Hoppa yfir valmynd
9. september 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 68/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 68/2015

Föstudaginn 9. september 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 2. nóvember 2015 kærir A til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. ágúst 2015, um innheimtu ofgreiddra bóta.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi þáði atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun frá 3. mars 2014 til 2. febrúar 2015. Samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta var kærandi í tilfallandi vinnu á tímabilinu september 2014 til janúar 2015 og tilkynnti Vinnumálastofnun um tekjur sínar eftir að hafa fengið útborgað frá vinnuveitanda sínum hver mánaðamót. Vegna framangreindra tekna fékk kærandi greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á og því myndaðist endurgreiðslukrafa á hendur honum. Með innheimtubréfi, dags. 24. ágúst 2015, fór Vinnumálastofnun þess á leit við kæranda að hann greiddi skuld að fjárhæð 359.411 kr., án álags, vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. október 2014 til 31. janúar 2015.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 2. nóvember 2015. Með bréfi, dags. 4. nóvember 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 2. febrúar 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. febrúar 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 20. febrúar 2016, og voru þær sendar Vinnumálastofnun til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 22. febrúar 2016. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi verið skráður í tilfallandi vinnu og skilað inn skráningu um vinnu og tekjur. Vinnumálastofnun hafi því mátt vera ljóst hver staða hans væri. Kærandi gerir athugasemd við að hafa hvorki fengið rökstuðning fyrir innheimtufjárhæðinni né sundurliðun á kröfunni. Þá hafi hann ekki fengið neina aðra tilkynningu um innheimtuna og því óeðlilega langur tími liðinn frá því að meintar ofgreiðslur hafi átt sér stað.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 3. mars 2014 til 2. febrúar 2015. Kærandi hafi verið í tilfallandi vinnu á tímabilinu september 2014 til janúar 2015 og því fengið greidd laun samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Hann hafi tilkynnt um tilfallandi vinnu hverju sinni og tilkynnt um tekjur af þeirri vinnu eftir að hafa fengið útborgað frá vinnuveitanda sínum. Kærandi hafi ekki gert tekjuáætlun hjá Vinnumálastofnun og því hafi stofnunin ekki getað  tekið tillit til framangreindra tekna við útgreiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda. Vegna þessa hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu september 2014 til janúar 2015 en kæranda hafi verið tilkynnt um það með tilkynningu á „mínum síðum“ hjá Vinnumálastofnun. Þeim hafi síðan verið skuldajafnað við síðari greiðslur atvinnuleysisbóta en þegar kærandi hafi hætt að þiggja greiðslur árið 2015 hafi skuld hans við Vinnumálastofnun numið 359.411 kr.  

Vinnumálastofnun tekur fram að í málinu liggi fyrir að kærandi hafi fengið launatekjur samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Þar sem kærandi hafi ekki haft tekjuáætlun hjá stofnuninni hefðu greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans verið skertar afturvirkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Vegna þessa hafi myndast skuld í greiðslukerfi Vinnumálastofnunar og kæranda beri að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar bætur, sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna. Vinnumálastofnun sé skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006, óháð ástæðu ofgreiðslunnar. Samkvæmt öllu framangreindu telji Vinnumálastofnun að rétt hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að fjárhæð 359.411 kr.

Í 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna. Í 1. mgr. 36. gr. segir meðal annars að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða og atvinnuleysisbætur hans eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skuli skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildi um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu og elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þá segir í  2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Í 35. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um tilhögun greiðslna atvinnuleysisbóta. Þar segir að atvinnuleysisbætur skuli greiddar fyrsta virka dag hvers mánaðar og þær skuli greiddar eftir á fyrir undanfarandi mánuð eða hluta úr mánuði þannig að miðist við fyrsta til síðasta dag viðkomandi mánaðar. Óumdeilt er að kærandi var í tilfallandi vinnu samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og að hann tilkynnti Vinnumálastofnun um tekjur sínar eftir á. Samkvæmt gögnum málsins lá ekki fyrir tekjuáætlun vegna starfsins heldur skilaði kærandi launaseðlum til Vinnumálastofnunar fyrir hvern mánuð eftir að stofnunin hafði greitt honum atvinnuleysisbætur. Í framhaldinu endurreiknaði Vinnumálastofnun atvinnuleysisbætur kæranda og birti niðurstöðuna í samskiptakerfi stofnunarinnar, „mínum síðum“, sem kærandi hafði aðgang að og var í reglulegu sambandi við stofnunina með þeim hætti. Ljóst er að kæranda var tilkynnt um ofgreiðsluna við uppgjör hvers mánaðar í samskiptakerfi Vinnumálastofnunar og hver skuld hans væri við stofnunina á hverjum tíma. Þá var einnig vísað til þess að frekari upplýsingar kæmu fram á greiðsluseðli. Það er mat úrskurðarnefndar velferðarmála að Vinnumálastofnun hafi komið upplýsingum um stöðu málsins á framfæri við kæranda og hefði honum því átt að vera fullkunnugt um að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Hins vegar skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. ágúst 2015, í máli A um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta að fjárhæð 359.411 kr. er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum