Hoppa yfir valmynd
2. október 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 159/2011

Úrskurður

 

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 2. október 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 159/2011.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

 

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 26. október 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar hafi hann verið staddur erlendis frá 6. september til 21. september 2011 og hafi því ekki uppfyllt skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili. Vinnumálastofnun tilkynnti kæranda jafnframt, þar sem hann hafi látið hjá líða að veita upplýsingar fyrirfram um dvöl sína erlendis skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, og í ljósi þess að um sé að ræða niðurfellingu bótaréttar í þriðja sinn, að stofnunin hefði tekið ákvörðun um að kærandi eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi starfað í a.m.k. tvo mánuði á innlendum vinnumarkaði skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga. Kærandi vildi ekki una ákvörðuninni og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 15. nóvember 2011. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

 

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. maí 2009.

 

Kærandi var boðaður í viðtal hjá Vinnumálastofnun 19. september 2011. Hann mætti ekki en svaraði beiðni stofnunarinnar um skriflegar skýringar með tölvupósti 30. september 2011. Þar kvaðst hann hafa verið erlendis frá 6. september til 21. september 2011. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar, dags. 19. október 2011, kemur fram að hann hafi hringt í Vinnumálastofnun áður en hann hafi farið til útlanda þar sem honum hafi verið sagt að hann þyrfti að skrifa á heimasíðu stofnunarinnar þegar hann staðfesti næstu atvinnuleit að hann hefði verið í burtu. Það hafi hann gert 23. september 2011. Hann hafi einnig farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar 26. september 2011 og afhent flugmiða sinn og þá hafi honum verið sagt að hann þyrfti einnig að skrifa bréf.

 

Vinnumálastofnun ákvað á fundi sínum 24. október 2011 að fella niður bótarétt kæranda þar til hann hefði starfað í a.m.k. átta vikur á innlendum vinnumarkaði skv. 59. gr., sbr. 3. mgr. 61. gr., laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda var tilkynnt þessi ákvörðun með bréfi, dags. 26. október 2011, þar sem honum var einnig tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysistryggingar tímabilið 6. september til 19. september 2011 á meðan hann var staddur erlendis og uppfyllti ekki skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun tók mál kæranda upp að nýju í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, sbr. bréf stofnunarinnar, dags. 7. nóvember 2011. Fyrri ákvörðun í málinu var staðfest.

 

Í greinargerð sinni til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 1. febrúar 2012, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda beri skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunni að verða á högum hans eða annað sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009 til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun þessar upplýsingar komi til álita að beita viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysistrygginga að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið staddur í útlöndum á sama tíma og hann hafi verið skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Samkvæmt flugfarseðli hafi kærandi verið staddur í útlöndum á tímabilinu 6. september til 21. september 2011.

 

Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um utanlandsferð sína, líkt og honum hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi tjáð Vinnumálastofnun að hann hefði verið staddur í útlöndum á tímabilinu með rafrænni skráningu á atvinnuleit þann 23. september 2011. Hafi sú tilkynning borist eftir að Vinnumálastofnun hafi óskað eftir skýringum kæranda á fjarveru hans á fundi stofnunarinnar.

 

Fram kemur að kærandi hafi áður sætt biðtíma vegna þess að hann hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun um ferð sína til útlanda. Þá hafi stofnunin margsinnis vakið athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysistrygginga. Sé sérstaklega vakin athygli á framangreindum atriðum á kynningarfundum stofnunarinnar og þeim sem hugi að ferð til útlanda á sama tíma og þeir séu skráðir í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun bent á að hafa samband við þjónustuskrifstofu stofnunarinnar fyrir brottfarardag.

 

Kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun enda hafi kærandi verið staddur erlendis þegar viðtal hafi átt að fara fram. Flugseðlar og tilkynning um dvöl kæranda í útlöndum hafi ekki borist Vinnumálastofnun fyrr en stofnunin hafði óskað eftir skýringum kæranda. Það sé því mat stofnunarinnar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er haft hafi bein áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysistrygginga.

 

Kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur frá 6. september til 19. september 2011. Samkvæmt 39. gr. laga um atvinnuleysistrygginga beri honum að endurgreiða ofgreiddar bætur að viðbættu 15% álagi að fjárhæð 67.083 kr.

 

Kærandi hafi áður sætt biðtíma á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar. Annars vegar 24. ágúst 2009 og hins vegar 27. júlí 2010. Því sé um þriðju niðurfellingu bótaréttar kæranda að ræða. Samkvæmt 3. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli sá sem hefur sætt biðtíma eða viðurlögum á grundvelli laganna ekki eiga rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi starfað í a.m.k. tvo mánuði á innlendum vinnumarkaði.

 

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 3. febrúar 2012, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 17. febrúar 2012. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

 

2.

Niðurstaða

 

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en hún er svohljóðandi:

 

Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.

 

Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu er að vera búsettur og staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

Kærandi hefur staðfest, meðal annars með framlagningu gagna, að hann var staddur erlendis frá 6. september til 21. september 2011, en hann tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram að hann yrði ekki staddur á landinu á umræddu tímabili. Kærandi hefur fært fram þau rök að hann hafi fengið rangar leiðbeiningar í símtali sínu við Vinnumálastofnun í byrjun ágúst 2011. Honum hafi verið tjáð að hann þyrfti einungis að tilkynna um ferðina með rafrænni skráningu á atvinnuleit þegar hann væri tilbúinn til vinnu á ný. Hafi hann farið eftir þeim leiðbeiningum. Hann hafi síðan farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar 26. september 2011 og tilkynnt um fjarveru sína og afhent farseðla. Honum hafi verið sagt að hann þyrfti einnig að skrifa Greiðslustofu sem hann hafi gert. Honum hafi auk þess verið tjáð að atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem hann hafi verið erlendis yrðu dregnar af honum.

 

Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að veittar séu upplýsingar um framangreind atriði á kynningarfundum stofnunarinnar, meðal annars með afhendingu bæklinga með upplýsingum um þetta. Einnig verður til þess að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sínar um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um nokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Í ljósi framanritaðs og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram um þennan þátt málsins, verður talið að Vinnumálastofnun hafi veitt kæranda fullnægjandi leiðbeiningar í skilningi 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

 

Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hann hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hann sæta viðurlögum skv. 1. mgr. 59. gr. laganna.

 

Þar sem kærandi hafði áður hlotið viðurlög vegna brota á ákvæðum laga um atvinnuleysistryggingar sætir hann ítrekunaráhrifum, sbr. 3. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hann á því ekki rétt til atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað í a.m.k. tvo mánuði á innlendum vinnumarkaði.

 

Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 24. október 2011 í máli A um að kærandi eigi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hafi starfað í a.m.k. tvo mánuði á innlendum vinnumarkaði er staðfest.

 

Kærandi endurgreiði ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð samtals 67.083 kr. en inni í þeirri fjárhæð er 15% álag.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

 Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum