Hoppa yfir valmynd
13. september 2012 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 44/2012, úrskurður 13. september 2012

Mál nr. 44/2012                    Eiginnafn:     Villimey

Hinn 13. september 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 45/2012 en erindið barst nefndinni 12. júlí. Erindið var áður tekið fyrir á fundi 8. ágúst en frestað.

Eiginnafnið Villimey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Villimeyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.



Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Villimey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum