Hoppa yfir valmynd
15. maí 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Sameining þriggja stofnana í nýja Náttúrufræðistofnun orðin að lögum

Ferðamenn á Brennisteinsöldu - myndHugi Ólafsson

Alþingi samþykkti í gær frumvarp um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur. Með staðfestingu laganna verða Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn hluti af Náttúrufræðistofnun Íslands, sem við breytingarnar fær heitið Náttúrufræðistofnun.

Ný Náttúrufræðistofnun fer með þau hlutverk og verkefni sem Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn hafa í dag. Ný stofnun á að efla faglegt starf á sviði gagnaöflunar, rannsókna, mælinga, kortlagningar og vöktunar á náttúru Íslands, sem og að tryggja markvissa uppbyggingu gagnasafna og rannsóknainnviða með góðu aðgengi að gögnum og áreiðanlegum rauntímamælingum. Þá er áhersla lögð á öflugar grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir sem verða m.a. unnar á grundvelli samráðs milli stofnana.

„Það er ánægjuefni að sjá nýja Náttúrufræðistofnun verða að veruleika. Stofnuninni er ætlað að  hafa skýra og greinargóða yfirsýn yfir náttúru Íslands á hverjum tíma, búa yfir áreiðanlegum gögnum og vera öflug í miðlun og fræðslu. Starfsmenn hinnar nýju stofnunar verða um 80 talsins með starfsstöðvar víða um land. Ég legg sérstaka áherslu á að stuðlað verði að enn frekari þekkingaruppbyggingu og nýsköpun í nýju stofnuninni. Einnig legg ég áhersla á að fjölga störfum á landsbyggðinni í kjörnum sem dreifast um landið,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Lögin sem samþykkt voru í gær eru liður í umfangsmiklum stofnanabreytingum sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur unnið að ásamt undirstofnunum frá miðju ári 2022. Niðurstaða þeirrar vinnu er sú að í stað átta af stofnunum ráðuneytisins verði til þrjár öflugri og stærri stofnanir. Eru frumvörp um Náttúruverndar- og minjastofnun (Vatnajökulsþjóðgarður, Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, náttúruverndarsvið Umhverfisstofnunar og Minjastofnun Íslands) og Umhverfis- og orkustofnun (Orkustofnun og Umhverfisstofnun (umhverfis- og loftslagsmál)) nú til umfjöllunar hjá þinginu. Auk þess er unnið að því að færa Stofnun Vilhjálms Stefánssonar undir Háskólann á Akureyri.

Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum