Hoppa yfir valmynd
26. maí 2016 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 66/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 66/2015

Fimmtudaginn 26. maí 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 19. október 2015, kærði A, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. ágúst 2015, um að staðfesta fyrri ákvörðun stofnunarinnar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með 15% álagi, samtals að fjárhæð 97.638 kr.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 16. apríl 2014 og var umsóknin samþykkt. Með bréfi, dags. 13. apríl 2015, var kæranda tilkynnt um, að við samkeyrslu gagnagrunna stofnunarinnar og ríkisskattstjóra hafi komið fram að kærandi hefði í janúar 2015 haft tekjur frá B að fjárhæð 19.869 kr. og frá C að fjárhæð 137.882 kr., án þess að gera grein fyrir þeim en á sama tíma hafi hann þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Í bréfinu var einnig óskað eftir upplýsingum um framangreindar tekjur.

Þann 16. apríl 2015 bárust Vinnumálastofnun skýringar frá kæranda með tölvupósti þar sem hann greindi frá því að hann hefði unnið eina vakt hjá B við [...] og að hann hafi verið í tilfallandi starfi hjá C og misjafnt væri hvað hann fengi af vöktum. Jafnframt greindi kærandi frá því að hann væri mjög virkur í atvinnuleit sinni.

Með bréfi, dags. 29. apríl 2015, var kæranda tilkynnt um að stofnunin hefði ákveðið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að hann skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði þar sem hann hafi verið að vinna hjá B og C samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnuna. Þá var kærandi krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 97.638 kr. með 15% álagi á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Þann 20. júlí 2015 bárust frekari skýringar frá kæranda þar sem hann greinir frá því að honum hafi láðst að tilkynna um störf sín til Vinnumálastofnunar. Ekki hafi verið um svik að ræða af hans hálfu enda hafi tekjurnar verið gefnar upp til skatts. Þá óskaði kærandi eftir aðstoð við að fá endurgreiðslukröfu Vinnumálastofnunar fellda niður. Þann 25. ágúst 2015 var mál kæranda tekið fyrir að nýju hjá stofnuninni og með bréfi, dags. 26. ágúst 2015, var kæranda tilkynnt sú ákvörðun Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 19. október 2015. Með bréfi, dags. 20. október 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 9. desember 2015. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. desember 2015, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru eru ekki settar fram sérstakar kröfur, en af kærunni og gögnum málsins má ráða að kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Annar málsliður 60. gr. laganna taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína samkvæmt 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín. Af ákvæðinu leiði að sá sem ekki tilkynni Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt samkvæmt 10. gr. laganna eða um tilfallandi vinnu samkvæmt 35. gr. a skuli sæta viðurlögum á grundvelli þess.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim, sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun, hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Við samkeyrslu gagnagrunna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með tekjur frá B og C. Í ljósi afdráttarlausrar verknaðarlýsingar í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og þeirrar skyldu, sem hvíli á atvinnuleitendum til að tilkynna Vinnumálastofnun að atvinnuleit sé hætt eða tilkynna um tekjur, sbr. 10. gr. og 35. gr. a laganna, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum í samræmi við brot sitt.

Samkvæmt framangreindu hafi kærandi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 97.638 kr. með 15% álagi sem honum beri að endurgreiða, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, hljóðar svo:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Af gögnum málsins verður ráðið að hin kærða ákvörðun sé byggð á 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 (E-2547/2015) var leyst úr ágreiningi sem varðaði ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga samkvæmt 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dóminum var fjallað ítarlega um túlkun framangreinds ákvæðis. Í niðurstöðunni segir meðal annars svo:

„Samkvæmt framangreindu verður fallist á þá efnislegu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, í fyrrgreindu áliti hans, að miða verði við að í verknaðarlýsingu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 felist krafa um atvinnuleitandi hafi ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Af hálfu stefndu er því ómótmælt að mál stefnanda hafi ekki verið rannsakað sérstaklega með hliðsjón af huglægri afstöðu hans, enda byggir málatilbúnaður þeirra á því að slík afstaða hafi ekki haft þýðingu um meðferð og niðurstöðu stjórnsýslumálsins. Að virtri framagreindri niðurstöðu um skýringu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 liggur þannig fyrir að verulegir annmarkar voru á málsmeðferð stefnda Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga svo og rökstuðningi ákvarðana. Er jafnframt ljóst að umræddir annmarkar voru til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Verður því að fallist á kröfu stefnanda um að umræddar stjórnvaldsákvarðanir stefndu Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga um sviptingu bótaréttar stefnanda verði felldar úr gildi.“ 

Samkvæmt framangreindu er það skilyrði fyrir beitingu viðurlaga á grundvelli 2. málsl. 60. gr. að atvinnuleitandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af gögnum málsins verði ráðið að Vinnumálastofnun hafi beitt kæranda viðurlögum á grundvelli framangreinds ákvæðis þar sem hann hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt stofnuninni um vinnuna. Því virðist huglæg afstaða kæranda ekki hafa verið könnuð áður en ákvörðun um beitingu viðurlaga var tekin. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst áður en Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til baka til mats á því hvort kærandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga og innheimtu ofgreiddra bóta felld úr gildi og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 26. ágúst 2015, í máli A, um að staðfesta fyrri ákvörðun stofnunarinnar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 97.638 kr. að meðtöldu 15% álagi, er felld úr gildi. Málinu er vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.


F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum