandi beðin um að koma í endurmat daginn eftir. Í komunótu frá bráðadeild, dags. 10. júlí 2021, kemur fram að kærandi hafi komið þangað með sjúkrabíl eftir að hafa tekið inn lyfjablöndu í sjálfsskaðatilgangi. Kærandi hafi verið í eftirliti á bráðamóttöku yfir nóttina. Í göngudeildarskrá bráðaþjónustu geðsviðs, dags. 11. júlí 2021, kemur fram að líðan kæranda hafi verið sambærileg en hún upplifi enn mikla depurð og sjálfsvígshugsanir. Þá má ráða af gögnum að kærandi hafi hitt sálfræðing í sex skipti, sbr. komunótur frá Göngudeild sóttvarna, dags. 3. maí til 22. nóvember 2021.

Í fyrri úrskurði kærunefndar í máli kæranda nr. KNU21030052 frá 3. júní 2021 var það mat kærunefndar að í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga um heilsufar kæranda að sérstakt tilefni hefði verið til að afla upplýsinga um hvort hún hafi haft almannatrygginganúmer og skattnúmer í Grikklandi. Taldi kærunefnd nauðsynlegt að skoða hvort kærandi hefði slíkar skráningar þar sem þær væru forsenda þess að fá aðgang að félags- og heilbrigðisþjónustu í Grikklandi. Þá tók kærunefnd fram í úrskurði sínum að fengi Útlendingastofnun ekki svar frá grískum yfirvöldum um það hvort kærandi hefði almannatrygginganúmer og skattnúmer í Grikklandi eða kæmi í ljós að kærandi hefði ekki slík númer, þyrfti að meta sérstaklega hvort rof á meðferð eða þjónustu sem kærandi þurfi á að halda kynni að hafa þær afleiðingar að það myndi teljast sérstakar ástæður til að taka málið til efnismeðferðar. Taldi kærunefnd rannsókn Útlendingastofnunar áfátt að því leyti og lagði fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný. Í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun, dagana 23. og 24. júní 2021, kvaðst kærandi ekki vera með almannatrygginganúmer í Grikklandi. Með tölvubréfi Útlendingastofnunar, dags. 1. september 2021, var óskað eftir mati frá trúnaðarlækni stofnunarinnar á heilsufarsgögnum í máli kæranda dags. 19. janúar til 21. apríl 2021. Álit trúnaðarlæknis barst Útlendingastofnun hinn 8. október 2021. Í áliti trúnaðarlæknis kemur m.a. fram að ljóst sé að kærandi sé með gríðarlega áfallasögu og hafi lýst mikilli vanlíðan. Þá kemur fram að engar upplýsingar hafi legið fyrir eftir 21. apríl 2021 og því hafi ekki verið hægt að segja til um hvert andlegt ástand kæranda hafi verið þann dag. Í áliti trúnaðarlæknisins var ekki tekin afstaða til þess hvaða afleiðingar rof á meðferð eða þjónustu hefði fyrir kæranda. Þá verður ekki séð að frekara mat hafi farið fram á heilsufarsgögnum kæranda.

Að mati kærunefndar hefur framangreind málsmeðferð Útlendingastofnunar ekki leitt fram frekari upplýsingar um stöðu kæranda og þá sérstaklega hvort rof á meðferð eða þjónustu sem kærandi þurfi á að halda kunni að hafa þær afleiðingar að taka ætti umsókn kæranda til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur með vísan til þeirra aðgangshindrana sem geta verið til staðar að heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og fjallað hefur verið um og þess álags sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á heilbrigðiskerfið í Grikklandi að fara hefði átt fram frekara mat á heilsufari kæranda. Til að mynda hefði verið tilefni til að afla skýrari upplýsinga frá sérfróðum aðila hver þörf kæranda sé fyrir heilbrigðisþjónustu og um afleiðingar þess fyrir kæranda fái hún ekki þá þjónustu eða meðferð eða afleiðingar á töfum á veitingu slíkrar þjónustu en í áliti trúnaðarlæknis Útlendingastofnunar, dags. 8. október 2021, er ekki tekin afstaða til framangreinds.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir telur kærunefnd að annmarkar hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Kærunefnd telur jafnframt í ljósi aðstæðna að ekki sé unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun. Kærunefnd gerir jafnframt athugasemdir við að Útlendingastofnun hafi við meðferð málsins ekki brugðist með fullnægjandi hætti við fyrri úrskurði nefndarinnar. Þannig mat Útlendingastofnun ekki sérstaklega hvort rof á meðferð eða þjónustu sem kærandi þurfi á að halda kynni að hafa þær afleiðingar að það myndi teljast sérstakar ástæður til að taka málið til efnismeðferðar. Er þetta aðfinnsluvert.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

 

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

Sindri M. Stephensen                                                            Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum