Hoppa yfir valmynd
24. mars 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 5/2011

Fimmtudaginn 24. mars 2011

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 3. febrúar 2011 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 3. febrúar 2011. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 4. janúar 2011, um að endurkrefja kæranda um ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði vegna barns sem fæddist Y. október 2008.

Með bréfi, dags. 7. febrúar 2011, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 19. febrúar 2011.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 22. febrúar 2011, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hann vilji fá endurskoðaða ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 4. janúar 2011, um að endurkrefja hann um ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði vegna barns sem fæddist Y. október 2008. Kærandi heldur því fram að vinnuveitandi hans hafi þrýst á hann að vinna þá þrjá mánuði sem um ræðir þrátt fyrir að hann hafi greint frá því að hann væri í fæðingarorlofi.

Í kæru virðist kærandi þó að nokkru samþykkja þá endurgreiðslu sem Fæðingarorlofssjóður fer fram á. Af þeim sökum, eftir að greinargerð Fæðingarorlofssjóðs barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála, óskaði nefndin eftir frekari útskýringum frá kæranda með tölvubréfi, dags. 14. mars 2011. Frekari upplýsingar bárust frá kæranda með tölvubréfi, dags. 16. mars. 2011. Í bréfinu kemur fram að kærandi samþykki að endurgreiða alls X kr. en að hann kæri ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um 15% álag á endurgreiðsluna.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 3. desember 2010, vakið athygli hans á því að stofnunin væri með til meðferðar mál hans vegna hugsanlegrar ofgreiðslu.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hafi kærandi fengið laun frá B á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði tímabilið september–desember 2009 og janúar og febrúar 2010. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum fyrir framangreint tímabil ásamt útskýringum frá vinnuveitanda hans og útskýringum og andmælum kæranda sjálfs ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Umbeðin gögn hafi borist á tímabilinu 28. desember 2010–4. febrúar 2011. Í bréfi kæranda, dags. 10. janúar 2011, komi meðal annars fram að hann hafi sannanlega verið í fríi 31. júlí–12. nóvember 2009 þegar hann hafi snúið aftur til starfa. Hann hafi þá lent í vandræðum gagnvart vinnuveitanda sínum og verið sagt upp störfum en gert að vinna í þrjá mánuði þrátt fyrir að hafa sagt vinnuveitanda sínum að hann væri í fæðingarorlofi. Þessir þrír mánuðir sem honum hafi verið gert að vinna hafi verið desember 2009 og janúar og febrúar 2010.

Á þremur starfsvottorðum sem hafi borist frá B komi fram að kærandi hafi verið í 86,2% starfshlutfalli í nóvember 2009 og 100% starfshlutfalli frá 1. desember 2009 til 28. febrúar 2010. Á starfsvottorði, dags. 7. janúar 2011, komi fram að kærandi hafi verið í fæðingarorlofi 1. september–31. október 2009. Hann hafi hins vegar fengið laun vegna mistaka sem hafi verið endurgreidd. Í bréfi frá B, dags. 1. febrúar 2011, komi fram að kærandi hafi verið í vinnu hjá B tímabilið 1. desember 2009–28. febrúar 2010.

Fæðingarorlofssjóður bendir einnig á að á launaseðlum kæranda fyrir september 2009–febrúar 2010 komi fram að kærandi hafi sé með full mánaðarlaun allt tímabilið. Á launaseðli í nóvember 2009 sé hins vegar gerð leiðrétting á mánaðarlaunum kæranda fyrir september og október 2009 en einnig sé hluti launa hans fyrir nóvember 2009 dregin af honum vegna óheimilar fjarvistar og launalaus leyfis.

Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 4. janúar 2011, þar sem hann hafi verið krafinn um endurgreiðslu heildarfjárhæðar Fæðingarorlofssjóðs vegna nóvember 2009–febrúar 2010. Alls hafi þannig verið gerð krafa um endurgreiðslu á X kr. og að viðbættu 15% álagi X kr., sbr. 9. mgr. 13. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000 (ffl.), sbr. 2. mgr. 15. gr. a. ffl.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. sé fæðingarorlof samkvæmt lögunum leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysis-tryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur miðuðust við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemi þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. ffl.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja má til breytinga á störfum foreldris. Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 segi orðrétt;

„Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.“

Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 segi orðrétt;

„Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.“

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, komi fram hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, er stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld eru skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé frekari upptalning á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitenda megi fara með og hvaða greiðslur megi ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það séu sem sjóðurinn telur með þegar fundið sé út meðaltal heildarlauna foreldris.

Í 15. gr. a. ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. 

Fæðingarorlofssjóður greinir frá því að upphaf málsins megi rekja til þess að við vinnslu umsóknar kæranda með barni fæddu Y. janúar 2011 hafi komið í ljós að hann virtist hafa þegið full laun frá B á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði frá september 2009 til febrúar 2010 með eldra barni sínu sem fæddist Y. október 2008.

Fæðingarorlofssjóður greinir jafnframt frá því að með umsókn kæranda, dags. 13. maí 2009, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu Y. október 2008, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Á tveimur tilkynningum um fæðingarorlof, dags. 13. maí 2009, komi fram að kærandi hafi ætlað að taka 100% fæðingarorlof frá 1. september 2009 til 1. mars 2010. Hafi kærandi verið afgreiddur til samræmis við framangreindar tilkynningar um fæðingarorlof, sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 19. júní 2009.

Fæðingarorlofssjóður kveðst ekki gera athugasemd við fæðingarorlofstöku kæranda í september og október 2009 þar sem mistök hafi orðið við launagreiðslu hjá B sem leiðrétt hafi verið í nóvember 2009, sbr. bréf B, dags. 7. janúar 2011, launaseðil kæranda fyrir nóvember 2009 og staðgreiðsluskrá RSK í nóvember 2009.

Eftir að kæran barst hafi verið ákveðið að kalla eftir frekari skýringum á starfshlutfalli kæranda í nóvember 2009 en samkvæmt þremur starfsvottorðum sem borist höfðu var kæranda með 86,2% starfshlutfall í nóvember og samkvæmt launaseðli var hann með full mánaðarlaun í mánuðinum en frádrátt vegna launalaus leyfis og óheimilar fjarvistar. Þann 17. febrúar 2011 hafi borist skýring frá launadeild B þar sem fram kemur að kærandi hafi verið með óheimila fjarvist 2.–4. nóvember og í kauplausu leyfi 6.–8. nóvember og hann hafi komið til vinnu þann 10. nóvember 2009.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að ekki verði betur séð en kærandi hafi verið að störfum hjá B frá 10. nóvember 2009 til 28. febrúar 2010 en á sama tíma hafi hann verið skráður í 100% fæðingarorlof og þegið fyrir það fullar greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Hafi kæranda verið send ný og leiðrétt greiðsluáskorun þess efnis, dags. 18. febrúar 2011.

Fæðingarorlofssjóður telur kæranda ekki hafa nein rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem leiddu til ákvörðunarinnar, sbr. 2. mgr. 15. gr. a. ffl. Kæranda hefði verið í lófa lagið að tilkynna Fæðingarorlofssjóði um að hann þyrfti að starfa fyrir B tímabilið 10. nóvember 2009 til 28. febrúar 2010 en það hafi hann hins vegar ekki gert. Af þeirri ástæðu verði ekki séð að tilefni sé til að fella niður 15% álagið í tilviki kæranda.

Samkvæmt framangreindu og í samræmi við 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 2. mgr. 15. gr. a. ffl. telur Fæðingarorlofssjóður að kæranda hafi verið ofgreitt X kr. útborgað og að viðbættu 15% álagi X kr. sem gerð sé krafa um að kærandi endurgreiði í samræmi við greiðsluáskorun, dags. 18. febrúar 2011.

Með vísan til alls framangreinds telur Fæðingarorlofssjóður að kærandi hafi réttilega verið endurkrafinn um greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingarorlofs með barni fæddu Y. október 2008.

 

III.

Niðurstaða.

Í tölvubréfi kæranda, dags. 16. mars 2011, kemur fram að kærandi samþykki að greiða alls X kr., í samræmi við hina kærðu ákvörðun en að kærð sé ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að leggja 15% álag á endurgreiðsluna.

Í 2. mgr. 15. gr. a, sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Í 1. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 1056/2004, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, með síðari breytingum, sem var í gildi við fæðingu barns kæranda, er ítrekað að foreldri skuli ef það telur að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar um hærri greiðslur úr sjóðnum færa skriflega fyrir því rök innan fjögurra vikna frá því að greiðsluáskorun sannanlega barst foreldri. Af hálfu kæranda er því haldið fram að honum hafi verið gert að vinna þriggja mánaða uppsagnarfrest þrátt fyrir að hann hafi verið skráður í fæðingarorlof á þeim tíma og að vinnuveitandi hans hafi vitað af því. Að mati úrskurðarnefndarinnar hefur kærandi hins vegar ekki fært fullnægjandi rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til endurkröfu Fæðingarorlofssjóðs og að fella skuli niður umrætt álag á kröfuna þar sem kærandi hefði verið í lófa lagið að tilkynna stofnuninni um að hann myndi vinna á sama tíma og hann væri skráður í fæðingarorlof. Með vísan til alls framangreinds verður hin kærða ákvörðun því staðfest.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að krefja A um 15% álag á endurgreiðslu ofgreidds fæðingarorlofs er staðfest.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum