Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 116/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 13. nóvember 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 116/2011.

 

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 2. maí 2011, var A, tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur væri hafnað á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, þar sem hann hafi verið í 100% vinnu hjá B. á sama tíma og hann hafi verið á atvinnuleysisbótum. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða dagsetta 1. september og móttekna 2. september 2011.

 

Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu Vinnumálastofnunar til málsins með bréfi, dags. 2. september 2011. Í svarbréfi stofnunarinnar kemur fram að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar verið tilkynnt með bréfi dagsettu 2. maí 2011. Í ljósi þess að kæra til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða sé dagsett 2. september 2011 telji Vinnumálastofnun að þriggja mánaða kærufrestur sé liðinn og að vísa beri málinu frá úrskurðarnefndinni, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Vinnumálastofnun telji því að úrskurðarnefndinni beri ekki að taka stjórnsýslukæruna til efnismeðferðar.

 

Kæranda var sent áðurnefnt bréf Vinnumálastofnunar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 13. október 2011. Var honum gefinn kostur á að koma athugasemdum sínum á framfæri fyrir 27. október 2011. Athugasemdir kæranda bárust með bréfi, dags. 25. október 2011, mótteknu 27. október 2011. Kærandi gerir þar einkum athugasemdir við efnislega meðferð málsins hjá Vinnumálastofnun. Hann óskar þess jafnframt að úrskurðarnefndin takið málið fyrir þrátt fyrir það álit Vinnumálastofnunar að þriggja mánaða kærufrestur sé liðinn og að vísa beri málinu frá vegna sérstöðu málsins og þeirrar ósanngjörnu og harkalegu meðferðar sem hann telji að hann hafi verið beittur. Hann óskar eftir að verða úrskurðaður hæfur umsækjandi bóta og að krafa til endurgreiðslu ofgreiddra bóta verði innkölluð.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Stjórnsýslukæra skal berast úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæra telst nægjanlega snemma fram komin ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist nefndinni eða verið afhent pósti áður en fresturinn er liðinn, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. s.l.

 

Hin kærða ákvörðun í máli þessu var tekin 2. maí 2011 og tilkynnt kæranda með bréfi dagsettu þann dag. Í bréfinu var kæranda tilkynnt um kæruheimild til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða og um kærufrest til nefndarinnar. Kæra kæranda barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 2. september 2011. Ekkert í gögnum máls þessa gefur til kynna að afsakanlegt hafi verið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti og engar veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Af þessum sökum verður að vísa máli þessu frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 


 

Úrskurðarorð

 

Kæru í máli A er vísað frá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum