Hoppa yfir valmynd
2. mars 2012 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 31/2011

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 2. mars 2012 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, mál nr. 31/2011.

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 1. febrúar 2011, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að Vinnumálastofnun hefði á fundi sínum þann 31. janúar 2011 fjallað um rétt kæranda til atvinnuleysisbóta. Vinnumálastofnun samþykkti umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, en með vísan til námsloka kæranda var réttur hans til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo mánuði sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, með vísan til 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 14. febrúar 2011. Kærandi krefst þess að hinni kærðu ákvörðun verði hrundið. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur þann 3. janúar 2011. Samkvæmt skólavottorði Fjölbrautaskóla Suðurnesja, dags. 5. janúar 2011, var kærandi skráður í nám við skólann til 18. desember 2010 en hann var ekki skráður í nám á vorönn 2011.

Í bréfi kæranda, sem barst Vinnumálastofnun þann 17. janúar 2011, kemur fram að hann hafi ekki haldið áfram námi vegna féleysis. Hann hafi ekki fengið styrk til námsins og ekki fengið vinnu í jólafríi. Í kærunni er yfirlýsing föður kæranda þess efnis að hann hafi stutt skólagöngu kæranda en hafi veikst alvarlega af krabbameini og hafi hann ekki lengur efni á stuðningi við son sinn.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 6. júní 2011, er bent á að mál þetta varði 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Í X. kafla laga um atvinnuleysistryggingar séu ákvæði er mæli fyrir um biðtíma er hinn tryggði skuli sæta segi hann starfi upp án gildra ástæðna eða hætti námi án gildra ástæðna.

Einnig vísar Vinnumálastofnun til þess að í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé í umfjöllun um 1. mgr. 55. gr. laganna, vísað til athugasemda við 54. gr. frumvarpsins um hvaða ástæður geti talist gildar. Í greinargerð við 1. mgr. 54. gr. laganna segi að erfitt geti reynst að telja upp endanlega þau tilvik, þ.e. hvaða aðstæður séu gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laganna, og lagareglan sé því matskennd. Í dæmaskyni um gildar ástæður í skilningi laganna séu til dæmis nefnd þau tilvik þegar fjölskylda umsækjanda flytur búferlum vegna starfa maka eða vegna heilsufarsástæðna atvinnuleitanda. Bendir Vinnumálastofnun á að stofnuninni sé falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggur, falli að umræddri reglu. Skuli stofnunin líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða og hafa í huga að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Jafnframt beri að líta til þess að orðalagið „gildar ástæður“ beri að túlka þröngt í þessu samhengi og þar af leiðandi færri tilvik en ella sem falli þar undir.

Vinnumálastofnun vísar til þeirra skýringa kæranda á ástæðum námsloka að hann hafi ekki haft efni á því að fara í skóla. Hafi ákvörðun Vinnumálastofnunar meðal annars byggst á þeim upplýsingum kæranda.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 8. júní 2011, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 22. júní 2011. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. a-lið 18. gr. laga nr. 134/2009, en hún er svohljóðandi:

 Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur hætt námi, sbr. c-lið 3. gr., án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur. Staðfesting frá viðkomandi skóla um að námi hafi verið hætt skal fylgja umsókninni.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur hættir námi, sbr. c-lið 3. gr. laganna, og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur.

Í athugasemdum við 55. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar segir að þeir sem hætta námi án þess að hafa til þess gildar ástæður þurfi að sæta sams konar biðtíma og þeir sem hætti störfum án gildra ástæðna, sbr. 54. gr. frumvarpsins. Vísað er til umfjöllunar um 54. gr. frumvarpsins í því sambandi. Þar kemur fram að erfiðleikum sé bundið að skilgreina nákvæmlega gildar ástæður í lögum og reglugerðum og því þurfi að meta hvert tilvik fyrir sig. Af framangreindu er ljóst að ef ekki liggja fyrir veigamiklar ástæður fyrir því að námi er hætt, þarf umsækjandi um atvinnuleysisbætur að sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Fjárhagsástæður hafa almennt ekki talist gildar ástæður í þessu sambandi.

Samkvæmt fyrirliggjandi vottorði um skólavist var kærandi skráður í nám frá 22. ágúst 2008 til 18. desember 2010. Hann hafði ekki lokið námi við skólann er hann tók þá ákvörðun að skrá sig ekki í nám á vorönn 2011. Málið snýst því um ákvörðun Vinnumálastofnunar um tímabundna niðurfellingu atvinnuleysisbóta til kæranda vegna námsloka hans hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, en Vinnumálastofnun telur ástæður kæranda ekki vera gildar ástæður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hefur fært fram þær skýringar að hann hafi hætt námi vegna fjárskorts. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að þær ástæður séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og ber því að láta kæranda sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysistrygginga.

 

Úrskurðarorð

Hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 31. janúar 2011 í máli A um niðurfellingu bótaréttar kæranda í tvo mánuði er staðfest.

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum